Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Síða 4
Vikublað 14.–16. mars 20174 Fréttir
Skilur ekki samúð með
aflandskrónueigendum
n Sigmundur segir hrikalega farið með trúverðugleika íslenskra stjórnvalda
F
rá og með deginum í dag
verða fjármagnshöft á
einstaklinga, fyrirtæki og líf-
eyrissjóði afnumin. Þetta
var tilkynnt um liðna helgi á
blaðamannafundi Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, Benedikts
Jóhannessonar fjármálaráðherra
og Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra. Samhliða því var kynnt
að Seðlabankinn hefði gert eigend-
um aflandskróna tilboð um kaup á
þeim.
Almennt hafa viðbrögð við afnámi
hafta mælst vel fyrir en hins vegar
hafa ýmsir orðið til að gagnrýna út-
boð Seðlabankans á kaupum á
aflandskrónum. Ástæðan er sú að við
sambærilegt útboð í júní í fyrra var
eigendum aflandskrónanna boðið að
greiða 190 krónur fyrir hverja evru.
Nú hljóðar tilboðið upp á 137,5 krón-
ur fyrir hverja evru.
Vogunarsjóðir leystir
út með gjöfum
Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt
þennan ráðahag er Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Sigmundur sagði á Face-
book-síðu sinni að með ákvörðun-
inni sé verið að leysa „vogunarsjóðina
út með gjöfum“ og á hann þar við
aflandskrónueigendur en stærstir
þeirra eru bandarískir vogunar-
sjóðir. „Það stendur til að verðlauna
hrægammana sem vildu ekki spila
með (í útboðinu í fyrra) og ákváðu
þess í stað að beita áróðri og undir-
róðri til að hafa áhrif á íslensk stjórn-
mál,“ skrifaði Sigmundur einnig.
Sigmundur segir í samtali við
DV að hann fagni því að verið sé að
lyfta höftunum. Hins vegar gangi
aflandskrónuútboð Seðlabankans
nú gegn áætlun um afnám hafta
sem kynnt var í fyrra. „Útboðið er allt
of seint á ferðinni, það átti að halda
það þegar þrýstingur á vogunarsjóð-
ina var enn til staðar. Það hefði átt
að senda út þau skilaboð að annað-
hvort gengju menn að þessum 190
krónum fyrir hverja evru eða þeir
væru bara fastir. Frá því átti aldrei
að hvika. Það átti að vera alveg ljóst
að aflandskrónueigendurnir myndu
tapa á því að vera ekki með í júní
síðastliðnum. Í því lá trúverðugleiki
stjórnvalda. Það er því tvíþættur
kostnaður í þessu. Annars vegar er
það hinn peningalegi kostnaður eða
tap. Hins vegar það, sem kannski er
enn verra, að þetta fer hrikalega með
trúverðugleika íslenskra stjórnvalda.
Skýrri stefnu sem lögð var fram, og
ekki átti að hvika frá, er síðan bara
breytt nokkrum mánuðum seinna
og það eftir að hagsmunaaðilar hafa
beitt grímulausum áróðri.“
Spurður hvort hann hafi áhyggj-
ur af því að þeir aðilar sem þegar hafa
tekið þátt í útboðum Seðlabankans, í
júní í fyrra, hafi hug á að sækja bætur
vegna þess að forsendur séu brostnar
játar Sigmundur því. „Það hlýtur að
sjóða á þeim núna. Það hlýtur að vera
að þeir velti því fyrir sér hvort þeir hafi
slíka stöðu í ljósi þess að fullyrðingar
íslenskra stjórnvalda hafi ekki reynst
réttar. Þetta átti að vera síðasti séns
í fyrra, annars væru menn fastir inni
með krónurnar. Þeim hlýtur að finn-
ast þeir hafa verið blekktir.“
Ekki ástæða til að hafa áhyggjur
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra
tekur ekki undir þessar áhyggjur Sig-
mundar. „Við höfum enga ástæðu til
að ætla að það að við skulum semja
við aflandskrónueigendur á þessum
tímapunkti muni valda neinni röskun
á því sem liðið er, enda höfðu menn
frjálst val um það hvort þeir tóku þátt
í útboðinu í fyrra.“
Bjarni segir að aðgerðirnar nú séu
í samræmi við áætlanir sem unnið
hafi verið eftir frá árinu 2015. „Með
þessum aðgerðum erum við skrefi
nær því að losna að fullu undan
höftum. Áður en útboðið fór fram í
fyrra var vandinn margfaldur á við
það sem stefnir í að verði, varðandi
eftir stöðvar aflandskrónanna, í dag.
