Morgunblaðið - 01.04.2017, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017
SKÍÐI
Kristján Jónsson
Pétur Hreinsson
Freydís Halla Einarsdóttir varð í
gær Íslandsmeistari í stórsvigi kvenna
eftir tvísýna keppni við Helgu Maríu
Vilhjálmsdóttur í Hlíðarfjalli í Eyja-
firði.
Freydís fékk aðeins betri tíma en
Helga í báðum ferðum og sigraði sam-
anlagt á 1:56,17 mínútu en Helga María
fékk tímann 1:56,91 mínútu. „Þetta
gekk vel og ég er ánægð með daginn.
Veðrið var geggjað í fjallinu og gaman
að vera komin heim að keppa. Mæt-
ingin var ágæt og manni finnst alltaf
sérstök stemning fylgja því að keppa
fyrir framan alla sem maður þekkir.
Fólk sem maður hefur nánast alist upp
með á skíðunum er að fylgjast með og
það er mjög skemmtilegt. Ég held að
allt hafi verið gott við daginn,“ sagði
Freydís þegar Morgunblaðið spjallaði
við hana í gær.
Voru þær Helga María í nokkrum
sérflokki og sagðist Freydís hafa búist
við því fyrirfram. Þriðja varð Andrea
Björk Birkisdóttir á samanlagt 1:59,30
mínútu en alls voru tuttugu og tveir
keppendur í kvennaflokknum
„Við vorum mjög svipaðar og þá sér-
staklega í seinni ferðinni. Auðvitað er
það mjög algengt í skíðamótum að sek-
úndubrot skilji að í hverri ferð. Ég bjóst
alveg við því að baráttan um sigurinn
yrði á milli okkar. Við erum með mjög
svipaða punktastöðu á heimslista, erum
báðar í A-landsliðinu og höfum verið
með þeim bestu hérlendis. Ég bjóst al-
veg eins við því að við yrðum aðeins á
undan hinum,“ sagði Freydís og hún
sagði færið hafa verið ágætt í brautinni.
„Færið var ágætt en það var svolítið
um lausan og mjúkan snjó í kringum
brautina. Það getur reynst erfitt. Í fyrri
ferðinni var ég svolítið sein í einni
beygjunni og dróst þá aðeins út í lausa
og mjúka snjóinn. En á heildina litið
voru aðstæður ágætar, sérstaklega ef
miðað er við hversu heitt var,“ sagði
Freydís.
Skíðamót Íslands heldur áfram í dag
og Freydís er eðlilega hvergi bangin
eftir að hafa landað gulli í gær. „Mér líst
bara vel á morgundaginn (daginn í
dag). Við keppum í sama svæði og færið
ætti því að vera ágætt. Mér hefur geng-
ið ágætlega í svigi og vonast eftir því að
skíða eins og ég get best. Svo verður
bara að koma í ljós hverju það skilar,“
sagði Íslandsmeistarinn Freydís Halla
Einarsdóttir ennfremur.
Öruggt hjá Sturlu
Sturla Snær Snorrason vann mjög
öruggan sigur í stórsvigi karla. Sturla
var með besta tímann í báðum ferðum
og fékk samanlagðan tíma 1:53,78 mín-
úta en hann varð hálfri þriðju sekúndu
á undan næsta manni, Jóni Gunnari
Guðmundssyni, sem fékk samanlagðan
tíma 1:56,24 mínútu. Þriðji varð síðan
Sigurður Hauksson á 1:56,38 mínútu
samanlagt. Keppendur í stórsvigi karla
voru tuttugu og fjórir og af þeim luku
tuttugu keppni.
Sigur Sturlu kemur líklega ekki á
óvart enda stórbætti hann punktastöðu
sína í stórsvigi í forkeppni heimsmeist-
aramótsins í vetur. Er hann auk þess í
hörkukeppnisformi eftir að hafa keppt
á nokkrum mótum í Kanada nýlega
eins og fram kom hefur komið hér í
blaðinu.
Spenna hjá körlunum
Elsa Guðrún Jónsdóttir vann skíða-
göngu kvenna með frjálsri aðferð með
miklum yfirburðum en öllu meiri
spenna var í karlaflokknum sem endaði
með ótrúlega naumum sigri Isak Sti-
ansson Pedersen á Alberti Jónssyni en
einungis munaði 30/100 úr sekúndu á
köppunum tveimur.
