Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 6
Vikublað 14.–16. mars 20176 Fréttir
Fangi á Hólmsheiði fær ekki að sækja sjúkraþjálfun eftir skurðaðgerð
Þ
orbjörn Haukur Liljarson,
fangi á Hólmsheiði, segir
farir sínar ekki sléttar af
samskiptum sínum við
Fangelsismálastofnun og
lækna á Hólmsheiði. Nýverið fór
hann í bráðnauðsynlega aðgerð á
hrygg og átti að dveljast í nokkra
mánuði á Grensási til að jafna sig.
Þorbjörn Haukur missteig sig og datt
í það á sjúkrabeði og refsingin var sú
að hann var sendur aftur á Hólms
heiði. „Ég viðurkenni fúslega að ég
missteig mig en viðbrögð Fangelsis
málastofnunar eru alltof harkaleg.
Þetta er of hörð refsing fyrir eitt feil
spor. Ég er fárveikur og á að vera á
sjúkrahúsi en ekki í fangelsi. Það er
verið að fara illa með mig,“ segir Þor
björn Haukur Liljarson í samtali við
DV.
Hann segist ekki fá að fara í
sjúkraþjálfun og allur gangur sé á því
hvort læknarnir, sem koma í fangels
ið tvisvar í viku, vilji yfir höfuð hitta
hann. Í svari frá Fangelsismálastofn
un kemur fram að stofnunin geti ekki
tjáð sig um einstök mál en að fangar
eigi rétt á sömu heilbrigðisþjónustu
og aðrir. Þá meti læknar þörf fanga
á þjónustu eins og sjúkraþjálfun.
Ef þeir gefi grænt ljós þá sjái starfs
menn fangelsisins um að flytja fang
ann þangað sem þjónustan er veitt.
Hætti að geta gengið
Þorbjörn Haukur afplánar nú eftir
stöðvar fangelsisdóms á Hólms
heiði. Þann dóm hlaut hann fyrir
líkamsárás gegn þáverandi kærustu
sinni en Þorbjörn Haukur var í mik
illi óreglu á þeim tíma. Alls hefur
hann hlotið 19 dóma fyrir margs
konar brot frá árinu 1990. „Ég á mína
svörtu fortíð sem ég þarf að takast á
við. Ég er reyna að vera edrú og snúa
við blaðinu. Þrátt fyrir fortíð mína
þá er ekki þar með sagt að það megi
brjóta á mér mannréttindi,“ segir
Þorbjörn Haukur.
Að sögn Þorbjörns Hauks fór
hann að finna fyrir doða í höndum
og fótum fyrir nokkru. „Ég hætti að
finna fyrir fótunum. Smátt og smátt
versnaði ég og að lokum var ég
orðinn rúmliggjandi,“ segir hann.
Rannsókn leiddi í ljós að ómeð
höndlaður áverki sem hann hlaut
vegna mótorhjólaslyss fyrir rúmum
tveimur áratugum hafði valdið
þrýstingi á mænuna. Þorbjörn
Haukur var drifinn í aðgerð og fékk
frestun á afplánun fangelsisdóms
ins. „Það voru festir saman á mér þrír
efstu hryggjarliðirnir með skrúfum
og plötum auk þess sem hreinsað
var út úr efsta liðnum. Læknirinn
sagði við mig að ef þetta hefði dreg
ist í hálft ár í viðbót þá hefði ég ekki
gengið aftur og líklega misst allan
mátt í höndunum einnig. Það var
talsvert áfall,“ segir Þorbjörn Haukur.
Aðgerðin heppnaðist vel og varð til
þess að hann gat gengið aftur.
Átti að vera í sjúkraþjálfun
í allt að tvö ár
Hann átti síðan að jafna sig á
Grensás og ná fyrri heilsu með reglu
legri sjúkraþjálfun. Hann hafði að
eins dvalið á Grensás í rúma viku
þegar hann brá sér af deildinni til
þess að hitta konuna sína. „Það end
aði með hávaðarifrildi og þá gerði ég
þau mistök að detta í það,“ segir Þor
björn Haukur. Þegar upp um hann
komst var hann handtekinn og lát
inn hefja afplánun aftur á Hólms
heiði. Þau viðbrögð telur hann afar
harkaleg og óttast að hann fái ekki
bót meina sinna þar.
„Ég fæ aðeins væg verkjalyf frá
fangavörðum sem slá ekkert á verk
ina. Síðan á ég að vera í sjúkraþjálfun
daglega en það er enginn sem skutl
ar mér þangað. Fyrir aðgerðina var
mér tjáð að ég þyrfti líklega að vera
í sjúkraþjálfun í allt að tvö ár. Hérna
kemst ég ekki í neitt slíkt,“ segir Þor
björn Haukur. Að hans sögn finnur
hann ekki fyrir fótum sínum auk þess
sem hann er dofinn í fingrunum.
„Samfangar mínir hafa aðstoðað
mig við að skera niður matinn því ég
get það ekki sjálfur. Ég get gengið á
sléttu yfirborði og ég get horft fram
fyrir mig. Undanfarið hef ég ekki get
að farið út þegar það er leyft því að
ég get ekki gengið í snjónum. Ég dett
bara fram fyrir mig,“ segir Þorbjörn
Haukur.
Fangelsismálastofnun segir að
þeir fái þjónustu sem þurfi
Læknar heimsækja Hólmsheiði
tvisvar í viku og Þorbjörn Haukur
segir farir sínar ekki sléttar af þeim.
„Fyrst þegar ég kom til baka þá
hæddist læknirinn að mér fyrir að
hafa dottið í það. Síðan hafa þeir
neitað að hitta mig í nokkur skipti,“
segir Þorbjörn Haukur en læknar
á Hólmsheiði vega og meta hvaða
fanga þeir hitta þegar heimsóknir
standa yfir, tvisvar í viku. „Ég er sár
kvalinn og ég tel að verið sé að fremja
á mér gróft mannréttindabrot,“ segir
Þorbjörn Haukur.
Í skriflegu svari frá Fangelsis
málastofnun kemur fram að ekki sé
hægt að fjalla um einstök mál fanga.
Almennt eigi fangar rétt á sambæri
legri heilbrigðisþjónustu og aðrir.
„Í þessu felst meðal annars að þeir
eiga rétt á að fara til sjúkraþjálfara,
sé þess þörf samkvæmt mati lækn
is. Í slíkum tilvikum eru þeir keyrð
ir til og frá af fangaflutningsmönn
um. Þá skal læknir skoða fanga við
upphaf afplánunar og ef þörf krefur
meðan á afplánun stendur. Læknir
kemur reglulega í fangelsin og met
ur hverju sinni við hverja hann tal
ar í það skiptið. Það er því alveg á
hreinu að ef læknir telur þörf á að
fangi fari til sjúkraþjálfara þá sér
viðkomandi fangelsi um að koma
honum þangað,“ segir Erla Kristín
Árnadóttir, sviðsstjóri fullnustusviðs
Fangelsismálastofnunar. n
Þorbjörn Haukur Liljarson Segir að illa sé farið með sig á Hólmsheiði þar sem hann fær
ekki að sækja nauðsynlega sjúkraþjálfun eftir hryggjaraðgerð sem hann undirgekkst. Í svari
Fangelsismálastofnunar kemur fram að læknar meti hvort fangar hafi þörf á slíkri þjónustu
og sé það raunin þá sjái starfsmenn fangelsisins til þess.
Hólmsheiði
Mynd Sigtryggur Ari
„Það er farið illa
með mig hérna“
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is