Morgunblaðið - 01.04.2017, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017
Mér finnst umræðan um
karlalið KR í körfuboltanum í
vetur vera farin að minna á um-
ræðuna um karlalið FH í fót-
boltanum á sumrin. Ef mið er
tekið af umræðunni eru þessi
lið aldrei að spila nógu vel og
eru aldrei nógu sannfærandi.
Engu að síður vinna þau lang-
flesta leiki sína.
Þessi umræða hefur verið
lífseig í vetur um að KR-ingar
séu ekki sannfærandi og séu
ekki að leika vel. Þeir unnu
samt sem áður bikarkeppnina
og urðu einnig efstir í deildinni.
Gerðu það þrátt fyrir ýmis
skakkaföll. Ekki ómerkari menn
en Jón Arnór og Pavel voru ekki
með um tíma auk þess sem
liðsstyrkurinn frá Bandaríkj-
unum var ekkert sérstakur.
KR hefur hins vegar orðið Ís-
landsmeistari þrjú ár í röð og
er á góðri leið með að bæta
fjórða árinu við. Rétt eins og
árin á undan hefur KR iðulega
spilað góða vörn í vetur. Þegar
lið gera það eiga þau alltaf
ágæta möguleika, ekki síst í til-
felli KR þar sem liðið hefur ým-
is vopn í hraðaupphlaupum. Pa-
vel er mjög fljótur að sjá réttu
sendingaleiðirnar, Þórir og Jón
geta stungið af og Brynjar læt-
ur vaða ef hann er óvaldaður.
Þótt þetta flokkist ekki undir
Harlem Globetrotters-takta er
þetta engu að síður vel gert hjá
liðinu og skilar sigrum.
Síðasta sumar þótti FH
vera heldur varnarsinnað lið á
sinn mælikvarða. Ekki að
ástæðulausu því liðið skoraði
færri mörk en áður undir stjórn
Heimis. En FH-ingar fengu ekki
á sig nema 17 mörk í 22 leikj-
um og töpuðu aðeins þremur
leikjum. Unnu því Íslandsmótið
býsna örugglega. En ekki vant-
aði umræðuna um að FH-ingar
væru ekki sannfærandi.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
EVRÓPUKEPPNI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Við förum í leikinn til þess að vinna
hann, ekki til að verja þá stöðu sem
við erum í eftir fyrri viðureignina.
Okkar markmið er að vinna þá aftur
og það eigum við að gera,“ sagði
Sveinn Aron Sveinsson, leikmaður
Vals, um síðari viðureignina við serb-
neska liðið Sloga Pozega í 8 liða úr-
slitum Áskorendakeppni Evrópu í
handknattleik sem fram fer í Vals-
höllinni í dag. Flautað verður til leiks
klukkan 18.
Valsmenn hafa þriggja marka for-
skot eftir sigur, 30:27, í fyrri viður-
eign liðanna í Pozega fyrir viku. Valur
á þar með góða möguleika á að verða
fyrsta íslenska handknattleiksliðið í
13 ár til þess að komast í undanúrslit í
einhverju af Evrópumótum fé-
lagsliða.
„Þar sem við unnum fyrri leikinn
eigum við alveg eins að vinna leikinn
á okkar heimavelli,“ sagði Sveinn Ar-
on í gær í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að bæði lið hafi haft góðan
tíma til þess að leita veikleika hvort
hjá öðru. „Eflaust reyna leikmenn
Pozega að breyta einhverju í sínum
leik en miðað við það sem við fundum
í fyrri leiknum erum við betri. Við
verðum að halda okkar striki og leika
eins og okkur hentar best.“
Sveinn Aron segir að það skipti
miklu máli fyrir Valsliðið að stjórna
hraða leiksins og reyna eftir megni að
halda honum uppi. Hraður leikur
henti leikmönnum Pozega illa, eins og
reyndar fleiri liðum af þessum slóð-
um Evrópu. „Það sást vel undir lokin
í fyrri leiknum að þegar við jukum
hraðann fengu þeir ekki neitt við ráð-
ið.
Ég tel engan vafa leika á að við er-
um í betra formi til þess að leika
hratt. Slíkur leikur hentar okkur vel,“
sagði Sveinn Aron og bætir við að
mikil eftirvænting ríki í herbúðum
Vals vegna leiksins í dag.
„Ég var á báðum áttum þegar
ákveðið var að taka þátt í keppninni.
Þegar á hólminn er komið er mjög
gaman að fást við nýtt verkefni og
kljást við aðra mótherja en við erum
að eiga við hér heima dag frá degi.
Við höfum notið þess að taka þátt í
keppninni. Það þarf ekki að pína okk-
ur til þess að taka þátt í fleiri leikjum
í keppninni,“ sagði hornamaðurinn
fótfrái.
Getur verið fljótt að fara
„Við verðum að stjórna hrað-
anum,“ sagði Óskar Bjarni Ósk-
arsson, annar þjálfara Vals, í gær um
Evrópuleikinn sem fram fer í dag.