Hópræst var í göngurnar en kon-
urnar gengur 5 kílómetra á meðan karl-
arnir fóru 10 kílómetra. Elsa Guðrún
vann á tímanum 13:37,9 mínútum á
meðan Veronika Lagun í 2. sætinu kom
næst á 14:22,8 mínútum. Önnur gull-
verðlaun Elsu á Skíðamótinu eru komin
í hús í þetta árið en hún var einnig fyrst
í sprettgöngunni á fimmtudagskvöldið.
Meiri spenna var um 2. sætið hjá
konunum en þar var það Veronika Lag-
un sem hafði betur gegn Sólveigu Mar-
íu Aspelund.
Um miðja göngu hjá körlunum voru
átta karlar saman fyrstir en þegar kom-
ið var á lokakaflann voru þeir orðnir
fimm í baráttunni.
Í dag verður keppt í svigi og göngu
með hefðbundinni aðferð hjá báðum
kynjum í báðum tilfellum.
Freydís hafði betur gegn Helgu
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Stórsvig kvenna Helga María Vilhjálmsdóttir, Freydís Halla Einarsdóttir og
Andrea Björk Birkisdóttir á verðlaunapallinum í gær.
Annað gull til Elsu í göngunni
Sturla Snær í hörkuformi
Skíðaganga kvenna Elsa Guðrún Jónsdóttir er sigursæl í göngunni. Stórsvig karla Sturla Snær Snorrason sigurreifur á Akureyri í gær.
Lengjubikar karla
A-deild, riðill 4:
Breiðablik – Leiknir F ........................ 6:0
Hrvoje Tokic 30., 54., Martin Lund 35.,
Aron Bjarnason 65., Sólon Leifsson 71.,
Davíð Ólafsson 82.
Staðan: Breiðablik 11, Grindavík 11,
Stjarnan 11, Þróttur R. 3, Fram 1,
Leiknir F. 1. Breiðablik og Grindavík
fara í átta liða úrslitin. Breiðablik leikur
við FH og Grindavík mætir Val.
B-deild, riðill 1:
Afturelding – KFG ............................... 1:2
KH – Kári ............................................. 3:3
Staðan: Þróttur V. 9, Víðir 9, KFG 7,
Kári 5, Afturelding 3, KH 1.
B-deild, riðill 2:
KFR – Vestri ........................................ 0:3
Staðan: Vestri 12, Vængir Júpíters 9,
Sindri 3, Ægir 3, Reynir S. 3, KFR 0.
Lengjubikar kvenna
B-deild:
Fylkir – Keflavík .................................. 1:1
Haukar – Selfoss .................................. 1:2
Staðan: ÍA 10, KR 9, Fylkir 8, Keflavík
7, Grindavík 4, Haukar 3, Selfoss 3.
Danmörk
Úrslitakeppni um meistaratitilinn:
Nordsjælland – Lyngby ...................... 2:0
Rúnar Alex Rúnarsson varði mark
Nordsjælland.
Hallgrímur Jónasson lék allan leikinn í
vörn Lyngby.
Staðan: FC Köbenhavn 64, Bröndby
52, Lyngby 39, SönderjyskE 39, Midt-
jylland 38, Nordsjælland 38.
Keppni um að vera áfram í efstu deild:
Horsens – OB ....................................... 0:0
Kjartan Henry Finnbogason kom inn
á hjá Horsens á 68. mínútu en Elfar
Freyr Helgason sat á bekknum allan
tímann.
Staðan í riðli 1: Randers 33, Horsens
30, OB 29, Esbjerg 24.
Þýskaland
Hertha Berlín – Hoffenheim ............... 1:3
B-deild:
Nürnberg – Karlsruher ...................... 2:1
Rúrik Gíslason var ekki í leikmanna-
hópi Nürnberg.
Holland
B-deild:
De Graafschap – Jong PSV ............... 2:1
Albert Guðmundsson lék allan leikinn
með Jong PSV.
England
B-deild:
Derby – QPR ........................................ 1:0
Spánn
Espanyol – Real Betis ......................... 2:1
Staða efstu liða:
Real Madrid 27 20 5 2 71:28 65
Barcelona 28 19 6 3 81:25 63
Sevilla 28 17 6 5 52:34 57
Atlético M. 28 16 7 5 52:23 55
Villarreal 28 13 9 6 39:20 48
Real Sociedad 28 15 3 10 42:39 48
Athletic Bilbao 28 13 5 10 35:32 44
Espanyol 29 11 10 8 42:40 43
Eibar 28 11 8 9 44:39 41
KNATTSPYRNA
BREIDDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hversu mikið vægi hafa vináttulandsleikir í jan-
úarmánuði? Leikir þar sem nær engir af fastamönn-
um karlalandsliðsins í knattspyrnu koma við sögu?
