Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Qupperneq 17
Vikublað 14.–16. mars 2017 Kynningarblað - Með allt á hreinu 3 Einungis handþvottur – engir kústar eða burstar Bón- og þvottastöðin B ón- og þvottastöðin státar af sérlega glæsilegri bílaþvotta- stöð að Grjóthálsi 10, við hliðina á Skeljungi við Vestur- landsveginn. Að sögn Ara Raf- ns Vilbergssonar framkvæmdastjóra var Bón- og þvottastöðin fyrsta sjálf- virka bílaþvottastöðin á Íslandi en hún var stofnuð árið 1968. Rekstur stöðv- arinnar hófst í Sóltúni og var þar sam- fleytt í nærri 40 ár – eða allt til ársins 2007. Hjá Bón- og þvottastöðinni er einungis beitt handþvotti, engir kústar eða burstar notaðir, enda telur Ari það veita besta árangurinn og skila mun meiri gæðum: „Í boði hjá okk- ur er öll sú meðferð sem nýtist best til þess að þrífa bílinn og bóna hann af natni, eins og tjöruhreinsun, háþrýsti- þvottur, handþvottur, bón og þurrkun á sjö mínútum,“ segir Ari. Bílaþvottur- inn er allur unninn í höndunum með svömpum, bón er síðan sett á bílinn og loks þurrkað með míkrófíber-klút- um ásamt því að þurrkað er úr fölsum bílanna. „Við leggjum einungis stund á handþvott sem við teljum veita besta árangurinn og notum hvorki kústa né bursta.“ Byltingarkennd, glæný leið til að bóna bílinn „Bón- og þvottastöðin tók nýlega í notkun glænýja bónaðferð sem kall- ast Gullfoss og hefur slegið í gegn hjá okkur,“ segir Ari. Um er að ræða þá skemmtilegu viðbót að fá allsherj- ar bón á bílinn sem endist mun leng- ur og veitir líka aukinn gljáa. Gullfoss er ný og byltingarkennd aðferð við að bera bón á bíla. Bíllinn fer þá í gegnum vegg af þykku lagi af bóni sem rennur í alla króka og kima á bílnum auk þess sem litadýrðin gleður augað. Ummæli ánægðra viðskiptavina: „Algjörir snillingar og frábær þjónusta.“ „5 stjörnu þvottastöð!“ „Ég ætla aldrei aftur að þvo bílinn minn sjálfur …“ „Fæ alltaf afbragðsþjónustu og glamp- andi hreinan bíl hjá þessum snilling- um!“ n Bón- og þvottastöðin Grjóthálsi 10 110 Reykjavík Sími: 588-1010 Opið virka daga: 8.00–18.00 laugardaga: 10.00–16.00 www.bon.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.