Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Blaðsíða 4
4 Helgarblað 29. september 2017fréttir P íratar eru eini íslenski stjórnmálaflokkurinn sem mun halda prófkjör í öll­ um kjördæmum til þess að ákveða hvernig frambjóðendum verður raðað upp á lista flokksins. Skammur tími er til stefnu fram að kosningum og því treystu aðrir flokkar sér ekki til þess að eyða tíma sínum og orku í að skipuleggja um­ fangsmikil prófkjör. Það sem gerir Pírötum hins vegar kleift að efna til prófkjörs er rafrænt kosningakerfi þeirra sem nýtist vel í slík prófkjör sem og til að kjósa um ýmsar til­ lögur innan flokksins. Um leyni­ legar kosningar er að ræða en svo er þó ekki í raun. Slíkt er nánast ógerningur þegar um tölvukerfi er að ræða því einhver þarf að hafa aðgang til þess að lagfæra mögu­ legar villur eða bregðast við uppá­ komum. Þeir sem hafa aðgang að kerfinu geta séð hverjir eru bún­ ir að kjósa og hvað þeir kusu. Þá geta þessir aðilar breytt atkvæð­ um flokksfélaga hugnist þeim það. Þrátt fyrir það bera þeir Píratar, sem DV hafði samband við, fullt traust til kerfisins og segja það alls ekki óöruggara en hefðbundnar pappírs kosningar. Allt hægt ef kunnáttan er fyrir hendi Höfundar kerfisins eru fimm, Smári McCarthy, Helgi Hrafn Gunnarsson og Björn Leví Gunnarsson, sem allir hafa setið eða sitja á þingi fyrir Pírata, og Tómas Árni Jónsson og Bjarni Rúnar Einarsson. Einn þeirra staðfestir í skriflegu svari til DV að kerfisstjórar hafi víðtækan aðgang til að fikta við kerfið. „Þegar um er að ræða kerfisaðgang að tölvum þá geta viðkomandi einstaklingar gert allt ef þeir hafa kunnáttuna til þess,“ segir þingmaðurinn Björn Leví Gunnarsson og einn höfunda kerfisins. Hann segir að nýlega hafi verið skipt um kerfisstjóra þar sem fyrrverandi kerfisstjóri hafi ákveðið að gefa kost á sér í próf­ kjöri flokksins. Hann vísað á fram­ kvæmdastjóra flokksins varðandi betri upplýsingar um stöðu mála. Að þessi möguleiki sé til staðar hugnast ekki öllum. Einstaklingur, sem vill ekki láta nafn síns getið, fullyrðir að framkvæmdin sé ólýð­ ræðisleg. „Þessi vafi gerir það að verkum að kerfið er ónothæft. Það er enginn að segja að þeir sem að hafi þennan aðgang séu að aðhaf­ ast neitt misjafnt. Að þetta sé hægt gerir það að verkum að þetta fyrir­ komulag á ekkert skylt við heiðar­ legt kosningakerfi. Það liggur ekki einu sinni fyrir hverjir það eru sem hafa þennan aðgang og það skap­ ar tortryggni milli þeirra frambjóð­ enda, sem viti hverjir þetta eru, og þeirra sem hafa ekki hugmynd um það,“ segir viðmælandinn. Einn kerfisstjóri og annar til vara Í skriflegur svari frá Erlu Hlynsdóttur, öðrum af fram­ kvæmdastjórum Pírata, kemur fram að á meðan kosning stend­ ur yfir hafi enginn frambjóðandi aðgang að þeim vélum sem hýsi kosningakerfið. „Tveir kerfisstjórar sjá til þess að bregðast við ef eitt­ hvað skyldi fara úrskeiðis. Annar þeirra er Bjarni Rúnar Einarsson, tæknilegur ábyrgðarmaður kosn­ inganna, hinn er Hrafnkell Brimar Hallmundsson og er hann til vara ef Bjarni skyldi forfallast,“ segir Erla. Sá varnagli er hins vegar sleginn að allar aðgerðir kerfisstjóranna eru rekjanlegar og því geti eftirlits­ aðilar gengið úr skugga um að ekkert misjafnt fari fram meðan á kosningum stendur. „Það er haldið utan um hugbúnaðinn sjálfan með breytingastjórnunarkerfi sem heit­ ir „git“. Það er því mjög auðvelt að sjá hvort breytingar hafi verið gerð­ ar á hugbúnaðinum miðað við þá útgáfu sem er gefin út opinberlega, hvenær þær breytingar hafi verið gerðar og hvers eðlis þær eru,“ segir Erla. Að kosningunum loknum eru atkvæði síðan gerð ónafngreinan­ leg og þau geymd. „Það er því hægt að endurtelja hvenær sem er með þeirri hugbúnaðarútgáfu sem menn kjósa,“ segir Erla enn fremur. Aðspurð hvort að allir fram­ bjóðendur í prófkjörum Pírata séu meðvitaðir um hvaða einstak­ lingar hafi aðgang að kosninga­ kerfinu, segir Erla: „Þetta hefur verið tilkynnt með óformlegum hætti og allir áhugasamir um þess­ ar upplýsingar hafa fengið þær.“ Frambjóðendur treysta kerfinu DV heyrði hljóðið í nokkrum fram­ bjóðendum flokksins í yfirstand­ andi prófkjörum. Mjög misjafnt var hvort frambjóðendur vissu hverjir væru kerfisstjórar. Þrátt fyrir það báru allir frambjóðendur fullkomið traust til kerfisins. „Ég þekki til þessara manna sem eru kerfisstjórar og ég veit að það er fræðilegur möguleiki að fikta eitthvað við kerfið. Til þess þarf aftur á móti mikla þekk­ ingu, það er talsvert mikið ves­ en og líkurnar á því að það hægi á afgreiðslu eru það miklar að ég hef hverfandi áhyggjur af þessu,“ segir Hans Jónsson, sem býður sig fram í Norðausturkjördæmi. Hans bendir á að í kosningum til Alþingis séu innsigli og eftirliti lengi verið ábótavant. „Að mínu mati er þetta kosningakerfi okkar Pírata að minnsta kosti jafn öruggt og kerfið sem við treystum á við al­ þingiskosningarnar,“ segir Hans. „Þetta kosningakerfi fékk eld­ skírn í fyrra þegar fara þurfti í aðr­ ar kosningar í þessu kjördæmi út af ásökunum um smölun og síðan staðfestingarkosningar í kjölfarið á því. Þá hefur það reynst Pírötum vel við að kjósa um hin ýmsu mál­ efni innan okkar raða,“ segir Ragn­ heiður Steina Ólafsdóttir, sem býður sig fram í Norðvesturkjör­ dæmi. Hún gekk frekar nýlega til liðs við flokkinn og þekkir ekki til þeirra sem að hafa aðgang að kerfinu. „Ég hef engar áhyggjur af þessu og ber fullt traust til kerfis­ ins. Ég efast ekki um að ég get auð­ veldlega kallað eftir þessum upp­ lýsingum,“ segir Ragnheiður. n Kerfisstjórar geta breytt úrslitum prófkjörs Pírata n Ríkt eftirlit með aðgerðum kerfisstjóranna n Frambjóðendur treysta kerfinu Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Björn Leví Gunnarsson Er einn af fimm höfundum kosningakerfis Pírata. Erla Hlynsdóttir Segir að mjög auðvelt sé að sjá hvort breytingar hafi verið gerðar á hugbúnaðinum. Hans Jónsson Telur kerfið ekki síður öruggt en hefðbundar pappírskosningar. „Þegar um er að ræða kerfis aðgang að tölvum þá geta viðkomandi einstaklingar gert allt ef þeir hafa kunnáttuna til þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.