Ísland hefur á undanförnum þremur árum leikið alls
átta slíka landsleiki í janúarmánuði (raunar einn
snemma í febrúar) og í þeim hefur fjöldi leikmanna
fengið sín fyrstu tækifæri með landsliðinu.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, og hans
fyrrverandi samverkamaður Lars Lagerbäck, hafa
oft ítrekað mikilvægi þessara leikja. Þar hafa þeir
náð að breikka þann hóp leikmanna sem fá að kynn-
ast verklaginu í kringum landsliðið og leikaðferð
þess, og þar með verið tilbúnir í slaginn þegar þeir
hafa komið inn í alvöru verkefni liðsins.
Eitt besta dæmið um leikmann sem hefur komið
inní landsliðið á þennan hátt er Arnór Ingvi
Traustason, sem hafði ekki leikið A-landsleik þegar
undankeppni EM lauk seint á árinu 2015 en skilaði
ómetanlegu hlutverki sem varamaður í leikjum Ís-
lands í Frakklandi síðasta sumar og skoraði m.a.
sigurmarkið fræga gegn Austurríki.
Nú síðast virðist Aron Sigurðarson hafa tekið
stór skref í átt að frekari frama með landsliðinu eft-
ir frammistöðu sína í leiknum gegn Írum í Dublin á
þriðjudaginn.
Umfjöllun Irish Times um leikinn í Dublin var á
athyglisverðum nótum en Írunum þótti stór-
merkilegt að 300 þúsund manna þjóð gæti teflt fram
jafn sterku liði í þeim leik og raunin var þrátt fyrir
að flesta bestu leikmennina vantaði. Þeir furðuðu
sig á breiddinni.
Írarnir tóku eftir því að leikskipulag Íslands var
annað og betra en hjá þeirra manni, Martin O’Neill,
og sögðu að munurinn á liðunum hefði verið sá að ís-
lenska liðið hefði verið með miklu skýrari hugmynd
Gildi vináttuleikjanna
Viðhorf á laugardegi
AFP
Landslið Arnór Ingvi Traustason nýtti sér vel
tækifærin sem hann fékk í vináttulandsleikjum.
HANDKNATTLEIKUR
Áskorendabikar ka., 8 liða, seinni leikur:
Valshöllin: Valur – Sloga Pozega .......... L18
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Framhús: Fram – Selfoss ................. L13.30
TM-höllin: Stjarnan – Valur ............. L13.30
Hertz-höllin: Grótta – Fylkir............ L13.30
Schenker-höllin: Haukar – ÍBV ....... L13.30
1. deild kvenna:
Dalhús: Fjölnir – Víkingur .................... L16
KA-heimilið: KA/Þór – HK.................... L16
Kaplakriki: FH – ÍR............................... L16
Varmá: Afturelding – Valur U .............. L16
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit kvenna, annar leikur:
Ásgarður: Stjarnan – Snæfell (0:1) .. L16.30
Borgarnes: Skallag. – Keflavík (1:0) S19.15
Umspil karla, annar úrslitaleikur:
Hveragerði: Hamar – Valur.............. S19.30
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
KR-völlur: KR – Leiknir R.................... L13
Hertz-völlurinn: ÍR – Þór ...................... L17
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Leiknir F S14
Lengjubikar kvenna, undanúrslit:
Fífan: Breiðablik – ÍBV ......................... L14
Valsvöllur: Valur – Þór/KA.................... L15
SKÍÐI
Skíðamót Íslands heldur áfram á Akureyri
í dag með svigi kvenna og karla kl. 10 og 13
og göngu karla og kvenna, pilta og stúlkna
með hefðbundinni aðferð kl. 13. Mótinu lýk-
ur á morgun með samhliðasvigi kl. 10 og
boðgöngu kl. 11.
GLÍMA
Íslandsglíman fer fram í dag kl. 13 í Iðu á
Selfossi. Fimm karlar glíma um Grettis-
beltið og níu konur um Freyjumenið.
UM HELGINA!