Fréttablaðið - 13.11.2017, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
RIA
Nettir og einstaklega þægilegir
tveggja og þriggja sæta sófar.
Holly grænt, ljós- eða dökk-
grátt slitsterkt áklæði.
2ja sæta: 152 × 83 × 79 cm
52.493 kr. 69.990 kr.
3ja sæta: 192 × 83 × 79 cm
59.993 kr. 79.990 kr.
SÓFA
VEISLA
25%
AF ÖLLUM
SÓFUM
www.husgagnahollin.is
N
Ý
OG
BE
TRI VEFVERSLUN
A
LLTAF OP
IN
AFSLÁTTUR
74.993 kr.
99.990 kr.
TANGO
2ja sæta sófi. Slitsterkt ppelsínu gult eða
dökk grátt áklæði. St.: 150 x 90 x 96 cm.
Halldór Laxness Hall-dórsson, Dóri DNA, gefur í dag út aðra ljóðabók sína Órar, martraðir og hlutir sem ég hugsa um á
meðan ég er að keyra. Fyrsta bókin
hans Hugmyndir: Andvirði 100
milljónir gerði góða hluti og var
meðal annars gefin út í Þýskalandi.
Þegar blaðamaður nær í Halldór ber
hljómurinn í símtalinu þess merki
að Dóri sé við akstur á meðan við
ræðum saman.
Þú ert að gefa út bókina Órar, mar-
traðir og hlutir sem ég hugsa um á
meðan ég er að keyra … og þú ert að
keyra núna?
Ég er að keyra núna og að hugsa
um húsið mitt að brenna og heims-
hryggðina. Þessi bók er, ef við eigum
að tala í frösum, stílæfingar í hvers-
dagslegum hryllingi. Þetta er mjög
gotneskt. Enn sem áður er ég nátt-
úrulega með það á heilanum hvað
karlmaðurinn á bágt, segir Dóri
og hlær og bætir við, sérstaklega á
Vesturlöndum.
Það er pínu hlutverkið sem þú
hefur tekið að þér í ljóðageiranum
ekki satt?
Smá, svona er þetta eitthvað sem
talar ógeðslega mikið til mín, að
pæla í þessu. En auðvitað fjallar
bókin, eins og allur góður skáld-
skapur, um hvað það er ógeðslega
erfitt að vera til.
En aftur að akstrinum, hvers vegna
þessar hugsanir þar?
Ég held að þetta sé vegna til-
komu snjallsímanna. Það er enginn
lengur að hugsa á klósettinu. En ég
eyði töluverðum tíma í bíl – miklu
meiri tíma en ég kæri mig um. Ég
er oft einn á ljósum, alveg búinn
að sóna út og útvarpið er orðið að
bakgrunnstónlist. Ég hugsa að fyrir
marga séu þetta einu stundirnar sem
fólk raunverulega hugsar og lætur
hugann reika. Svo fannst mér þessi
titill kallast skemmtilega á við Mura-
kami bókina [Það sem ég tala um
þegar ég tala um hlaup] – en þetta
er annar gír; þetta er ónáttúrulegt,
þetta er vélrænt, þetta er eitthvað
sem mengar og er eiginlega ógeðs-
legt. Ég er bara þessi venjulegi vest-
ræni maður sem á dísilbíl og flokkar
rusl – og er fastur í gildrunni þarna
á milli.
Þú ert sem sagt í svipuðum gír og í
þinni síðustu bók, karlmennskan og
þetta?
Já, ég myndi segja að þetta væri
næsta skref. Ég er miklu stressaðri
fyrir útgáfu þessarar bókar heldur en
þeirrar síðustu. Síðasta bók var svo-
lítil naglasúpa – þar var ég svolítið
narraður áfram af útgefandanum,
Ragnari Helga Ólafssyni. Hann var
alltaf að senda mér email bara: „já,
en ef þú pælir aðeins í þessu“ og
„viltu ekki bara henda í eitt?“ þannig
að hún var eiginlega svolítið bara ort
í Gmail, í new message glugganum.
