Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Blaðsíða 17
Vikublað 14.–16. mars 2017 Kynningarblað - Með allt á hreinu 3
Einungis handþvottur
– engir kústar eða burstar
Bón- og þvottastöðin
B
ón- og þvottastöðin státar af
sérlega glæsilegri bílaþvotta-
stöð að Grjóthálsi 10, við
hliðina á Skeljungi við Vestur-
landsveginn. Að sögn Ara Raf-
ns Vilbergssonar framkvæmdastjóra
var Bón- og þvottastöðin fyrsta sjálf-
virka bílaþvottastöðin á Íslandi en hún
var stofnuð árið 1968. Rekstur stöðv-
arinnar hófst í Sóltúni og var þar sam-
fleytt í nærri 40 ár – eða allt til ársins
2007.
Hjá Bón- og þvottastöðinni er
einungis beitt handþvotti, engir kústar
eða burstar notaðir, enda telur Ari
það veita besta árangurinn og skila
mun meiri gæðum: „Í boði hjá okk-
ur er öll sú meðferð sem nýtist best til
þess að þrífa bílinn og bóna hann af
natni, eins og tjöruhreinsun, háþrýsti-
þvottur, handþvottur, bón og þurrkun
á sjö mínútum,“ segir Ari. Bílaþvottur-
inn er allur unninn í höndunum með
svömpum, bón er síðan sett á bílinn
og loks þurrkað með míkrófíber-klút-
um ásamt því að þurrkað er úr fölsum
bílanna. „Við leggjum einungis stund á
handþvott sem við teljum veita besta
árangurinn og notum hvorki kústa né
bursta.“
Byltingarkennd, glæný leið til að
bóna bílinn
„Bón- og þvottastöðin tók nýlega í
notkun glænýja bónaðferð sem kall-
ast Gullfoss og hefur slegið í gegn hjá
okkur,“ segir Ari. Um er að ræða þá
skemmtilegu viðbót að fá allsherj-
ar bón á bílinn sem endist mun leng-
ur og veitir líka aukinn gljáa. Gullfoss
er ný og byltingarkennd aðferð við að
bera bón á bíla. Bíllinn fer þá í gegnum
vegg af þykku lagi af bóni sem rennur
í alla króka og kima á bílnum auk þess
sem litadýrðin gleður augað.
Ummæli ánægðra viðskiptavina:
„Algjörir snillingar og frábær þjónusta.“
„5 stjörnu þvottastöð!“
„Ég ætla aldrei aftur að þvo bílinn minn
sjálfur …“
„Fæ alltaf afbragðsþjónustu og glamp-
andi hreinan bíl hjá þessum snilling-
um!“ n
Bón- og þvottastöðin
Grjóthálsi 10 110 Reykjavík
Sími: 588-1010
Opið virka daga: 8.00–18.00
laugardaga: 10.00–16.00
www.bon.is