Fréttablaðið - 13.11.2017, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 13.11.2017, Blaðsíða 11
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA L Y G I L E G LÍFSREYNSLUSAGA Sönn saga um gleði og glatað sakleysi Jón Gnarr skrifar sögu konu sinnar, Jógu „Einstök saga af sjálfstæðri stúlku. Hin unga Jóga er bæði Lína Langsokkur og Salka Valka – og svo miklu meira.“ Auður Jónsdóttir, rithöfundur Meðal verkefna nýs Alþingis og næstu ríkisstjórnar verður að byggja upp traust í samfélaginu. Ein forsenda trausts er að menn segi deili á sér. Þetta á við í viðskiptalífinu ekki síður en í daglegum samskiptum manna. Íslendingar eru aðilar að alþjóð- legu ríkjasamstarfi Financial action task force um aðgerðir gegn pen- ingaþvætti o.fl., en í því felst m.a. að upplýsa beri um endanlegt eignarhald lögaðila.1) En Ísland fær þá umsögn að þessi skuldbinding sé aðeins uppfyllt að hluta til (e. „partially compliant“).1,2) Átakanleg mynd af ástandi þess- ara mála hefur verið að birtast almenningi í fjölmiðlum, vegna gagnaleka um huldufélög í skatta- skjólum. Þær upplýsingar gefa bæði tilefni og tækifæri til að færa þessi mál til betri vegar. Fjölmiðlar hafa þar mikilvægu hlutverki að gegna, með því að leita svara og upplýsa um eðli þessara mála og að styðja við frjálsa og gagnrýna umræðu um þau. Bankar munu hafa stofnað til fjölda eignarhaldsfélaga fyrir hönd viðskiptavina sinna á aflandssvæð- um, þar sem enginn virðist hafa átt að geta vitað hver stæði á bak við þau. Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru meðal þeirra sem hafa borið að hafa fengið slíka þjónustu.3) Þar sem fjármálastofnanir eru háðar starfs- leyfi stjórnvalda, þurfa að fara að íslenskum lögum og sæta eftirliti Fjármálaeftirlitsins, ætti stjórn- völdum að vera í lófa lagið að koma þessum málum í lag. Leita ætti eftir samstarfi um það við greinina, enda mjög í hennar eigin þágu að byggja upp traust almennings til fjármála- fyrirtækja. Þá virðist dulið eignarhald vera mikil lenska í viðskiptalífinu. Ákvæði ýmissa laga sem gilda um viðskiptalífið virðast haldlítil á meðan hægt er að dylja eignarhald; s.s. ákvæði skattalaga, samkeppnis- laga og laga gegn hringamyndun eða innherjaviðskiptum. Svo virðist sem berja þurfi í einhverja bresti í lagaumhverfinu, s.s. í lögum um eignarhaldsfélög. Með því að fullt gagnsæi ríkti um eignarhald yrðu aðilar markaðarins jafnir fyrir slíkum lögum í reynd. Opinberir aðilar munu jafnvel hafa stofnað og átt í viðskiptum við huldufélög á aflandssvæðum. Það ættu að vera hæg heimatökin fyrir stjórnvöld að setja sjálfum sér og þeim stofnunum sem undir þau heyra þá reglu að eiga ekki í slíkum viðskiptum. Loks hefur sumu venjulegu fólki sem á peninga verið talin trú um að réttmæt eign þess sé best geymd og varin í skattaskjóli. Jafnvel þó svo að þeir peningar verði þá lagalega séð ekki í eigu viðkomandi, heldur umrædds félags.4) (–„Peningarnir eiga sig sjálfir“). Nokkuð virðist vera um slíka tilhögun hér á landi. Farvegur fyrir spillingu Í fræðilegri úttekt Cooley og Sharm- an2) er því lýst hvernig dulið eignar- hald er ásamt fleiru farvegur fyrir spillingu og peningaþvætti víða um heim. Einnig hvernig aðilar í bankastarfsemi, endurskoðun, fast- eignasölu o.fl. löglegum og virtum greinum hjálpa viðskiptavinum sínum að dyljast og skaffa lagalega staðgengla í þeirra stað, í því skyni að veita þeim skjól frá eftirlits- og löggæslustofnunum. Viðmælendur höfundanna við eftirlits- og lög- gæslustofnanir voru flestir á því að sýndarfyrirtæki (e. shell companies) með duldu eignarhaldi væru stærsta hindrunin í viðureign þeirra við alþjóðleg efnahagsbrot.2) Samtökin Global witness hafa um margt verið brautryðjendur í að opna umræðuna um dulið eignar- hald og andæfa því,5) en fleiri hafa lagt þeirri baráttu lið. Skilningur hefur vaxið og vitund aukist um hvað við er að eiga. Og mikilvæg skref hafa verið stigin til að stemma stigu við duldu eignarhaldi, bæði í löggjöf einstakra ríkja og í alþjóða- samstarfi. Það væri verðugt verkefni fyrir Alþingi og næstu ríkisstjórn að hafa forystu um að koma þessum málum í lag. Hvernig væri að grunnur yrði lagður að því í stjórnarsáttmála næstu ríkisstjórnar, að losa samfélag okkar undan þeirri meinsemd sem dulið eignarhald er? Heimildir 1) Heimasíða The Financial Action Task Force (FATF) http://www.fatf-gafi.org 2) Alexander Cooley, Jason C. Sharman : Transnational Corrup- tion and the Globalized Indivi- dual Perspectives on Politics (gefið út af APSA, Americal Polit- ical Science Assocition) Volume 15, Issue 3 September 2017 , pp. 732-753 Published online: 18 Aug- ust 2017 https ://doi .org /10.1017/ S1537592717000 937 3) Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son: Málalok. Vísir 2.10.2017 http:// www.visir.is/g/2017171009926 4) The Perfect Offshore Asset Protecion Plan Structure - Belize Trust, LLC w/ Offshore Bank Account https ://www.youtube.co m/ watch? v=DHNHas rOqdE&feature=y ou tu.be 5) Charmian Gooch: My wish: to launch a new era of openness in business https://www.ted.com/talks/ charmian_gooch_ my_wish_to_launc h_a_new_e ra_of_ope nness_in_bus- iness Meinsemdin dulið eignarhald Sigurður Magnason læknir S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 1 3 . n ó v e M B e R 2 0 1 7 1 3 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 2 -3 3 7 C 1 E 3 2 -3 2 4 0 1 E 3 2 -3 1 0 4 1 E 3 2 -2 F C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.