Það eitt og sér er gleðiefni. Það ligg-
ur fyrir að Seðlabankinn mun með
þessum viðskiptum bókfæra umtals-
verðan hagnað í sínar bækur og það
er ekki verið að kosta miklu til. Ég á
erfitt með að skilja hvers vegna hjarta
manna slær með þeim sem tóku þátt
í útboðinu í fyrra. Það er bara þannig
að menn sáu ekki fyrir að það yrði
jafn mikil styrking á gengi krónunnar
og raun er orðin. Sumir trúðu því og
sumir trúðu því ekki. Þannig verður
það líka núna. Það eru sumir þessara
aðila sem hafa engan áhuga á að
taka þátt í því sem Seðlabankinn er
að gera að þessu sinni, bara með ná-
kvæmlega sama hætti og var í fyrra.“
Áfram læstir inni
Greint var frá því um helgina
að búið væri að fá jákvæð svör
frá aflandskrónueigendum sem
héldu á um 90 milljörðum króna
en eftir væri að fá svör frá öðrum.
Bjarni segir að einhverjir þeirra
hafi þegar svarað neitandi, þeir
hyggist ekki taka þátt í útboðinu
nú. „Þeir verða þá áfram læstir
með sínar aflandskrónur inni á sér-
stökum reikningum, á lágum vöxt-
um, og við munum fylgjast með því
hvaða áhrif þær ákvarðanir sem
við erum að taka núna munu hafa.
Þeir sem að kjósa að eiga ekki við-
skipti við Seðlabankann núna taka
þá bara áhættu á því hvernig gengi
krónunnar mun þróast á næstu
misserum og sömuleiðis af getu
íslenskra stjórnvalda til að stíga
frekari skref í framtíðinni.“ n
Þetta er staðan
Umræða um aflandskrónur
fyrirferðarmikil
n Fjármagnshöft hafa verið við lýði
síðan skömmu eftir efnahagshrun, í
nóvember 2008.
n Unnið hefur verið að losun hafta um
langt skeið en í júní í fyrra var áætlun um
afnám þeirra kynnt.
n Krónur í eigu erlendra aðila hér á
landi, aflandskrónur, hafa skapað vand-
ræði. Sökum þess hversu háar fjárhæðir
er um að ræða hefði flutningur þeirra úr
landi getað sett fjármálakerfið á hliðina.
n Í júní síðastliðnum var aflandskrónu-
eigendum boðið að greiða 190 krónur
fyrir hverja evru til að losna úr höftum.
Viðskiptin sem þá áttu sér stað námu
um 83 milljörðum króna.
n Nú er aflandskrónueigendum boðið
að greiða 137,5 krónur á hverja evru. Það
er um 38 prósentum minna en greitt var
í fyrra. Þess ber að geta að krónan hefur
styrkst verulega á þessu tímabili.
n Eigendur að minnsta kosti 90
milljarða aflandskróna hafa samþykkt
tilboð Seðlabankans. Eftir standa 105
milljarðar. Ljóst er að eigendur hluta
þeirrar fjárhæðar munu ekki taka þátt.
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is Gleðiefni Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra
segir að með síðustu
aðgerðum sé stigið stórt
skref að því að losna að
fullu undan höftunum.
Mynd ÞoRMaR ViGniR GunnaRsson
Við erum stolt af útgáfu á íslenskri tónlist
StudioNorn.is