Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2017, Síða 32
Vikublað 14.–16. mars 2016
20. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 554 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Álftarárás á
Álftanesi?
Svala hrósar happi
n Svala Björgvins stóð uppi
sem sigurvegari í Söngvakeppni
Sjónvarpsins síðastliðið laugar-
dagskvöld en hún flutti þá lag-
ið Paper af miklu öryggi. Svala
greindi frá því á Facebook-síðu
sinni á mánudag að hún hrósaði
happi yfir að keppnin fór fram
um helgina en ekki á mánu-
daginn. Ástæðan var sú á mánu-
dagsmorgun vaknaði hún
„með stærstu bólu ever
á hökunni“. Hefði bólan
látið sjá sig á laugar-
daginn væri hætt við
að hún hefði stolið
sviðsljósinu. Svala hef-
ur ákveðið að nefna
bóluna Nínu.
Böðum túristana
n „Ég var mögulega óvinsælasta
manneskjan á Laugarvatni áðan
þegar ég tók að mér endurgjalds-
laust að fræða ferðamenn um
baðvenjur áður en haldið er til
laugar,“ segir Viktoría Hermanns-
dóttir, fréttakona á RÚV, á Face-
book og bætir við að átakið hafi
ekki vakið mikla lukku. Hún hafi
gert þetta tilneydd „enda er það
ógeðslegast í heimi þegar fólk fer
óbaðað ofan í.“ Vill Viktoría að
ferðaþjónustan fari í átakið „Böð-
um túristana.“ Annar fjölmiðla-
maður, Jóhann Hlíðar Harðar-
son, segir að Íslendingar kunni
aðeins eina reglu og hún sé að
baða sig áður en farið er í sund.
„Aðrar reglur kunna þeir alls
ekki; þeir kunna ekki að nota
stefnuljós, þeir kunna ekki að
aka á tveggja akreina götum,
þeir kunna ekki að fara í rúllu-
stiga, þeir eru alveg að læra að
standa í biðröð, en af því að þeir
kunna að baða sig í sundlaugum,
þá finnst þeim svo roooosalega
skrýtið að aðrar þjóðir heims
kunni ekki þá reglu.
Öðrum þjóð-
um finnst
skrýtið að
Íslendingar
líti á þessa
reglu sem
mikilvæg-
ustu reglu
alheimsins
og virði ekki
aðrar reglur.“
„KviKindið var Snar!“
Ísól Björk og tvö börn hennar urðu fyrir árás álftar á Álftanesi um helgina
H
ún gekk fyrst hægt að okkur
en kom svo bara á fullri
ferð,“ segir Ísól Björk Karls-
dóttir í samtali við DV. Hún
varð fyrir árás álftar þegar
sem hún var á gangi með börnin sín
á Álftanesi um helgina. Ísól greindi
frá atvikinu á Facebook en álftir geta
verið mjög grimmar. Börn Ísólar,
fjögurra og fimm ára gömul, voru
með í för og var þeim að sögn henn-
ar mjög brugðið. „Þau urðu mjög
hrædd, sérstaklega dóttir mín en
álftin réðst mikið á hana.“
Álftir geta verið mjög varasamar
við óðul eða unga sína en álftin verpir
yfirleitt seint í apríl eða maí. Fullorðin
álft er átta til tólf kíló að þyngd og hef-
ur vænghaf upp á 2,2 til 2,4 metra.
Ísól segir á Facebook að hún
muni hugsa sig tvisvar um áður en
hún stingi upp á því næst að fara
með börnin í göngutúr til að skoða
endurnar á tjörninni. Um hafi verið
að ræða þá stærstu álft sem sögur fari
af. „Hvæsandi og argandi, baðandi
út vængjunum beit hún Rebekku í
puttana og reif svo af henni húfuna.
Kvikindið var snar!“ skrifar hún.
Ísól segir að fleiri álftir hafi verið
skammt hjá en aðeins þessi eina
réðst til atlögu. Hún viðurkennir
að atvikið sé svolítið hlægilegt, eft-
ir á að hyggja, en að henni hafi ekki
verið skemmt meðan árásin stóð
yfir. n
baldur@dv.is
Hraust Ísól tókst að flæma álftina á brott eftir nokkra stund.
Ásdís rán opnar
umboðsskrifstofu
E
ins og flestir vita þá þarf all-
ar týpur í sjónvarp og auglýs-
ingar ekki bara „professional“
leikara eða módel. Þetta gef-
ur fólki tækifæri til þess að
sýna sjálft hæfileika sína,“ segir
athafnakonan og fyrirsætan
Ásdís Rán Gunnarsdótt-
ir en hún hefur nú kom-
ið á laggirnar nýrri síðu,
talentbook.is og hyggst
leiða saman fagfólk og
áhugafólk innan aug-
lýsinga-, tísku- og kvik-
myndageirans.
Í samtali við
DV segir Ás-
dís að ekki sé
beinlínis um
hefðbundna
umboðs-
skrifstofu að
ræða.
„Þetta er
hugmynd sem
ég er búin að
vera að vinna
að og þróa síð-
ustu mánuði.
Þetta er ekki almenn umboðsskrif-
stofa heldur frekar „casting tool“ eða
gagnagrunnur af fólki á hinum ýmsu
sviðum í auglýsinga-, tísku- og kvik-
myndaheiminum. Þarna koma allir
saman undir einu þaki og bjóða fram
þjónustu sína og hæfileika, hvort sem
það eru módel, leikarar, áhugaleikar-
ar, fólk í auglýsingar, krakkar, fitness-
og íþróttafólk, ljósmyndarar,
förðunar eða hárgreiðslufólk
eða skemmtikraftar.
Fyrirtæki, leikstjórar
og aðrir geta svo á fljót-
legan og auðveldan
hátt skráð sig og leitað
að réttu andlitunum
og öðru hæfileikafólki
í sín verkefni, sett inn
auglýsingar og leitað
eftir fólki eða haft sam-
band við meðlimi,“
segir Ásdís jafn-
framt en hún
rak áður um-
boðsskrifstofu
fyrir fyrirsæt-
ur á Íslandi
og í Svíþjóð
og er því öll-
um hnútum
kunnug inn-
an geirans.
Hún segir síðuna ætlaða bæði
áhuga- og fagfólki innan bransans
og getur hver sem er stofnað þar að-
gang.
„Það eru flokkar fyrir áhugaleik-
ara og fólk í auglýsingar sem koma
að góðum notum fyrir þá sem eru að
byrja og langar í reynslu. Fyrir lengra
komna er þetta líka gott „exposure“
þar sem verður mikið af erlendum og
innlendum aðilum að leita á síðunni.
Á módelskrifstofum þá týnast oft
margir í fjöldanum og fá ekki nægja
athygli. Þannig að þetta er ekkert
annað en frábært verkfæri fyrir alla í
þessum iðnaði.“
Hún hyggst á næstu mánuðum
byggja upp og þróa fyrirtækið og
kveðst vonast til að fyrir tæki verði
ófeimin við að nýta sér þjónustuna.
„Það á eftir að taka sinn tíma þar sem
þetta er allt sérhannað frá grunni og
flókinn og mikill gagnagrunnur og
tölvukerfi sem liggur að baki síðunni.
En það á vonandi á eftir að koma að
góðum notum fyrir sem flesta.“ n
LJóSmynd/Saga Sig.
mynd deniS mutLu
auður Ösp guðmundsdóttir
audur@dv.is