Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.11.2017, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 13.11.2017, Qupperneq 36
Ástkær faðir minn, sonur okkar, bróðir og mágur, Ágúst Freyr Martin lést 27.október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ástvinir þakka auðsýnda samúð og vinarhug. Þeim sem vilja minnast Ágústar er bent á styrktarreikning fyrir dóttur hans. Klara Líf Martin 515-14-350748, IBAN-númer IS250515143507480102556009. Klara Líf Martin Maria Irena Martin Stefán Víðir Martin Atli Jarl Martin Áslaug Dögg Martin Pétur Hreiðar Sigurjónsson Agnes Helga Martin og aðrir vandamenn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Margrét Snorradóttir Þykkvabæ 14, lést laugardaginn 4. nóvember 2017. Útför hennar fer fram í dag, mánudag, frá Árbæjarkirkju klukkan 15. Jón Magngeirsson Reynir Jónsson Þorgerður Ernudóttir Birgir Jónsson Elsa Óskarsdóttir Birna Jónsdóttir Sigfús Ásgeir Kárason og barnabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Steinarr Guðjónsson bókaútgefandi, Hvassaleiti 56, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík laugardaginn 4. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á góðgerðarfélög. Elsa Pétursdóttir Björg Steinarsdóttir Gísli Viðar Guðlaugsson Rakel Steinarsdóttir Bryndís Steinarsdóttir Hermann Hermannsson Sigurbjörn Magnússon barnabörn og barnabarnabarn.  1742 Det Konglige Danske Videnskabernes Selskab, eða hið Konungalega danska vísindafélag er stofnað. 1939 Þýska flutningaskipið Parana sekkur úti fyrir strönd- um Patreksfjarðar. 1947 Þróun AK-47 hríðskotariffilsins lýkur í Sovétríkjunum. 1973 Lausn næst í landhelgisdeilunni við Bretland. 1994 Meirihluti Svía kýs með inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu. 2013 Skýjakljúfurinn One WTC opnar dyr sínar á staðnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu í New York. Turninn er 72 hæðir. 2015 Ódæðismenn myrða 130 manns og særa hátt í 400 í hryðjuverkaárásum í París, þar á meðal á tónleikastaðnum Bataclan.  Merkisatburðir Ég ætla bara að vera heima og vonast til þess að fjölskyldan líti aðeins við. Ég ætla ekkert að gera úr þessu afmæli. Ég er búin að halda upp á sex-tugsafmælið og sjötugsaf- mælið,“ segir Sigurlína Davíðsdóttir, prófessor emerita, við Háskóla Íslands. Hún er 75 ára í dag Sigurlína á gríðarlega stóra fjölskyldu. Börnin eru fimm og svo eru það barna- börnin og barnabarnabörnin. Stórfjöl- skyldan er líka fjölmenn. Þannig að ekki er ólíklegt að það verði gestagangur á heimili hennar í dag. Sigurlína segir að það hafi verið mjög gaman að halda upp á sextugsafmælið og líka sjötugsafmælið. „Ég hélt veislu og bauð öllu samstarfsfólki og fjölskyld- unni og vinunum og öllu.“ Sigurlína byrjaði að kenna við félags- vísindadeild árið 1995 og árið 2008 færði hún sig yfir á menntavísindasvið við sameiningu Háskóla Íslands og Kenn- araháskólans. „Ég á góðar minningar úr háskólanum. Mér fannst gaman að vinna þar. Ég vann með óskaplega góðu fólki og mér finnst skemmtilegt kenna og sinna ungu fólki,“ segir Sigurlína sem kveður sér ekki lítast á það hvernig búið er að skólakerfinu. „Það þarf að gera byltingu þar. Það þarf virkilega að gera betur. Ég þekki best háskólastigið og það er algjör- lega sorglegt hvernig búið er að því. En auðvitað er það ekki betra á neðri stig- unum,“ segir Sigurlína. Sigurlína hætti að starfa við Háskóla Íslands þegar hún varð sjötug árið 2012. „En ég hef enn þá puttana í ýmsum verkefnum. Ég hef enn einhverja starfs- orku til þess að gera það sem mér þykir skemmtilegt. Ég sérhæfði mig í mats- fræðum, að meta ýmiss konar þjónustu og það er enn þá þörf fyrir það,“ segir Sigurlína Davíðsdóttir jonhakon@frettabladid.is Skemmtilegt að vinna með ungu fólki í háskóla Sigurlína Davíðsdóttir prófessor emerita er 75 ára í dag. Kenndi háskólafólki í sautján ár. Á góðar minningar frá háskólanum. Sigurlína segir að gera verði miklu meiri til að bæta aðstöðuna í skólanum. Hún vonast eftir fjölskyldan líti í heimsókn á afmælisdaginn. Sigurlína Davíðsdóttir segir að það hafi verið óskaplega gaman að kenna í háskólanum með ungu fólki. FréttaBLaðið/Ernir En ég hef enn þá putt- ana í ýmsum verk- efnum. Ég hef enn þá einhverja starfsorku til þess að gera það sem mér þykir skemmtilegt. Sigurlína Davíðsdóttir, prófessor emerita Aðfaranótt 13. nóvember fyrir 47 árum gekk fellibylurinn Bhola yfir austurhluta Pakistans og vesturhluta Indlands. Í dag er svæðið kennt við Bangladess. Bhola er einn öflugasti fellibylur sögunnar. Vindhraði hans mældist á köflum 240 kílómetrar á klukkustund en honum fylgdu jafnframt gríðarleg sjávarflóð sem léku Ganges-óseyrarnar grátt. Fellibylurinn skildi eftir sig slóð eyðileggingar. Samgöngur fóru víða úr skorðum og í fyrstu var algjörlega óljóst hversu margir hefðu fallið í hörmung- unum. Nú liggur fyrir að um 500 þúsund manns fórust. Bhola-fellibylurinn og afleiðingar hans vöktu heimsathygli og neyðar- gögn streymdu til Pakistans. Á meðal þeirra sem tóku þátt í hjálparstarfinu var Indland en þarlend yfirvöld ákváðu að senda nauðsynjar til Pakistans í stórum stíl, þrátt fyrir að það hafi andað köldu milli landanna á þessum tíma. Til að koma í veg fyrir að slíkt gerðist aftur voru innviðir stórefldir í Pakistan. Liðsmenn Rauða krossins fengu sér- staka þjálfun í að takast á við hamfarir sem þessar og yfir 200 neyðarskýli voru reist. Jafnframt voru veðurathug- unarkerfi betrumbætt. Árið 1991 gekk annar öflugur felli- bylur yfir Pakistan. Rúmlega hundrað þúsund fórust í veðurofsanum. – khn Þ Etta g E r ð i St : 1 3 . n óv E M B E r 1 9 7 0 Bhola-fellibylurinn gengur yfir Pakistan 1 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímamót 1 3 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 2 -3 8 6 C 1 E 3 2 -3 7 3 0 1 E 3 2 -3 5 F 4 1 E 3 2 -3 4 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.