Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Page 24
Vikublað 14.–16. mars 201720 Menning
H
ugmynd kviknaði eftir að ég
fór á námskeið um vinnslu
leiksýninga í sögumannsstíl.
Þar vorum við að vinna með
sögur forfeðra og formæðra
okkar. Ég fann sögu af því hvernig
langamma mín og langafi kynntu-
st og fóru að vera saman. Þá fór ég
mikið að hugsa um hvernig allt virðist
vera svo einfalt og auðvelt í gömlum
ástarsögum – ólíkt því hvernig mér
sýndist þetta vera í dag. Í kjölfarið fór
ég að velta fyrir mér hvort þetta hefði
í raun og veru verið svona auðvelt og
hvort ástarsambönd hefðu þá breyst
svona mikið í gegnum í tíðina,“ segir
Jenný Lára Arnórsdóttir, leikkona og
einn höfunda heimildasýningarinnar
Elska - Ástarsögur Norðlendinga sem
sýnd hefur verið við góðan orðstír í
samvinnu við Menningarfélag Akur-
eyrar.
Sýningin er unnin beint upp úr
viðtölum við fimm norðlensk pör, á
mismunandi aldri, með mismunandi
bakgrunn og lífsskoðanir, sem eiga
það þó öll sameiginlegt að vera í far-
sælum ástarsamböndum. Ásamt
Jennýju leikur Jóhann Axel Ingólfsson
í verkinu og það er Agnes Wild sem
leikstýrir.
Hvað lætur sambandið virka?
„Eins og margir í kringum mig
hafði ég verið að brasa við að vera
í samböndum, og þau gengu mjög
misvel hjá fólki. Svo er ég sjálf skiln-
aðarbarn og hafði því aldrei verið
með neina sérstaka fyrirmynd að
samböndum sem virkuðu. Ég var því
mikið að velta fyrir mér hvað það væri
sem gerði það að verkum að ákveðin
sambönd virkuðu en önnur ekki,“
segir Jenný.
„Ég ákvað að leita að fólki í öllum
aldurshópum, bæði eldra fólki sem
hefur verið í sambandi í áratugi og
ungum pörum um tvítugt – við þekkj-
um öll einhver pör sem allir virðast
vissir um að muni endast saman. Það
var enginn sem bauð sig fram að fyrra
bragði en ég fékk margar ábendingar.
Ég hafði samband og ef fólk sam-
þykkti að taka þátt fór ég í heimsókn
og við spjölluðum um sambandið,
allt frá upphafi og til dagsins í dag. Ég
spurði um erfiðustu tímabilin í sam-
bandinu, mestu gleðistundirnar og
allt þar á milli. Við snertum á svip-
uðum hlutum í öllum viðtölunum
þannig að það eru ákveðnir þræðir
sem tengja þau saman í sýningunni.
Við byrjum á því að heyra hvernig
pörin kynntust, heyrum svo um það
erfiðasta sem þau hafa upplifað og
svo framvegis.“
Þú segir að þú hafir verið að velta
þessu fyrir þér vegna eigin erfiðleika
með að tolla í samböndum. Komst þú
að einhverju persónulegu í þessu ferli?
„Fyrir svona þremur árum hélt ég
vinnustofu hjá Leikfélagi Akureyrar,
og þá byrjaði ég að vinna úr fyrstu
viðtölunum fyrir alvöru. Þá fór ég að
velta því fyrir mér hvað væri sameig-
inlegt með þessu fólki. Það var þarna
sem ég komst að því að ég sjálf væri
líklega ekki nógu þolinmóð í sam-
böndunum,“ segir Jenný Lára og hlær.
Þolinmæði, svigrúm og traust
„Mér fannst allir eiga það sameigin-
legt að þeir sýndu þolinmæði, fólk gaf
hvert öðru svigrúm og leyfði hinum
aðilanum að vera hann sjálfur. Svo
er traust auðvitað alltaf mikilvægt,“
segir hún. „Að velta þessu fyrir mér
breytti miklu fyrir mig persónulega
því þremur mánuðum seinna hitti ég
manninn minn – og við erum ennþá
saman í dag.“
Eitt af því sem þú sagðist hafa verið
að velta fyrir þér er hvort ástarsam-
bönd hafi á einhvern hátt verið ein-
faldari á tímum langömmu þinnar og
langafa. Komstu að einhverri niður-
stöðu hvað það varðar?
„Ég held að þau hafi ekki verið
einfaldari, en það er eins og fólk hafi
kannski verið meira tilbúið til að tak-
ast á við vandamálin, frekar en að
hlaupa bara í burtu frá þeim.“
Sýningin fékk góðar undirtektir
þegar hún var sýnd í nóvember í fyrra
í Hofi og var því ákveðið að halda
eina aukasýningu í Samkomuhúsinu
á föstudag.
„Viðtökurnar hafa verið mjög góð-
ar. Þetta er algjör „feel-good“ sýning
og áhorfendur ganga út með bros á
vör og hamingju í hjartanu. Þótt þetta
sé frekar tilraunakennt leikhús þá
virðist þetta höfða til margra og okk-
ur heyrist hinn almenni áhorfandi
vera mjög ánægður. Hins vegar hefur
ekki tekist að fá gagnrýnendur á sýn-
inguna – það getur verið svolítið erfitt
hér fyrir norðan, sérstaklega þegar
maður er í sjálfstæðum leikhóp sem
er bara að sýna í samstarfi við Leik-
félagið.“
Elska - Ástarsögur Norðlendinga
verður sýnt í Samkomuhúsinu á
Akur eyri Laugardaginn 18. mars. n
M
enningarverðlaun DV
verða veitt í 39. skipti
við hátíðlega athöfn
í Iðnó á morgun,
miðvikudaginn 15. mars,
klukkan 17.00. Boðið
verður upp á léttar
veitingar og tón-
list. 45 verkefni,
hópar og einstak-
lingar sem sköruðu
fram úr í menningarlífinu
árið 2016 eru tilnefndir til
verðlaunanna í níu flokkum;
kvikmyndum, leiklist, dansi, tón-
list, myndlist, arkitektúr, hönnun,
bókmenntum og fræðum, en auk
þess veitir forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson, sérstök heiðursverð-
laun og lesendaverðlaun dv.is
verða afhent.
Enn stendur yfir net-
kosning á dv.is þar sem
lesendum gefst tæki-
færi til að kjósa þá
tilnefningu sem
þeim líst best á –
sú tilnefning sem
hlýtur flest atkvæði
í netkosningunni sem
lýkur á miðnætti hreppir
lesendaverðlaun dv.is. Hægt
er að skoða allar tilnefningarnar
og taka þátt í kosningunni á www.
dv.is/fbkosning/menningarverdlaun-
dv-2016 n
Menningarverðlaun DV
afhent í Iðnó á morgun
Níu flokkar, lesendaverðlaun og heiðursverðlaun
Lærði um ástina við
gerð leikritisins
n Jenný Lára Arnórsdóttir er
hugmyndasmiður og aðalleikkona
heimildaleikritsins Elska
n Byggt á ástarsögum fimm
norðlenskra para „Að velta þessu
fyrir mér breytti
miklu fyrir mig persónu-
lega því þremur mánuð-
um seinna hitti ég mann-
inn minn – og við erum
ennþá saman í dag
Ást er … Jenný Lára og
Jóhann Axel í hlutverk-
um sínum í Elsku, en
verkið er unnið upp
úr raunverulegum
ástarsögum fimm
norðlenskra para.
Mynd daníel StarraSon
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Mynd daníel
StarraSon
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - hannyrdabudin.is
Póst-sendum um allt land
Garn í sjöl