Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Side 8
Vikublað 14.–16. mars 20178 Fréttir
Boðar nýja
atkvæðagreiðslu
um sjálfstætt Skotland
n Staðan gjörbreytt eftir Brexit n Aðeins
rúm tvö ár frá fyrri þjóðaratkvæðagreiðslu
N
icola Sturgeon, leiðtogi
skosku heimastjórnarinn-
ar, boðaði í gær, mánudag,
að haldin yrði á nýjan leik
þjóðaratkvæðagreiðsla um
sjálfstæði Skotlands. Slík þjóðarat-
kvæðagreiðsla var síðast haldin árið
2014 og höfðu nei-sinnar þá betur.
Staðan að mati Sturgeon er hins
vegar gjörbreytt nú, eftir að Bretar
samþykktu útgöngu úr Evrópusam-
bandinu í Brexit-þjóðaratkvæða-
greiðslunni í júní síðastliðnum.
Nærri þriðjungur Skota var andvígur
útgöngunni í þeim kosningum.
Sturgeon lýsti þessu á blaða-
mannafundi sem hún hélt í Edin-
borg í gær. Þar sagði Sturgeon að
hún hygðist leggja fram frumvarp
þessa efnis fyrir skoska þingið í
næstu viku þar sem þess yrði krafist
af breska þinginu að það veitti slíka
heimild. Að mati Sturgeon ætti
þjóðaratkvæðagreiðslan að fara
fram veturinn 2018–2019.
Viðræður verið árangurslausar
Sturgeon lýsti því að allar viðræður
hennar við bresk stjórnvöld um
leiðir til að Skotland gæti áfram
haldið tengslum sínum við Evrópu-
sambandið og innri markað þess
hafi verið árangurslausar. Henni
hefði verið mætt með tómlæti og
áhugaleysi á hagsmunum Skota.
Að hennar mati sé ekki hægt ann-
að en að halda atkvæðagreiðslu
um sjálfstæði, annað þýddi ein-
faldlega að verið væri að samþykkja
útgöngu Skotlands úr Evrópu-
sambandinu, þvert á vilja mikils
meirihluta þjóðarinnar. Aðspurð
sagði Sturgeon að hún teldi að Skot-
ar myndu samþykkja sjálfstæði í
nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Skoska þingið klofið
Í þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf-
stæði Skotlands sem fram fór árið
2014 varð niðurstaðan sú að 45
prósent kjósenda vildu sjálfstætt
Skotland en 55 prósent vildu áfram
vera hluti af ríkjasambandi Bret-
lands. Á þeim tíma var talað um að
sú atkvæðagreiðsla væri einstök og
yrði ekki endurtekin, í það minnsta
ekki á næstunni. Forystumenn
Skoska íhaldsflokksins og Skoska
verkamannaflokksins hafa lýst því
yfir að þeirra flokkar muni greiða at-
kvæði gegn annarri þjóðaratkvæða-
greiðslu. Samanlagt hafa þeir flokkar
54 þingmenn á skoska þinginu.
Skoski þjóðarflokkurinn, sem
Sturgeon leiðir, á hins vegar 63 sæti,
tæpan meirihluta. Sturgeon sagði á
blaðamannafundinum að hún teldi
sig geta treyst á stuðning Græningja
sem hafa 6 þingsæti og myndi það
duga til að ná meirihluta.
Bresk stjórnvöld lítt hrifin
Í gær sendi Theresa May, forsætis-
ráðherra Bretlands og formaður
Breska íhaldsflokksins, frá sér yfir-
lýsingu þar sem því var lýst að unnið
væri að því að tryggja framtíðarsam-
skipti við Evrópusambandið sem
myndu uppfylla þarfir alls Bretlands.
Fyrir aðeins tveimur árum hafi Skot-
ar með afgerandi hætti kosið að vera
áfram hluti af Bretlandi, í þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem skosk stjórnvöld
hafi lýst yfir að ekki yrðu endurtekn-
ar næstu áratugina. Fátt bendi til
að skoska þjóðin vilji nú endurtaka
leikinn. Ný þjóðaratkvæðagreiðsla
mundi kljúfa þjóðina og valda
ómældum vandræðum. Ekki var þó
hægt að sjá á yfirlýsingunni að May
hafnaði því að veita heimild fyrir
slíkri atkvæðagreiðslu. Sturgeon
sagði einnig á blaðamannafundin-
um að hún teldi ekki líkur til þess. n
Boðar þjóðaratkvæðagreiðslu Nicola Stur-
geon, leiðtogi skosku heimastjórnarinnar, boðaði
í gær að haldin yrði ný þjóðaratkvæðagreiðsla um
sjálfstæði Skotlands. Mynd EPA
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is