„Það verður fróðlegt að sjá hvaða
tromp leikmenn og þjálfari Pozega
eiga uppi í erminni þegar á hólminn
veðrur komið. Kannski taka þeir einn
úr umferð, leika með sjö í sókninni
eða eitthvað annað. Það er nú einmitt
eitt það skemmtilegasta við þessa
leiki að búa sig undir hið óvænta frá
mótherjanum. Velta fyrir sér og búa
sig undir þá möguleika sem andstæð-
ingurinn mögulega á,“ sagði Óskar
Bjarni, sem hefur eins hinn þjálfari
Vals, Guðlaugur Arnarsson, reynt að
búa Valsliðið sem best undir leikinn í
dag.
„Þótt staða okkar sé vænleg eftir
fyrri leikinn getur forskotið verið
fljótt að renna okkur úr greipum ef
við leikum óskynsamlega og erum
ekki einbeittir og vel undirbúnir.“
Fastlega má búast við að Ýmir Örn
Gíslason verði í leikmannahópi Vals í
dag. Hann hefur verið fjarri góðu
gamni síðustu vikur vegna meiðsla.
„Ýmir er allur að koma til. Hann tek-
ur kannski ekki mikið þátt í leiknum
en verður vafalaust til taks,“ sagði
Óskar, sem reiknar hins vegar ekki
með að Ólafur Ægir Ólafsson verði í
leikmannahópi Vals. Hann sneri sig á
ökkla í viðureign við Selfoss á mið-
vikudagskvöldið.
Við förum í leikinn til
þess að vinna þá aftur
Sveinn Aron segir að ekki þurfi að pína Valsmenn til að leika fleiri Evrópuleiki
Ljósmynd/Aleksandar Djorovic
Fjórtán Josip Juric Grcic í fyrri leiknum þar sem hann gerði 14 marka Vals.
marki, 17:16. Valsmenn svöruðu fyrir
sig með tveggja marka sigri í Laug-
ardalshöllinni 3. febrúar 1980, 18:16.
Í undanúrslitum dróst Valur gegn
Atlético Madrid og var talið að Vals-
liðið ætti ekki mikla möguleika. Vals-
menn létu hrakspár ekki slá sig út af
laginu. Leikurinn í Madríd tapaðist,
en aðeins með þriggja marka mun,
24:21. Vel studdir af rúmlega 3.000
áhorfendum í Laugardalshöll 9. mars
1980 unnu Valsmenn ævintýralegan
sigur, 18:15
Valur tapaði fyrir Grosswallstadt,
21:12, í úrslitaleik sem fram fór í
München 29. mars 1980.
Þróttur í Þrótti
Eina skiptið sem Þróttur hefur
tekið þátt í Evrópukeppni félagsliða
var leiktíðina 1981 til 1982 eftir að lið-
ið varð bikarmeistari. Þróttur lagði
norska liðið Kristiansand í fyrstu um-
ferð, Sittardia Sittard þar á eftir.
Þróttur ruddi ítalska liðinu Tacca
Pallamano burt í 8 liða úrslitum og
dróst á móti Dukla Prag frá Tékkó-
slóvakíu í undanúrslitum. Þróttur
tapaði báðum leikjum, 21:17 og 23:19.
FH-ingar unnu Kolbotn frá Noregi
í fyrstu umferð Evrópukeppni meist-
araliða leiktíðina 1984/1985 og gerðu
sér svo lítið fyrir og lögðu eitt sterk-
asta félagslið Evrópu á þeim tíma,
EVRÓPUKEPPNI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Í gegnum tíðina hafa sex íslensk
handknattleikslið komist í undan-
úrslit á Evrópumótum félagsliða.
Valur gerði gott betur og lék til úr-
slita í Evrópukeppni meistaraliða ár-
ið 1980.
Auk Valsliðsins lánaðist Þrótti að
fara alla leið í undanúrslit í Evrópu-
keppni bikarhafa 1982. FH lék í
undanúrslitum Evrópukeppni
meistaraliða árið 1985. Sama ár tókst
Víkingum að ná inn í undanúrslit í
Evrópukeppni bikarhafa. Haukar
fóru í undanúrslit EHF-bikarsins
2002. Allt eru þetta karlalið. Eina
kvennaliðið sem náð hefur í undan-
úrslit er ÍBV, sem komst svo langt í
Áskorendakeppninni fyrir 14 árum.
Í dag ræðst hvort karlalið Vals
bætist í hóp þeirra liða sem leikið
hafa í undanúrslitum.
Haustið 1979 hófu Valsmenn, undir
stjórn Hilmars Björnssonar þjálfara,
þátttöku í Evrópukeppni meist-
araliða og unnu enska meistaraliðið
Brentwood. Í næstu umferð lögðu
Valsmenn sænska meistaraliðið
Drott í tveimur æsilegum leikjum.
