Barnablaðið - 19.03.2017, Page 4
BARNABLAÐIÐ4
Hvað heitið þið og með hvað hlutverk
farið þið?
Davíð: Ég heiti Davíð Laufdal Arnarsson og er á
2. ári í FG. Ég leik Kalla.
Selma: Ég heiti Selma Rós Axelsdóttir og er á 4.
ári. Ég leik Veróniku.
Hafsteinn: Ég heiti Hafsteinn Níels-
son og er á 3. ári. Ég leik Villa
Wonka.
Þið eruð að setja upp
leikrit?
Selma: Já, leikfélag skól-
ans, Verðandi, er að setja
upp söngleikinn Kalli og
súkkulaðiverksmiðjan.
Hafsteinn: Verkið er byggt á
bókinni sem kom út fyrir löngu
síðan og tveimur bíómyndum sem
sýndar hafa verið.
Davíð: Svo er mjög mikið sem er frumsamið
af okkur. Andrea Ösp Karlsdóttir er leikstjóri
og gerði handritið. Þannig að þetta er í raun
glænýtt af nálinni og hefur aldrei verið sett upp
á Íslandi áður.
Selma: Baldur Ragnarsson í Skálmöld semur
tónlistina og Sævar Sigurgeirsson sér um texta-
smíð.
Davíð: Við erum öll á leiklistarbraut og í rauninni
eru allir skráðir í leikfélagið eins og nemenda-
félagið. Við höfum sett upp söngleik á vorin og
barnaleikrit á haustin.
Og um hvað fjallar leikritið?
Davíð: Það fjallar um Kalla sem er fátækur
strákur en hefur mjög mikinn áhuga á uppfinn-
ingum. Hann er mjög nægjusamur og góður
strákur.
Hafsteinn: Hann elskar súkkulaði og fær alltaf
eitt súkkulaði á ári, á afmælinu sínu. Svo koma
fréttir um að Villi Wonka, sem er
stærsti nammigerðamaður í
heimi, ætli að bjóða fimm
heppnum börnum að
koma í heimsókn í
súkkulaðiverksmiðjuna.
Selma: Það eru
því fimm gullmið-
ar sem faldir eru í
súkkulaðistykkjum víðs
vegar um veröldina.
Hafsteinn: Þetta eru litrík-
ir og skemmtilegir karakt-
erar sem fá gullmiðann. Flest
börnin eru mjög frek og stjórnsöm
en Kalli er frekar hlédrægur.
Selma: Verónika er líka ein af þeim
börnum sem fá að heimsækja verk-
smiðjuna. Það má segja að hún sé
leiðtogi frekjunnar en pabbi hennar
keypti súkkulaðistykki í hundraðavís
til að reyna að vinna.
Davíð: Krakkarnir lenda vægast
sagt í ýmsum hremmingum, þó
aðallega þau óþekku.
Af hverju þetta leikrit?
Hafsteinn: Þetta er svo falleg saga
í skemmtilegum búningi.
Davíð: Miklir öfgar.
Selma: Það er margir leikarar í aðalhlutverkum
og mjög fínn kynjakvóti. Leikritið hentar líka fyrir
alla.
Eru margir sem koma að sýningunni?
Hafsteinn: Já, um 100 manns þegar allt er talið
saman. Allir tilbúnir að leggjast á eitt.
Selma: Það er það sem er svo fallegt við þetta.
Fyrir hvern er þetta?
Selma: Þetta er algjörlega fyrir alla fjölskylduna.
Davíð: Við fórum um daginn á elliheimilið á
Hrafnistu og þau hreinlega elskuðu okkur.
Hafsteinn: Svo höfum við farið og kynnt okkur í
skólunum hér í kring.
Hvenær eru sýningar?
Hafsteinn: Nú um helgina eru lokasýningar. Á
laugardaginn eru sýningar kl. 15 og 20 og á
sunnudaginn kl. 15. Allar nánari upplýsingar á
www.tix.is.
ÞÚ UPPSKERÐ
EINS OG ÞÚ SÁIR
Leikfélagið Verðandi sýnir
um þessar mundir söngleik-
inn Kalli og súkkulaðiverk-
smiðjan. Um 100 manns
koma að sýningunni enda
leiklistarbrautin í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ ansi öfl-
ug. Við hittum þrjá af leikur-
um sýningarinnar en þau ætla
sér stóra hluti í leiklistinni.
„Þetta
eru litríkir
og skemmtilegir
karakterar sem fá
gull-
miðann. Flest börn
in eru
mjög frek og stjór
nsöm
en Kalli er frekar
hlédrægur.“
Síðustu sýningar fara
fram um helgina.
KALLI
VERÓNIKA
VILLI WONKA