Fréttablaðið - 04.12.2017, Síða 2

Fréttablaðið - 04.12.2017, Síða 2
Veður Hæg vestlæg átt og úrkomulítið. Snýst í norðvestanátt með éljum fyrir norðan um kvöldið, en rofar til syðra og kólnar í veðri. sjá síðu 22 VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS Þú átt rétt á matar- og kaffitíma - líka í desember! Dagur á bólakaf Dagur B. Eggertsson borgarstjóri stakk sér til sunds í Sundhöll Reykjavíkur sem var opnuð í gær eftir endurbætur á áttatíu ára afmælisári laugarinn- ar. Framkvæmdirnar hafa tekið um eitt og hálft ár og fyrr á þessu ári var sundlauginni lokað fyrir almenning meðan uppbygging átti sér stað. Í til- efni dagsins mættu starfsmenn og velunnarar Sundhallarinnar á opnunina, en það var borgarstjórinn sem buslaði manna fyrstur. Fréttablaðið/jóik Viðskipti „Viðskiptavinirnir hafa ekki fundið fyrir þessu og bílstjór- arnir ekki tapað tekjum. Við tókum bara upp gamla kerfið sem er tal- stöðin,“ segir Guðmundur Börkur Thorarensen, framkvæmdastjóri BSR, um afleiðingar kerfishruns vefhýsingarfyrirtækisins 1984 á dögunum. Vefsíða, samskiptakerfi og snjallforrit leigubílafyrirtækisins urðu fyrir barðinu á hruninu og enn sér ekki fyrir endann á þeim vand- ræðum. Heimasíða BSR er ekki enn komin í gagnið, tölvupóstur fyrirtækisins lá niðri í viku og rúmlega mánuði síðan er kerfið ekki enn komið upp. „Appið er ekki komið upp ennþá og Reontech, fyrirtækið sem bjó til þetta afgreiðslukerfi fyrir okkur í síma, er að vinna í því að setja það upp að nýju og það auðvitað kostar peninga. Þetta var ekki draumurinn okkar,“ segir Guðmundur Börkur í samtali við Fréttablaðið en fyrir- tækið lagði mikið undir við að koma upp snjallsímaforritinu fyrir nokkrum árum. Hann segir að afrit hafi verið til en kerfið þurfi að stilla og setja upp á ný sem sé töluverð vinna. Þá voru góð ráð dýr og neyddust bílstjórar BSR til að taka upp gömlu talstöðvarsamskiptin, sem menn höfðu talið vera orðin barn síns tíma á snjalltækjaöldinni. „Við spóluðum aðeins aftur í tímann og fórum að nota kerfið sem notað hafði verið áratugina á undan. Það er aðeins meiri vinna að nota talstöðina. Það þreytir bæði fólkið á símanum og bílstjórana. Það er meira áreiti en að fá þetta bara í símann. En við höfum getað sinnt viðskiptavinum okkar áfram,“ segir Guðmundur Börkur og er bjartsýnn á að tæknimálin verði fljótt komin í samt lag. 1984 er enn að rannsaka orsakir hins dularfulla kerfishruns sem hafði víðtæk áhrif á þúsundir við- skiptavina hýsingarfyrirtækisins. Í tilkynningu á vef fyrirtækisins segir að í forgangi sé þó að koma lausnum viðskiptavina upp á ný en að gríðar- legu verki sé lokið en enn sé nóg eftir. Haft var eftir framkvæmda- stjóra fyrirtækisins í Morgun- blaðinu á dögunum að á þriðja tug fyrirtækja hefðu sagt upp samningi sínum við fyrirtækið, en í ljósi þess að fyrirtækið hýsti yfir sjö þúsund vefi og 23 þúsund tölvupóstnot- endur væri hann hrærður yfir því hve lágt hlutfallið væri í raun. mikael@frettabladid.is Bílstjórar BSR tóku upp talstöðvarnar á ný eftir kerfishrun 1984 Kerfishrun vefhýsingarfyrirtækisins 1984 olli því að leigubílafyrirtækið BSR þurfti að taka upp talstöðvarsamskipti á ný. Snjallforrit BSR liggur enn niðri og kostnaður fylgir því að koma samskiptakerfinu aftur í gagnið. Framkvæmda- stjórinn segir endurkomu talstöðvanna fylgja mikið áreiti fyrir starfsfólkið. Guðmundur börkur thorarensen, framkvæmdastjóri bSr, segir kerfishrun 1984 hafa kallað á að fyrirtækið spólaði aftur um nokkur ár í samskiptakerfi. Fréttablaðið/SteFán Fjölmiðlar Sjónvarpsstöðin Hring- braut keypti á dögunum þrotabú sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN sem úrskurðuð var gjaldþrota um miðj- an síðasta mánuð. Þetta staðfestir Sigmundur Ernir Rúnarsson, dag- skrár- og þróunarstjóri sjónvarps hjá Hringbraut. Framtíð ÍNN og hvort stöðin fari í loftið á ný ráðist á næstunni. „Við höfum allt opið í þeim efnum. Fyrst og fremst ætlum við að huga að Hringbraut næstu misseri, efla dreifikerfið og það sakar ekki að vera komin með þessa rás sem ÍNN var með.“ ÍNN var ein þeirra eigna sem Frjáls fjölmiðlun keypti út úr Press- unni á dögunum en stöðin var úrskurðuð gjaldþrota 15. nóvember síðastliðinn. Útsendingar hafa legið niðri um hríð. „ÍNN í þeirri mynd sem hún var í verður ekki rekin undir okkar hatti,“ segir Sigmundur Ernir. Aðspurður hvort það þýði að stofnandinn Ingvi Hrafn Jónsson sé ekki væntanlegur aftur á skjáinn segir hann: „Ég á bágt með að trúa því.“ – smj Nýir eigendur segja framtíð ÍNN óráðna Sigmundur ernir segir að fari Ínn aftur í loftið verði það með öðru sniði en áður. Fréttablaðið/anton Það sakar ekki að vera komin með þessa rás sem ÍNN var með. Sigmundur Ernir Rúnarsson lögreglumál Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í tólf daga gæsluvarðhald. Hann er grunaður um að hafa stungið tvo menn með hnífi á Austurvelli í fyrri- nótt. Brotaþolarnir, albanskir karl- menn, voru fluttir á bráðamóttöku. Þegar Fréttablaðið fór í prentun, seint í gærkvöldi, var öðrum mann- inum enn haldið sofandi og var hann í lífshættu. Hinn maðurinn slasaðist minna. Vitni gátu gefið lýsingar sem leiddu til handtöku hins grunaða í Garðabæ nokkru eftir árásina. Hann var vistaður í fangageymslu. Stuðst er við myndbandsupp- tökur við rannsókn málsins en lögreglan hefur beinan aðgang að myndavélum á Austurvelli. Unnið er að því að fá myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum veitingastaða í nágrenninu. – ósk Tólf daga gæsluvarðhald 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m á N u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 0 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 4 -1 8 C C 1 E 6 4 -1 7 9 0 1 E 6 4 -1 6 5 4 1 E 6 4 -1 5 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.