Útsýn - 10.11.1945, Síða 17

Útsýn - 10.11.1945, Síða 17
Almcmnatryggingar frá vöggu til grafar TILLÖGUR JÖNS BLÖNDALS OG JÓHANNS SÆMUNDSSONAR. ' FYRIR nokkrum dögnm kom út mik- ið rit (350 bls. í stóru broti), sem fé- lagsmálaráðuneytið gefur út, er hefur inni að halda tillögur um almannatrygg- ingar, heilsugæzlu og atvinnuleysismál, sem þeir Jón Blöndal hagfraeðingur og Jóhann Sæmimdsson tryggingayfirlækn- ir hafa samið. Myndu tillögur þessar, ef samþykktar yrðu, þótt ekki væri nema í aðalatriðum, tákna þá mestu gerbreytingu á íslenzkri félagsmálalöggjöf, sem orðið hefur til þessa tíma. Tildrög þessarar skýrslu eru í stuttu máli þessi: Jóhann Sæmundsson réð þegar hann var félagsmálaráðherra Jón Blöndal hagfræðing, ásamt þeim Klem- enz Tryggvasyni hagfræðingi og Kr. Guðm. Guðmundssyni tryggingarfræð- ingi, til að undirbúa tillögur um al- mannatryggingar o.fl., sem stuðlað gætu að félagslegu öryggi þjóðarinnar. Hinir síðarnefndu hættu störfum, áður en und- irbúningsstörfum væri lokið. Vann Jón Blöndal síðan einn að þeim, þar til nú- verandi ríkisstjóm tók við völdum, en þá var honum falið að undirbúa tillögur um fullkomnar almannatryggingar, sem stjórnin hafði tekið upp á stefnuskrá sína, ásamt Jóhanni Sæmundssyni. Til- lögurnar skyldu síðan lagðar fyrir milli- þinganefnd um alþýðutryggingar, sem skyldi undirbúa rriálið fyrir yfirstand- andi Alþingi. Formaður hennar er Har- aldur Guðmundsson forstjóri. Hefur nefndin unnið að því síðan nokkru eftir áramót og munu tillögur hennar væntan- legar innan skamms. Tillögur þeirra Jóns Blöndals og Jó- hanns Sæmundssonar eru í 3 aðalhlut- um: um almannatryggingar, heilsugæzlu og atvinnuleysismál. Eru engin tök á að rekja efni þeirra í þessu blaði. Verð- ur að þessu sinni aðeins birt stutt yfirlit um almannatryggingamar, en Jóhann Sæmundsson mun í næsta blaði skrifa yfirlitsgrein um heilsugæzluna, en síðar mun birtast grein um atvinnuleysismál- in. Hlunnindakerfið. Aðalflokkar hlunnindanna eru þessir: A. Bætur greiddar í peningum: 1. Elli- og örorkulífeyrir, 2. Barnalífeyrir og fjölskyldubætur, 3. Bætur til mæðra, ekkna o. fl., 4. Sjúkra- og dánarbætur, 5. Slysabætur. — B. Heilsugæslan: 1. Heilsuverndarstarfsemi, 2. Sjúkra- húsvist, 3. Læknishjálp, 4. Lyf, 5. önnur sjúkrahjálp. 1. Elli- og örorkuUfeyrir. Upphæðir elli- og örorkulífeyris eru þessar: Kaup- Kaup- Sveit- staðir tún ir kr.áári kr.áári kr.áári Fyrir hjón, þegar bæði fá lífeyri . . 5300 4300 3500 Fyrir einstaklinga og hjón, þegar annað fær lífeyri 3300 2700 2200 Þurfi elli- eða örorkulífeyrisþegi á sérstakri umönnun að halda, má hækka lífeyri hans um allt að 40%. o. Ellilífeyrir. Hann er veittur gamalmennum, sem náð hafa fullum 67 ára aldri, án tillits til efnahagsástæðna þeirra. b. örorkulífeyrir. Hann er veittur öryrkjum, sem hafa misst 80 % af starfsorku sinni, en að öðru leyti er forsjá öryrkja falin At- vinnustofnun ríkisins (sjá síðar um at- vinnumálin). 2. Bamalífeyrir og fjölskyldubætur. a. Barnalífeyrir. Árleg upphæð barnalífeyris skal vera sem hér segir: Á 1. tryggingasvæði .... kr. 2200 - 2. — .... — 1800 - 3. — .... — 1500 Bamalífeyrir er greiddur til 16 ára aldurs með þessum flokkum barna: a) Börnum gamalmenna. b) Börnum öryrkja. c) Börnum ekkna. d) Munaðarlausum börnum. Enn fremur er lagt til, að hann sé yfirleitt greiddur með óslcilgetnum börn- um og börnum fráskilinna kvenna, en í þeim tilfellum eigi Tryggingarstofnun- in endurkröfurétt á föðurinn. \ b. Fjölskyldubœtur. Fjölskyldubætur, 750 kr. á ári, skal greiða fyrir hvert barn á framfæri innan 15 ára aldurs, sem ekki fær bamalífeyri, að undanskildu fyrsta barninu í hverri fjölskyldu. Fjölskyldubætur skulu greidd- ar mæðrum barnanna. 3. Bætur til mæðra, ekkna o. fl. a. FœðingarUjálp. Hún er 200 kr. fyrir hverja fæðingu, en auk þess 300 kr. fyrir mæður, sem ekki stunda atvinnu utan heimilis síns, en 360 kr. á mánuði í allt að þrjá mán- uði fyrir konur, sem stunda atvinnu utan heimilis síns. b. Ekkjubœtur. Þeim, sem verða ekkjur, skal greiða 360 kr. á mánuði í 3 mánuði eftir að þær urðu ekkjur, en auk þess skal greiða ekkjum, sem hafa börn innan 16 ára á framfæri sinu, árlega upphæð sem hér segir: Á 1. tryggingarsvæði........ kr. 1650 - 2. — — 1350 - 3. — — 1100 Einnig er lagt til, að hliðstæðar bætur séu greiddar öðrum mæðrum, sem líkt stendur á fyrir og ekkjum. c. Bœtur til eiginkvenna elli- og órorku- lífeyrisþega. Tryggingarstofnuninni er heimilt að veita slíkum konum lifeyri, þótt þær hafi ekki náð hinum venjulega ellilíf- eyrisaldri (67 ára). Upphæð hans skal vera: Á 1. tryggingarsvæði allt að kr. 2000 -2. — — — — 1600 -3. — — — — 1300 / 4. Sjúkra- og dánarbætur. a. Sjúkrabœtur. Starfandi fólki á aldrinum 16—66 ára skulu greiddar sjúkrabætur, þegar það er frá vinnu sökum sjúkleika, með eftir- farandi upphæðum: Fyrir gifta karla, þegar konan vinnur ekki utan heimilis eða er atvinnu- laus.............. kr. 140.00 á viku Fyrir aðra........... — 90.00 - — Gert er ráð fyrir 7 daga biðtíma fyrir launþega og 4 vikna biðtíma fyrir aðra, og skal hámarkstími sjúkrabóta vera 26 vikur á ári. 1 sveitum skal aðeins greiða sjúkrabætur, þegar um sjúkra- ÚTSÝN 15

x

Útsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.