Fréttablaðið - 23.11.2017, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 23.11.2017, Blaðsíða 66
Samtónn (Samtök tón-listarrétthafa á Íslandi), ÚTÓN (Útflutningsskrif-stofa íslenskrar tónlistar) og atvinnu- og nýsköp-unarráðuneytið hafa tekið höndum saman við Rannsóknar- miðstöð skapandi greina og Erlu Rún Guðmundsdóttur til að gera rann- sókn á hagrænu umfangi íslenskrar tónlistar. Könnunin er nafnlaus og mun verða send til 4-5 þúsund tón- listarmanna. Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri ÚTÓN, segist vonast til að fá að minnsta kosti tvö þúsund svör og að niðurstöður verði unnt að birta fyrir lok árs. „Við erum að taka saman upp- lýsingar á Íslandi um veltu tónlistar- hátíða, diskasölu, Spotify og svo Umfang tónlistariðnaðarins á Íslandi kannað framvegis. Samtónn og ÚTÓN tóku sig saman og fóru á fund hjá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu um það að tónlist sem listgrein þarf að geta skoðast sem atvinnugrein hér á landi og til þess að geta átt þá umræðu af einhverju viti þurfum við að hafa ein- hverjar tölur yfir hverju greinin er að velta. Aðrar góðar og gildar greinar, hvers konar iðnaður, landbúnaður eða fiskveiðar, eru með tölur frá Hagstofunni um veltu greinarinnar,“ segir Sigtryggur en hann segir að fjár- festingar í tónlist séu í dag aðallega í formi styrkja úr litlum sjóðum og brotabrot þess sem aðrar iðngreinar fái að njóta. Erfitt sé að sækja fjár- magn til fjárfesta þegar engar tölur eru til um hagrænt umfang greinar- innar. „Á síðustu árum hefur hið opin- bera stutt meira við tónlist en oft áður og á aðeins fjölbreyttari hátt. Það er aðeins á síðustu árum sem fjárfestingar hins opinbera og í borginni eru ekki bara í sígilda og samtímatónlist. Stór hluti af því sem ríkið setur í tónlist fer í tónlistar- skóla, sinfóníuna og óperuna en lítið um fjárfestingu í hinum frjálsa geira og því sem ég kalla popp og djass og aðrar greinar. Við viljum hins vegar sjá þetta allt í einum potti.“ Nauðsynlegt er að sem flestir taki þátt í könnuninni svo að niðurstaða hennar verði sem marktækust. „Við erum að reyna að fá smá umfjöllun um þetta í fjölmiðlum fyrst áður en við sendum þetta út til tónlistarmannanna, bara svo að fólk sé meðvitað um það að þátt- taka þess skiptir öllu máli í því hvort þetta hefur eitthvert gildi, hvort við fáum einhverjar tölur sem hægt er að byggja á. Þetta kemur líka inn í umræðuna um skapandi greinar yfirhöfuð og hvernig er fjárfest í þeim af hinu opinbera. Tónlist er stór hluti af skapandi greinum hér á landi og líka bara stór hluti af ímynd Íslands út á við þannig að okkur finnst þurfa að taka þetta fastari tökum.“ stefanthor@frettabladid.is Samtónn, ÚTÓN og atvinnu- og ný- sköpunarráðuneytið ætla sér að kanna hagrænt umfang íslenskrar tónlistar með því meðal ann- ars að láta íslenska tónlistarmenn taka þátt í könnun. Íslensk tónlist hefur á síðustu árum orðið ansi stór hluti ímyndar landsins út á við. Fréttablaðið/andri Marinó TónlisT er sTór hlUTi af skapandi greinUm hér á landi og lÍka bara sTór hlUTi af Ímynd Íslands úT á við þannig að okkUr finnsT þUrfa að Taka þeTTa fasTari TökUm KLEMENTÍNUR -50% 179 KRKG ÁÐUR: 358 KR/KGHollt & gott Fu l l búð af ný jum vörum fyr ir jó l in 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r54 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð 2 3 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 4 D -9 9 3 4 1 E 4 D -9 7 F 8 1 E 4 D -9 6 B C 1 E 4 D -9 5 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.