Morgunblaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017
um hvað það ætlaði sér að gera í leiknum en það
írska.
Þetta hefur einkennt vináttulandsleiki Íslands
síðustu árin. Þeir hafa verið nýttir einstaklega vel
og markvisst.
Hafa notað 44 leikmenn
Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2017 hafa 48
leikmenn verið í A-landsliðshópi Íslands og 44
þeirra hafa spilað frá einum og upp í fjóra af þeim
fimm leikjum sem Ísland hefur spilað á árinu. Samt
hafa nokkrir af fastamönnum síðasta árs verið fjarri
góðu gamni vegna meiðsla en þeir verða væntanlega
flestir klárir í slaginn í næsta leik sem er stóra við-
ureignin gegn Króatíu á Laugardalsvellinum 11.
júní.
Þá, eins og ávallt, má búast við einhverjum for-
föllum vegna meiðsla en Heimir og núverandi sam-
starfsmaður hans, Helgi Kolviðsson, ættu ekki að
vera í teljandi vandræðum með að fylla í þau skörð
sem mögulega myndast.
Skoðum að lokum hvaða leikmenn hafa spilað eða
verið í hópi Íslands í ár, í hverri stöðu fyrir sig, og
hvaða leikmenn Heimir og Helgi eiga enn til góða.
Byrjunarliðsmenn og varamenn gegn Kósóvó
fremstir í hverri stöðu, fjöldi leikja í svigum:
Markverðir:
Hannes Þór Halldórsson (2), Ögmundur Krist-
insson (2), Frederik Schram (1), Ingvar Jónsson,
Rúnar Alex Rúnarsson, Anton Ari Einarsson.
Ekkert í ár: Haraldur Björnsson.
Bakverðir:
Birkir Már Sævarsson (4), Ari Freyr Skúlason
(2), Viðar Ari Jónsson (3), Hörður Björgvin Magn-
ússon (1), Kristinn Jónsson (3), Böðvar Böðvarsson
(3), Adam Örn Arnarson (1), Daníel Leó Grétarsson.
Ekkert í ár: Haukur Heiðar Hauksson, Hjörtur
Logi Valgarðsson, Diego Jóhannesson.
Miðverðir:
Kári Árnason (3), Ragnar Sigurðsson (2), Sverrir
Ingi Ingason (1), Hólmar Örn Eyjólfsson (1), Jón
Guðni Fjóluson (2), Orri Sigurður Ómarsson (2),
Hallgrímur Jónasson (1).
Ekkert í ár: Hjörtur Hermannsson, Sölvi Geir
Ottesen.
Miðjumenn:
Aron Einar Gunnarsson (2), Gylfi Þór Sigurðsson
(1), Ólafur Ingi Skúlason (1), Guðlaugur Victor
Pálsson (2), Björn Daníel Sverrisson (2), Albert
Guðmundsson (1), Oliver Sigurjónsson (1),
Kristinn Freyr Sigurðsson (1), Davíð Þór Við-
arsson (1).
Ekkert í ár: Rúnar Már Sigurjónsson, Guð-
mundur Þórarinsson.
Kantmenn:
Emil Hallfreðsson (1), Arnór Ingvi Traustason
(1), Rúrik Gíslason (2), Theódór Elmar Bjarnason
(2), Aron Sigurðarson (4), Elías Már Ómarsson (3),
Arnór Smárason (3), Sigurður Egill Lárusson (2),
Aron Elís Þrándarson (1), Kristinn Steindórsson
(1).
Ekkert í ár: Birkir Bjarnason, Jóhann Berg
Guðmundsson.
Framherjar:
Björn Bergmann Sigurðarson (3), Viðar Örn
Kjartansson (1), Jón Daði Böðvarsson (2), Kjartan
Henry Finnbogason (3), Óttar Magnús Karlsson
(3), Kristján Flóki Finnbogason (1), Tryggvi Hrafn
Haraldsson (1), Árni Vilhjálmsson (1).
Ekkert í ár: Alfreð Finnbogason, Kolbeinn
Sigþórsson, Matthías Vilhjálmsson, Garðar Gunn-
laugsson.
Ásgarður, undanúrslit karla, fyrsti leik-
ur, föstudag 31. mars 2017.
Gangur leiksins: 4:5, 9:9, 13:12, 18:18,
25:26, 28:31, 35:39, 37:45, 41:53,
45:65, 52:68, 58:73, 61:80, 72:83,
75:89, 78:96.
