Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 14
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
14 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Gerðu daginn
eftirminnilegan
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Bakarameistari & Konditormeistari
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is
Vikublað 14.–16. mars 2017
Það var löngu orðið tímabært
að aflétta höftum
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um aðgerðir stjórnvalda. – Facebook
Hinir vammlausu
Össur Skarphéðinsson sannar enn
að hann er með skemmtilegri
pennum. Í Facebook-færslu sinni
sem hefur yfirskriftina Syndlausir
Framsóknarmenn spyr hann: „Eru
Elsa Lára, Sigmundur Davíð, Sigurður
„okkar“ Hannesson og allir hinir
vammlausu í Framsókn búin að
gleyma 450 milljarða afslættinum
sem þau gáfu vogunarsjóðunum
með því að falla á einu augna-
bliki frá samþykkt Alþingis um út-
gönguskatt og taka í staðinn upp
svokölluð „stöðugleikaframlög“?“
Framsóknarmennirnir sem
hann beinir spjótum sínum að
hafa gefið í skyn að ríkisstjórnin
gangi erinda vogunarsjóða. Össur
rifjar síðan upp hvernig tryllt gleði
braust út í hópi kröfuhafa þegar
þeir beygðu ríkisstjórn Sigmundar
Davíðs til þeirrar niðurstöðu.
Sigmundur og ofsjónir
Annar vaskur pistlahöfundur,
Björn Bjarnason, gerir viðbrögð
Framsóknar við afnámi gjaldeyris-
hafta að umtalsefni í pistli og
segir: „Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son reynir nú að
ná vopnum sínum
og segir að hann
hefði ekki samið
við vogunarsjóði á
þann hátt sem gert
var í tengslum við
afnám haftanna.
Gefur hann sér einhverjar tölur í
því sambandi en aðrir nefna aðrar
tölur. Tæki hann af sér flokkspóli-
tísku gleraugun áttaði hann sig á
að hann sér ofsjónum yfir ábata
vogunarsjóðanna.“
Maður er ekkert að
leita eftir vorkunn
Jóhann Berg Guðmundsson knattspyrnumaður reynir að jafna sig af meiðslum. – DV
Ég var átta ára,
ég treysti þér!
Hjörleifur, sem var nauðgað af föður sínum í æsku, sendi honum bréf. – DV
N
ý ríkisstjórn, sem virtist ætla
að verða helst til verklítil,
hristi af sér slenið og aflétti
höftum og er það vel gert. Sú
gjörð er eðlilegt framhald af verk-
um ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks, sem rétt er að
hrósa fyrir að hafa viðhaldið efna-
hagslegum stöðugleika. Vonandi
heldur núverandi ríkisstjórn jafn vel
á spöðunum.
Vantraust á stjórnmálamönnum
er grasserandi hér á landi, líkt og
svo víða annars staðar, en ósann-
girni má ekki taka öll völd. Þjóðin er
búin að vinna sig upp úr hruninu og
þar lögðu stjórnmálamenn úr hin-
um ýmsu flokkum sitt af mörkum til
góðs. Það þarf hins vegar að halda
áfram að standa vaktina svo ekki
verði hér skyndileg kollsteypa sem
veki verðbólgudrauginn til lífs á ný.
Hin mikla styrking krónunnar
hefur verið slæm fyrir útflutnings-
atvinnugreinarnar en komið al-
menningi vel. Fulltrúar ríkisstjórnar-
innar hafa verið afskaplega duglegir
að lýsa yfir áhyggjum vegna hinna
vondu áhrifa sem styrking gjaldmið-
ilsins hefur á þessar greinar. Að sama
skapi hafa þeir ekki verið viðlíka dug-
legir að tala máli hins almenna neyt-
anda sem sannarlega á að njóta góðs
af góðærinu. Auðvitað eiga hagur út-
flutningsatvinnugreinar og hagur al-
mennings í landinu að fara saman.
Stundum er þó talað eins og þarna
séu tveir hópar sem geti alls ekki
náð saman þar sem hagsmunir
þeirra séu svo ólíkir. Jafnvel má
tala um vantraust almennings
í garð atvinnulífsins. Það er
til dæmis algengt að litið sé
á talsmenn útflutningsat-
vinnugreinanna sem full-
trúa hins illa auðmagns og
þeir taldir ófúsir að láta
almenning njóta hagn-
aðarins. Almenningur
hefur líka sterklega á tilfinningunni
að stjórnmálamennirnir vilji hygla
sérhagsmunahópum á kostnað
venjulegs fólks. Þetta er að hluta
til stjórnmálamönnunum sjálfum
að kenna, því í málflutningi sínum
tengja þeir ekki nægilega saman hag
almennings og atvinnugreina. Full-
trúar útflutningsatvinnugreinanna
mættu síðan muna að þeim yrði
lítt ágengt án öflugs starfsfólks sem
þeim er skylt að gera vel við.
Katrínu Jakobsdóttur, formanni
Vinstri grænna, mæltist vel eftir að
tilkynnt var um afnám hafta. „Fyrst
og fremst þurfum við að hafa í huga
hagsmuni almennings í landinu og
að hann standi heill eftir losun hafta,“
sagði hún. Þetta er hárrétt áhersla
hjá Katrínu. Í málflutningi stjórn-
málamanna gætir þess of sjaldan að
þeir láti sig hag almennings
varða. Fólk verður að
finna að stjórnmála-
mönnum standi ein-
læglega ekki á sama
um það. Það er
ekki nóg að stjórn-
málamenn muni
bara eftir stór-
fyrirtækjunum,
þeir þurfa líka að
muna eftir fólk-
inu. n
Að muna eftir fólkinu
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Útivinna Það virðist ætla að verða hlé á vorveðri síðastliðinna daga. Slydduhraglandi gerir vart við sig sem truflar þó ekki vinnandi fólk. mynD SiGtryGGur Ari