Drott vann heimaleik sinn með einu
Honved frá Ungverjalandi, í annarri
umferð, samtals 53:51. Í átta liða úr-
slitum lögðu FH-ingar hollenska liðið
Hirschi/Vlug.
Í undanúrslitum í lok mars 1985
mættu FH-ingar einu sterkasta fé-
lagsliði allra tíma, Metaloplastika frá
Sabac í Júgóslavíu. Skemmst er frá
því að segja að FH-ingar voru teknir
í kennslustund í fyrri leiknum í Laug-
ardalshöll, 32:17. Hetjuleg barátta í
síðari leiknum dugði FH-ingum
skammt. Þeir töpuðu 30:21.
Sama vetur og FH-ingar komust í
undanúrslit náðu Víkingar einnig að
komast á sama stað í Evrópukeppni
bikarhafa. Víkingar lögðu Fjell-
hammer í fyrstu umferð. Næst tóku
við tveir sigurleikir á Coronas frá
Tenerife. Júgóslavneska liðið
Crvenka var næsta fórnarlamb hins
sterka Víkingsliðs.
Maðkur í mysunni í Barcelona
Í undanúrslitum mætti Víkingur
Barcelona, en það var óskamótherji
Víkinga áður en dregið var. Víkingar
sýndu allar sína bestu hliðar gegn
Barcelona og unnu með sjö marka
mun, 20:13, í Laugardalshöll.
Í seinni leiknum ytra fór allt á
versta veg fyrir Víkinga. Dómarar
leiksins léku stórt hlutverk. Fljótlega
þótti ljóst að maðkur væri í mysunni.
Barcelona vann með tíu marka mun,
22:12..
Fimmtán ár liðu þangað til íslenskt
félagslið komst á ný í undanúrslit í
Evrópukeppni félagsliða. Haustið
2000 tóku Haukar þátt í forkeppni
Meistaradeildarinnar. Þeir unnu
belgískt lið í fyrstu umferð en ABC
Braga í annarri umferð og voru þar
með úr leik en fengu í staðinn sæti í
16 liða úrslitum EHF-bikarsins.
Haukar höfðu þá naumlega betur í
hörkuleikjum við Sandefjord frá
Noregi.
Haukar mættu Sporting Lissabon
í átta liða úrslitum. Leiknum í Lissa-
bon lyktaði með jafntefli, 21:21. Viku
síðar mættust liðin á ný á Ásvöllum
og eftir æsilega viðureign unnu
Haukar nauman sigur, 32:31.
Haukar fengu króatíska liðið
Metkovic Jambo í undanúrslitum.
Metkovic vann fyrri leikinn á Ásvöll-
um, 22:20, og þann síðari ytra, 29:25.
Keppnistímabilið 2003-4 komst
kvennalið ÍBV undir stjórn Aðal-
steins Eyjólfssonar í undanúrslit í
Áskorendakeppninni. Búlgarskt lið
var fyrsti andstæðingurinn. ÍBV
vann það auðveldlega, 55:34, í tveim-
ur leikjum. Í 16 liða úrslitum mætti
ÍBV franska liðinu Havre og vann
útileikinn með átta marka mun,
30:22, en liðin skildu jöfn í Eyjum,
27:27. ÍBV lék við Salonastit Vranjic í
átta liða úrslitum og fóru báðar við-
ureignir fram í fram í Eyjum 12. og
13. mars 2004 og voru mjög kafla-
skiptar. ÍBV vann fyrri leikinn, 37:26,
en tapaði þeim seinni, 32:23.
Í undanúrslitum tapaði ÍBV fyrir
Nürnberg, 38:22 og 36:25.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sterkar Meistaralið ÍBV 2004 fóru í undanúrslit Áskoraendakeppninnar.
Fimm karlalið og eitt
kvennalið í undanúrslit
Komist Valur í undanúrslit í
Áskorendakeppni Evrópu í hand-
knattleik karla getur það sett
stórt strik í reikninginn í úr-
slitakeppni Íslandsmótsins. Und-
anúrslitaleikir Áskorendakeppn-
innar fara annars vegar fram
helgina 22. og 23. apríl og hins
vegar 29. og 30. apríl. Til stendur
að undanúrslit Íslandsmótsins
hefjist miðvikudaginn 19. apríl og
ljúki með fimmtu leikjum laug-
ardaginn 29. apríl, en vinna þarf
þrjá leiki í undanúrslitum til þess
að komast alla leið í úrslit.
Átta liða úrslit úrslitakeppn-
innar verða leikin frá 9.-15. apríl
og ættu ekki að raskast þótt
Valsmenn komist í undanúrslit.
Að þeirri umferð lokinni kemur
einnig í ljós hvort Valur kemst
áfram í undanúslit, en ef það ger-
ist er ljóst að mótastjóra HSÍ bíð-
ur talsverð vinna við að púsla
saman úrslitakeppninni með tilliti
til Valsliðsins. iben@mbl.is
Undanúrslit myndu raska
úrslitakeppninni