Núna er þetta pínu eins og hjá
hljómsveit; það er alltaf erfitt að
fylgja eftir góðri frumraun. Fyrri
bókin var gefin út í Þýskalandi, ég
hef lesið upp úr henni í Bretlandi,
hún var tilnefnd til menningarverð-
launa DV … það var smá hiti. Núna
er ég meðvitaðri, „jæja núna ert þú,
ljóðskáldið, að fara að reyna enn
einu sinni“. Fyrir utan allt er þetta
bara massa kolefnisjöfnun – þú
getur ekki bara leikið í einhverjum
bankaauglýsingum og prumpað í þig
á Twitter endalaust, maður verður
líka bara gjörsamlega að berskjalda
sig.
Fólk spyr gjarnan „er þetta eitt-
hvað byggt á þínu lífi?“ og þetta er
það bara alls, alls ekki. Enda finnst
mér ljóð sem er byggt á lífi fólks bara
ógeðslega óáhugavert. Ljóðin sem
ég myndi skrifa ef ég myndi byggja
á lífi mínu væru bara um að ég ætti
börn og æðislega konu, ætti heima
í Skerjafirðinum og sá kvíði sem ég
byggi við væri yfir því að það væri
of mikið að gera, að ég væri að horfa
of mikið á Netflix eða hanga mikið í
símanum – það væri ekki áhugavert.
En ég á mjög auðvelt með að blása
upp tilfinningar sem ég held að allir
finni og búa til aðstæður í kringum
það. Það að setjast niður að skrifa er
alltaf persónulegt; þú ert alltaf að
berskjalda þig og koma nakinn til
dyra, sérstaklega í skáldskap.
Eru þetta ljóð sem fólk á að lesa
undir stýri?
Ég held að fólk eigi að lesa þessi
ljóð eins og það horfir á klám. Þar
sem enginn sér til. Þannig á ljóðið
að vera, það á að vera forboðið. Það
má ekki ofselja það, ljóðið má ekki
vera vinsælt – þá er það bara eins og
einhver sjálfshjálparbók.
Halldór segir að útgáfupartí sé á
planinu og það verði auglýst síðar.
stefanthor@frettabladid.is
Lesist eins og klám
Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA, gefur út sína aðra ljóðabók
í dag, Órar, martraðir og hlutir sem ég hugsa um á meðan ég er að
keyra. Dóri segir að fólk eigi að lesa hana eins og það horfir á klám.
Dóri DNA segist vera hættur að hugsa á klósettinu og því fær hugurinn hans aðallega að reika þegar hann er undir stýri.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILhELM
ÞAð er eNgiNN
LeNgur Að hugsA á
kLósettiNu. eN ég eyði
töLuverðum tímA í bíL
brot úr LjóðiNu
ártúNsbrekkAN
Mér finnst eins og allir sem ég
hitti séu að fara keppa í Euro
vision. Það er góður andi í
hópnum. Það eru allir spenntir,
allir að gera sitt besta. Allir að
leggjast á eitt. Allir að vona
saman. Allir nema ég. Sem
sit einn með tvo múrsteina í
höndunum og fartölvu að reyna
að youtubea mig í gegnum það
að byggja hús frá grunni.
[...]
Ég vildi óska þess að ég gæti
haldið með einhverju fótbolta
liði, en mig skortir sjálfsöryggið
til þess að horfa á hóp af
karlmönnum og hugsa þetta eru
mínir menn og ég ætla að styðja
þá í einu og öllu.
Ég óttast að mennirnir frétti af
því að ég ætli að halda með þeim
og einhver skrifstofustjóri hjá
liðinu verði gerður út til þess að
senda mér formlegt bréf þar sem
stuðningur minn er afþakkaður í
einu og öllu.
1 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U rl í f i ð ∙ f r É T T A b l A ð i ð
1
3
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
2
-4
2
4
C
1
E
3
2
-4
1
1
0
1
E
3
2
-3
F
D
4
1
E
3
2
-3
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K