Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2017, Page 17
Helgarblað 29. september 2017 fréttir 17
Stjórnmálaleiðtogar svara um kannabis
1. Mun ykkar flokkur styðja frumvarp Pawels Bartoszek eða sambærilegt frumvarp um lögleiðingu kannabis sem gæti komið fram?
2. Hver er ykkar stefna varðandi ræktun, sölu og vörslu kannabisefna?
3. Hefur þú prófað kannabis einhvern tímann á lífsleiðinni?
Alþýðufylkingin
Þorvaldur Þorvaldsson
1. „Ég hef ekki kynnt mér það
nægilega vel en við höfum stutt
tillögur um skaðaminnkun sem
Píratar lögðu fram á sínum
tíma.“
2. „Fyrst og fremst að afglæpa
væða neysluna en beita sér
gegn dreifingu efnanna. Við
munum hugsanlega móta ítar
legri stefnu á næstunni.“
3. „Nei, reyndar ekki. Ég kynntist
þessu þegar ég var ungur maður og
fannst þetta ekki áhugavert. Ég leiddi
þetta hjá mér þegar ég lenti í slíkum að
stæðum og lét mig hverfa.“
Björt framtíð
Óttarr Proppé
1. „Ég styð afglæpavæðingu og
skaðaminnkandi úrræði. Mér
finnst þetta frumvarp ganga of
langt eins og það er sett fram.“
2. „Skaðaminnkandi úrræði
eru mikilvæg og afglæpavæð
ing er hluti af því að koma í
veg fyrir einangrun neytenda
kannabisefna.“
3. „Já ég hef prufað kannabisefni
þegar ég var yngri og bjó í Banda
ríkjunum. Oftar en einu sinni en ekki
mjög oft því ég var aldrei mjög hrifinn
af þessu.“
Dögun
Pálmey Gísladóttir
1. „Nei. Út frá heilbrigðissjónar
miði myndi það ekki koma til
greina af minni hálfu en ég get
ekki talað fyrir alla.“
2. „Þetta er fíkniefni, þetta er
misnotað og það er mjög erfitt
að koma á eftirliti með rækt
un og sölu. Lögleiðing myndi
sennilega telja fólki trú um að
það yrði eftirlit með þessu en
ég sé það ekki gerast. Misnotkun
in myndi halda áfram og þjóðfélagið
bíða skaða af.“
3. „Nei, ég hef ekki gert það.“
Flokkur fólksins
Inga Sæland
1. „Nei.“
2. „Þetta varðar við lög. En aft
ur á móti get ég ekki séð neitt
því til fyrirstöðu að leyfa þeim
sem eru taugasjúklingar eða
alvarlega veikir að nýta sér
lækningarmátt þessarar jurt
ar. Við myndum vilja hafa þetta
lyfseðilsskylt.“
3. „Nei.“
Framsóknarflokkurinn
Sigurður Ingi Jóhannsson
1. „Við höfum ekki tekið afstöðu til frumvarps sem við
höfum ekki séð, það er hvernig það myndi líta út í
raun og veru. Hluti forvarna er að horfa opnum aug
um á vandann en okkar fyrsta skoðun er ekki sú að
vandinn verði leystur með því að auka aðgengið.“
2. „Þegar kemur að lýðheilsumálum, eins og til
dæmis áfengismálum, þá höfum við talað fyrir því
að það þurfi miklu meira fjármagn í fræðslu fyrir
börn, unglinga og foreldra, og forvarnir. Við höfum
lesið skýrslur og hlustað á sérfræðinga sem hafa bent
á miklar afleiðingar aukningar kannabisneyslu á síð
ustu árum, eins og til dæmis geðrof. Þetta hefur ekki ver
ið rannsakað nóg.“
3. „Nei, það hef ég ekki gert.“
Samfylkingin
Logi Einarsson
1. „Við erum á móti lögleiðingu
kannabisefna. Mér finnst það
skrítin skilaboð, nú þegar birtist
fjöldi frétta af ungu fólki sem
glímir við geðræn vandamál
vegna hassneyslu, að leggja
þetta frumvarp fram núna.“
2. „Við viljum milda refsistefnu
þannig að refsing við vörslu
neysluskammta sé ekki þung eða
jafnvel engin. Fyrst og fremst þarf
að leggja pening í forvarnir og við
erum tilbúin að koma að mótun stefnu
sem dregur úr notkun.“
3. „Já, ekki oft.“
Píratar
Birgitta Jónsdóttir
1. „Ég get ekki svarað fyrir þingflokkinn. Ég er ekki á
leiðinni í framboð.“
2. „Stefna Pírata í þessum málum er að þetta verði
gert í áföngum og við viljum byrja á afglæpavæð
ingu. Fólk lendir í vandræðum út af sakaskránni,
til dæmis með að fá vinnu. Við erum á móti blóð
sýnatöku á vinnustöðum og höfum lagt áherslu á
að lögleiða lyfjahamp. Persónulega er ég hlynnt því
að sem mest sé löglegt.“
3. „Já, það hefur áður komið fram. Ég reykti kannabis
þegar ég var unglingur en það fer mjög illa í mig. En ég
er heldur ekki hrifin af áfengi. Mér finnst best að vera með
skilningarvitin í lagi.“
Viðreisn
Benedikt Jóhannesson
1. „Ég hef tekið þá prinsipp
afstöðu að svara aldrei skoðana
könnunum af þessu tagi. Þegar
verið er að spyrja um þingmál
þá svara ég því í þinginu.“
2. „Ég man nú ekki til þess að
það hafi verið sérstaklega fjall
að um þessi mál í stefnuskrá
flokksins.“
3. „Nei.“
Sjálfstæðisflokkurinn
Bjarni Benediktsson
1. „Nei, mér finnst algjörlega frá
leitt að ræða þetta mál núna.“
2. „Ég vísa í stefnu flokksins,
við höfum ekki verið að leggja
þetta til.“
3. „Nei.“
Vinstri græn
Katrín Jakobsdóttir
1. „Ég hef ekki lesið þetta frum
varp en við höfum beitt okkur
fyrir afglæpavæðingu en ekki
lögleiðingu.“
2. „Sú stefna að eiga við fíkni
efnavandann með stríðstóni
og harðri refsistefnu hefur
beðið skipbrot. Við teljum mik
ilvægara að horfa til afglæpa
væðingar, en með lögleiðingu
væri verið að taka málið talsvert
lengra.“
3. „Nei.“