Stjarnan: Anthony Odunsi 14/10 frá-
köst, Tómas H. Tómasson 13, Justin
Shouse 13/5 stoðsendingar, Tómas
Þórður Hilmarsson 11, Hlynur Elías
Bæringsson 10/14 fráköst, Eysteinn
Bjarni Ævarsson 9/6 fráköst, Arnþór
Freyr Guðmundsson 3, Ágúst Ang-
antýsson 3, Marvin Valdimarsson 2.
Fráköst: 25 í vörn, 21 í sókn.
Grindavík: Lewis Clinch Jr. 29/6 frá-
köst/6 stoðsendingar, Dagur Kár
Jónsson 26, Þorleifur Ólafsson 16/4
fráköst, Ólafur Ólafsson 11/11 fráköst,
Ómar Örn Sævarsson 7/9 fráköst,
Þorsteinn Finnbogason 5, Ingvi Þór
Guðmundsson 2.
Fráköst: 27 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Ísak Ernir Kristinsson, Eggert Þór
Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 693
Staðan er 1:0 fyrir Grindavík.
Stjarnan – Grindavík 78:96
Guðrún Ósk Maríasdóttir, lands-
liðsmarkvörður í handknattleik, hefur
skrifað undir áframhaldandi samning
við Fram og mun þar með standa vakt-
ina í marki Safamýrarliðsins hið
minnsta út keppnistímabilið vorið
2018. Guðrún Ósk, sem er fædd árið
1989, kom upphaflega til liðs við Fram
fyrir veturinn 2011-12 og lék með Fram
tvo vetur. Eftir hlé frá handboltaiðkun
og stutt stopp hjá FH kom hún til baka
til Fram sumarið 2015.
Romelu Lukaku, sóknarmaður
Everton, er leikmaður marsmánaðar í
ensku úrvalsdeildinni og Eddie Howe
hjá Bournemouth er
knattspyrnustjóri
mánaðarins í
deildinni. Lu-
kaku skoraði
fjögur mörk fyrir
Everton í þremur
leikjum í mars og
Bournemouth fékk
sjö stig í þremur leikj-
um í mars og komst
af mesta hættu-
svæði úrvals-
deildarinnar.
Eitt
ogannað
1. deild karla
Mílan – Stjarnan U............................... 12:26
Akureyri U – KR .................................. 34:30
HK – Fjölnir ......................................... 34:22
Þróttur – ÍR .......................................... 26:34
Víkingur – Hamrarnir.......................... 30:28
Valur U – ÍBV U................................... 24:23
Staðan:
Fjölnir 21 17 1 3 665:538 35
ÍR 21 14 3 4 623:521 31
Víkingur 21 14 0 7 547:519 28
HK 21 13 2 6 552:499 28
KR 21 13 1 7 596:541 27
Þróttur 21 11 4 6 575:540 26
Valur U 21 9 3 9 544:558 21
Stjarnan U 21 8 3 10 556:595 19
Akureyri U 21 8 2 11 543:598 18
ÍBV U 21 4 0 17 499:577 8
Hamrarnir 21 4 0 17 530:621 8
Mílan 21 1 1 19 474:597 3
Fjölnir leikur í úrvalsdeild 2017-18. Liðin
í 2.-5. sæti fara í umspil um eitt til tvö sæti
þar. Einni umferð er ólokið.
Þýskaland
B-deild:
Bietigheim – Essen.............................. 29:29
Aron Rafn Eðvarðsson ver mark Bietig-
heim.
Austurríki
Alpla Hard – West Wien .................... 29:26
Hannes Jón Jónsson þjálfar West Wien.
HANDBOLTI
Dominos-deild karla
Undanúrslit, fyrsti leikur:
Stjarnan – Grindavík............................ 78:96
Staðan er 1:0 fyrir Grindavík og annar
leikur er í Grindavík á þriðjudag.
1. deild kvenna
Úrslit, oddaleikur:
Þór Ak. – Breiðablik............................. 42:56
Breiðablik sigraði 2:1 og leikur í úrvals-
deildinni 2017-2018.
Frakkland
B-deild:
Nantes – Charleville ........................... 68:79
Martin Hermannsson skoraði 9 stig fyrir
Charleville, tók 7 fráköst og átti 6 stoðsend-
ingar.
Spánn
B-deild:
Ourense – San Pablo ........................... 62:58
Ægir Þór Steinarsson skoraði 12 stig og
gaf 4 stoðsendingar fyrir San Pablo.
