Fréttablaðið - 04.12.2017, Blaðsíða 6
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
Rexton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
og auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Hátt í þrjú þúsund skíðaunnendur lögðu leið sína á Verbier-skíðasvæðið í svissnesku Ölpunum og fengu þar ókeypis aðgang að hlíðunum. Skíða-
menn þurftu reyndar að koma klæddir sem ýmist jólasveinninn eða dýrðlingurinn heilagur Nikulás til að fá ókeypis inn. Það vafðist hins vegar
ekki fyrir þessari konu eða ríflega 2.600 öðrum sem nutu sín prúðbúnir í brekkunni og fögnuðu upphafi skíðatímabilsins. Fréttablaðið/EPa
Svissneskir jólasveinar í svigi
Þýskaland Lögregla segir sprengju,
sem fannst á jólamarkaði í þýsku
borginni Potsdam á föstudag, ekki
tengjast hryðjuverkastarfsemi. Þeir
sem báru ábyrgð á sprengjunni hafi
ætlað að kúga fé út úr þýsku hrað-
sendingarþjónustunni DHL.
Jólamarkaður í miðborg Potsdam
var rýmdur síðdegis á föstudag eftir
að yfirvöld fundu grunsamlegan
böggul sem lögreglan óttaðist að
væri heimagerð sprengja.
Pakkinn grunsamlegi hafði verið
sendur í apótek nálægt markaðnum.
Starfsmaður tilkynnti málið til lög-
reglu og var böggullinn gegnum-
lýstur. Hann innihélt nagla í þús-
undatali, vír og rafhlöður.
Við rannsókn fannst enn fremur
QR-kóði sem lögregla skannaði.
Þá kom í ljós að þeir sem höfðu
sent sprengjuna í apótekið hugð-
ust kúga milljónir evra út úr DHL,
sem sá um sendinguna. Yrði ekki af
greiðslu sögðust þeir ætla að virkja
sprengjuna.
Yfirvöld segja fullljóst að pakk-
inn hafi ekki verið ætlaður jóla-
markaðnum og að ekki hafi verið
um hryðjuverk að ræða.
Mikill viðbúnaður er í Þýskalandi
vegna ótta um hryðjuverkaárásir. Í
desember í fyrra létust tólf í hryðju-
verkaárás á jólamarkað í Berlín
þegar maður ók vörubíl inn í mann-
þyrpingu á markaðnum. – kó
Fjárkúgun en
ekki hryðjuverk
stokkseyri Nokkurrar óánægju
hefur gætt meðal íbúa á Stokkseyri
sem segja Strætó ekki virða hraða-
takmarkanir. Strætó kemur átta
sinnum á virkum dögum á Stokks-
eyri. „Ástandið hefur verið ansi
slæmt mjög lengi og ekkert lagast
þó það sé búið að kvarta við Strætó.
Íbúarnir sem búa við göturnar sem
strætóinn keyrir hafa miklar áhyggj-
ur af hraða bílanna, sérstaklega þar
sem gangandi vegfarendur eru og
ekki síst þar sem börn eru. Við lítum
málið mjög alvarlegum augum,“
segir Guðný Ósk Vilmundardóttir,
formaður hverfaráðs Stokkseyrar.
Ráðið sendi inn athugasemd til
bæjarráðs Árborgar vegna hraða
strætisvagnanna. Í svari ráðsins
kemur fram að athugasemdir við
aksturslag Strætó sem hafa borist
sveitarfélaginu séu sendar Strætó
jafnharðan.
Guðný Ósk segir að meirihluti
farþega vagnanna séu börn og ungl-
ingar á Stokkseyri sem séu að fara
í tómstundir á Selfossi og því gangi
það ekki að vagnarnir
séu keyrðir jafn
hratt og raun ber
vitni.
Guðmundur
Heiðar Helgason,
upplýsingafulltrúi
Strætó, kannaðist
upphaflega ekki
við málið, en lét skoða það nánar.
„Við skoðuðum gögnin fyrir nokkr-
ar ferðir í gegnum Stokkseyri og í
einhverjum tilvikum virðast vagn-
arnir fara aðeins yfir 30 kílómetra
hámarkshraðann sem er á Eyrar-
braut. Við lítum það náttúrulega
mjög alvarlegum augum ef bílstjór-
arnir okkar eru að keyra of hratt og
við væntum þess að allir bíl-
s t j ó r a r
Strætó aki sómasamlega og séu til
fyrirmyndar í umferðinni. Vagn-
arnir okkar komast ekki hraðar en
90 kílómetra á klukkustund þegar
þeir aka á þjóðvegum landsins, en
hins vegar er mikilvægt að bílstjórar
gleymi sér ekki þegar komið er inn
í þéttbýlið og nauðsynlegt er sýna
aukna varkárni,“ segir hann.
Guðmundur Heiðar segir að tekið
verði á málinu. „Við munum setja
okkur í samband við ökumenn
á leið 75 og fara betur yfir málið
með þeim.“ mhh@frettabladid.is
Íbúar segja Strætó fara of hratt
Íbúar á Stokkseyri eru ekki sáttir við Strætó. Segja vagnana keyra alltof hratt í gegnum þorpið sem skapi
stórhættu fyrir íbúa. Upplýsingafulltrúi Strætó lítur málið alvarlegum augum og segir að tekið verði á því.
Meirihluti farþega vagn-
anna eru börn og unglingar.
Bandaríkin Lík þriggja ára stúlku
frá Norður-Karolínu í Bandaríkj-
unum fannst í læk um 40 kíló-
metra frá heimili hennar í Jack-
sonville í gær. Fósturfaðir hennar
var handtekinn vegna málsins á
föstudag.
Mariuh Woods hafði verið sakn-
að í eina viku þegar lík hennar
fannst en móðir stúlkunnar kvaðst
síðast hafa séð hana eftir að hún
háttaði hana á sunnudagskvöld
fyrir rúmri viku. Umfangsmikil
leit hófst að stúlkunni strax á
mánudagsmorgun í síðustu viku.
Earl Kimrey, kærasti móður-
innar, var síðan handtekinn á
föstudagskvöldið. Hann er grun-
aður um að hylma yfir dauðsfall
og hindra framgang réttvísinnar.
Hann er enn í haldi lögreglu og á
yfir höfði sér frekari ákærur í mál-
inu. – smj
Litla stúlkan
fannst látin
Böggullinn innihélt
nagla í þúsundatali, vír og
rafhlöður.
4 . d e s e m B e r 2 0 1 7 m Á n U d a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
4
-4
0
4
C
1
E
6
4
-3
F
1
0
1
E
6
4
-3
D
D
4
1
E
6
4
-3
C
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K