Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Qupperneq 12
Vikublað 14.–16. mars 201712 Fréttir Erlent
É
g elska hreina glugga og mér
fannst vinnan mjög skemmti-
leg. Við byrjuðum efst og
fikruðum okkur svo niður,“
segir gluggaþvottamaðurinn
Alcides Moreno sem komst í heims-
fréttirnar í desember árið 2007
þegar hann lenti í skelfilegu vinnu-
slysi.
Moreno var við vinnu ásamt
bróður sínum við háhýsi í New York,
Solow-bygginguna, þegar ósköpin
dundu yfir. Þeir voru við 47. hæð
hússins þegar vinnupallurinn gaf
sig með þeim afleiðingum að þeir
bræður féllu til jarðar. Yngri bróðir
hans, Edgar, lést samstundis en þótt
ótrúlegt megi virðast var Moreno
enn með lífsmarki þegar hann var
fluttur á sjúkrahús.
Haldið sofandi í þrjár vikur
BBC rifjaði þennan óhugnanlega
atburð upp og ræddi við Moreno
um lífsreynslu hans. Í umfjöllun
BBC kemur fram að fáheyrt sé að
einstaklingar lifi af fall af 10. hæð.
En Moreno féll eins og áður
greinir af 47. hæð hússins og slas-
aðist býsna alvarlega; hann hlaut
mikla og alvarlega höfuðáverka, rif-
beinsbrot, fótbrot, handleggsbrot
auk þess sem hann hryggbrotnaði.
Honum var haldið sofandi á sjúkra-
húsi í þrjár vikur eftir slysið. Á þeim
tæpu tíu árum sem liðin eru frá slys-
inu hefur Moreno þó náð undra-
verðum bata.
144 metra fall
Þessi dagur, 7. desember 2007,
hófst í raun eins og aðrir dagar
hjá þeim bræðrum. Þeir tóku lyftu
upp á efstu hæð Solow-byggingar-
innar og komu sér því næst fyrir á
vinnupallinum. Þegar þeir voru til-
tölulega nýbyrjaðir gáfu öryggis-
festingar sig með fyrrgreindum
afleiðingum. Talið er að fallið hafi
verið 144 metrar en til samanburðar
er Hallgrímskirkjuturn 74,5 metrar.
Og útreikningar gáfu til kynna að
yngri bróðir hans, Edgar, hafi verið
á 190 kílómetra hraða þegar hann
skall til jarðar. Moreno virðist hafa
farið hægar þar sem honum tókst
að skorða sig við vinnupallinn þegar
slysið varð.
Æðri máttarvöld?
Í umfjöllun BBC kemur fram að
Moreno hafi reynt að standa upp
eftir slysið, en ekki haft erindi sem
erfiði. Hann gekkst undir nokkrar
aðgerðir, meðal annars uppskurð á
höfði til að minnka bólgumyndun í
heilanum. Fyrstu dagana eftir slysið
var mjög tvísýnt um líf hans en þvert
á allar væntingar náði Moreno bata.
Dr. Herbert Pardes, forstjóri New
York-Presbyterian-sjúkrahússins,
sagði við blaðamenn á sínum tíma
að það gengi kraftaverki næst að
læknum hafi tekist að bjarga lífi
Moreno. „Lífslíkur eftir fall af fjórðu
hæð eru ekki ýkja miklar,“ sagði
Glenn Asaeda hjá slökkviliði New
York-borgar. „Þarna virðast æðri
máttarvöld hafa gripið inn í,“ bætti
hann við.
Ýmsar vangaveltur
Það var svo á jóladag árið 2007 að
Moreno vaknaði á sjúkrahúsinu
með eiginkonu sína, Rosario, sér við
hlið. „Ég á mjög óskýrar minningar
frá þessum tíma. Ég mundi ekkert
eftir sjálfu fallinu og vissi ekki hvað
hafði komið fyrir bróður minn,“ seg-
ir hann við BBC.
Vinnueftirlit New York-borgar
komst að þeirri niðurstöðu að slys-
ið hefði orðið vegna ófullnægjandi
öryggisbúnaðar og vegna þess að
festingar, sem halda áttu vinnupall-
inum uppi, voru ekki rétt festar.
Ýmsir sérfræðingar hafa velt
vöngum yfir því hvernig í ósköp-
unum Moreno lifði fallið af. Bróðir
hans, Edgar, var staddur vinstra
megin á pallinum þegar festingin
þeim megin gaf sig. Hann féll rak-
leitt niður og gat enga björg sér
veitt. Moreno var hins vegar stadd-
ur hægra megin á pallinum og tókst
að skorða sig við hann þegar hann
féll til jarðar. Hann féll því til jarð-
ar með pallinum og hefur því verið
velt upp að pallurinn sjálfur hafi
tekið á sig mesta höggið. Þá geti
verið að pallurinn hafi rekist utan
í bygginguna á leiðinni niður og
þannig hafi dregið úr hraða hans.
Hvað sem öllu því líður er Moreno á
lífi á dag og fyrir það er hann þakk-
látur.
Þakklátur fyrir að geta gengið
Þeir bræður voru nánir en þeir
fluttu til Bandaríkjanna frá Ekvador
á sínum tíma. Í viðtalinu við BBC
segir hann að það hafi verið sér
mikið áfall að missa bróður sinn.
Þeir bjuggu saman um tíma og áttu
sameiginleg áhugamál, auk þess að
vinna saman.
Moreno, sem er 46 ára, býr í dag
ásamt fjölskyldu sinni í hitanum í
Phoenix í Arizona. Hann á fjögur
börn, þar af eitt sem kom í heim-
inn árið 2016. Hann segir að ef hann
gæti myndi hann starfa við glugga-
þvott – en slysið varð til þess að
hann þurfti að snúa sér að annarri
vinnu. „Ég er ekki sami maður og ég
var. En, þökk sé Guði, ég get gengið.
Það er kraftaverk.“ n
Nánir bræður Edgar og Moreno voru
mjög nánir. Þeir deildu sömu áhugamálum,
bjuggu saman um tíma auk þess að vinna
saman.
Maðurinn sem
er gangandi
kraftaverk
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Með eiginkon-
unni Það gengur
kraftaverki næst að
Moreno sé á lífi.
Hátt fall Bræðurnir voru við 47. hæð hússins
þegar ósköpin dundu yfir. Talið er að fallið
hafi verið um 144 metrar.
n Alcides Moreno lifði af fall af 47. hæð
n Tæplega tvöföld hæð Hallgrímskirkju