NBA-deildin
Detroit – Brooklyn ............................... 90:89
Chicago – Cleveland............................. 99:93
Minnesota – LA Lakers................... 119:104
Phoenix – LA Clippers..................... 118:124
Portland – Houston .......................... 117:107
KÖRFUBOLTI
Í GARÐABÆ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Grindavíkurliðið er komið með 1:0 for-
ystu og heimavallarétt í undan-
úrslitaeinvíginu sínu gegn Stjörnunni í
Dominos-deild karla í körfubolta, eftir
gríðarlega sterkan og frekar óvæntan
96:78 sigur í Garðabænum í gær.
Í ljósi þess að Grindavík þurfti fimm
leikja seríu til að slá Þór frá Þorlákshöfn
úr leik í 8 liða úrslitum, þar sem liðið
tapaði báðum útileikjum sínum, og að
Stjarnan vann ÍR, 3:0 í sinni 8 liða úr-
slita seríu, bjuggust mun fleiri við sigri
Stjörnunnar í gær.
Grindvíkingum gat hins vegar ekki
verið meira sama um það. Eftir jafnan 1.
leikhluta, tóku gestirnir öll völd á vell-
inum og náðu þeir mest 19 stiga forystu,
áður en 18 stiga sigurinn varð stað-
reynd. Grindavík getur helst þakkað
sýningu fyrir utan þriggja stiga línuna,
sem var gjörsamlega mögnuð á köflum.
Lewis Clinch og Dagur Kár Jónsson
léku aðalhlutverkið í sýningunni.
„Það var engin pressa á okkur, því
flestir spáðu Stjörnunni sigri og okkur
leið eins og við hefðum engu að tapa.
Þetta er hins vegar bara einn leikur og
við verðum að halda okkur á jörðinni og
vernda heimavöllinn á þriðjudaginn,“
sagði Clinch í samtali við Morgunblaðið
eftir leik.
Lykilmenn langt frá sínu besta
Grindavík skoraði alls 14 þriggja stiga
körfur í leiknum, gegn sex frá Stjörn-
unni. Það sem gerir þá staðreynd ansi
magnaða, er að Stjörnumenn reyndu
töluvert fleiri þriggja stiga skot í leikn-
um en Grindavíkingar. Dagur Kár og
Clinch hittu hins vegar ótrúlega vel og
þá sérstaklega í 2. og 3. leikhluta, þegar
Grindavík lagði góðan grunn að sigr-
inum.
Þrátt fyrir smá áhlaup Stjörnunnar í
4. leikhluta virtist sigurinn aldrei nokk-
urn tímann í hættu. Menn eins og Justin
Shouse, Hlynur Bæringsson og Marvin
Valdimarsson voru langt frá sínu besta
og segir það ýmislegt að Anthony Od-
unsi var stigahæstur með aðeins 14 stig.
Lewis Clinch var með 29 stig fyrir
Grindavík, Dagur Kár 26 og Þorleifur
Ólafsson skoraði 16 stig. Á meðan
Stjörnuna vantaði mann til að skara
fram úr og taka af skarið voru Grindvík-
ingar með tvo leikmenn sem hittu á
gríðarlega góðan dag. Hrósa ber sókn-
arleik Grindavíkur, en á sama tíma á
varnarvinna Stjörnunnar skilið nei-
kvæða gagnrýni. Hvað eftir annað bökk-
uðu varnarmenn Stjörnunnar undan
sjóðheitum skyttum Grindavíkur og
endaði það að sjálfsögðu illa.
Liðin mætast aftur á þriðjudaginn
kemur og þá í Grindavík. Eins og áður
hefur komið fram hefur Grindavík unnið
heimaleiki sína í úrslitakeppninni fram
að þessu. Stjörnumenn verða því að
spila mun betur en þeir gerðu í gær, til
að lenda ekki 2:0 undir og vera með bak-
ið algjörlega uppi við vegg.
Grindvíkingar verða hins vegar að
halda sér niðri á jörðinni, því það verður
að teljast ólíklegt að liðið bjóði upp á
sýningu í líkingu við það sem sást í
Garðabænum.
„Við verðum að halda
okkur á jörðinni“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Drjúgur Ólafur Ólafsson var baráttuglaður að vanda hjá Grindavík og tók 11 fráköst.
Gríðarlega sterkur útisigur Grindavíkur gegn Stjörnunni Fjórtán þriggja stiga
körfur Grindvíkinga Dagur Kár og Lewis Clinch í aðalhlutverki