Fréttablaðið - 04.12.2017, Blaðsíða 13
Bréfaskipti fyrrverandi elskenda, furðuleg
ökuferð um úthver Reykjavíkur, harðar deilur í
húsfélagi, óttatilraun drengs úr sveit,
kjarnorkusprengjur, skjaldarmerki og engiferrætur.
Ragnar Helgi Ólafsson fer á kostum í bók sem
einkennist af húmor og heimspeki, fegurðarþrá og
frásagnargleði. Og svo er bókin að auki glæsilegur
prentgripur!
HANDBÓK UM MINNI OG GLEYMSKU EFTIR RAGNAR HELGA ÓLAFSSON
HVER BÓK
INNSIGLUÐ
Í
HÖNDUNUM
!
TIL HAMINGJU!
Handbók um minni og gleymsku er tilnefnd til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Verslun og hvers kyns banka-viðskipti fara í auknum mæli fram á netinu. Því þarf ekki
að koma á óvart að netglæpum fer
fjölgandi – þar eru peningarnir og
þar sjá glæpamennirnir tækifæri.
Áreiðanlegar upplýsingar um heild-
artjón af völdum netsvika liggja
ekki fyrir, enda tilkynna ekki öll
fórnarlömb um tjónið. Til marks um
umfangið má þó benda á að banda-
ríska alríkislögreglan (FBI) áætlaði
nýlega að frá árinu 2014 hefðu, á
heimsvísu, alls 2,3 milljarðar Banda-
ríkjadala verið sviknir út með ein-
hvers konar netglæpum.
Ísland er komið á radarinn
Hér á landi liggja ekki fyrir upp-
lýsingar um heildarfjárhæð tjóns af
völdum netglæpa. Það er hins vegar
ljóst að Ísland er komið á radarinn
hjá erlendum netglæpahópum. Til
marks um það er m.a. að svikum
sem byggja á fölsuðum fyrirmælum
hefur farið fjölgandi. Um miðjan
nóvember fengu nokkrir fjármála-
stjórar íslenskra fyrirtækja tölvu-
pósta sem litu út fyrir að vera frá
framkvæmdastjóra viðkomandi
fyrirtækis. Í póstinum var spurt
hvort tiltekin fjárhæð væri til reiðu
á bankareikningi og óskað eftir
að hún yrði millifærð á erlendan
reikning. Í nokkrum tilvikum féllu
viðtakendur í gildruna. Póstarnir
voru á íslensku en báru þess merki
að hafa verið þýddir úr ensku, lík-
lega með aðstoð Google Translate.
Svikum sem þessum hefur fjölgað til
muna í Danmörku og það er ljóst að
þeim mun einnig fjölga hér á landi.
Það er því afar mikilvægt fyrir fyrir-
tæki að vera vel á verði. Tryggja þarf
að öruggir ferlar við millifærslur séu
til staðar og að alltaf sé farið eftir
þeim – líka þegar póstur eða SMS
berst frá framkvæmdastjóra með
fyrirmælum um hið gagnstæða. Í
sumum þessara tilvika hefur reynd-
ar verið hægt að endurheimta féð
en einnig eru dæmi um að fyrirtæki
hafi orðið fyrir verulegu tjóni.
Svikatilraunirnar beinast ekki
síður að einstaklingum og snúast
oft um að ná greiðslukortanúm-
erum og aðgangsupplýsingum fyrir
bankareikninga. Algeng aðferð er
að senda fólki tölvupósta sem líta
út fyrir að koma frá raunverulegum
fyrirtækjum með tilmælum um
að fólk slái inn greiðslukortaupp-
lýsingar og öryggisnúmer. Gjalda
skal varhug við slíkum póstum því
venjuleg, heiðvirð fyrirtæki biðja
ekki upp úr þurru um slíkar upp-
lýsingar í tölvupósti. Á Norðurlönd-
unum hefur einnig borið á þróaðri
aðferðum, m.a. tölvuvírusum sem
safna aðgangsupplýsingum og
auðkennum sem glæpamennirnir
geta notað til að fá aðgang að net-
bönkum. Enn sem komið er hafa
slíkir vírusar ekki borist hingað til
lands, svo vitað sé.
Sameinast um aukið netöryggi
Glæpahópar sem stunda svik á net-
inu vinna oft saman, illa fengnar
upplýsingar ganga kaupum og
sölum og þeir láta sig landamæri
engu varða. Til að bregðast við
þessari ógn er nauðsynlegt að efla
alþjóðlegt samstarf og samstarf á
milli einstakra landsvæða.
Mikilvægur áfangi í baráttunni
gegn netsvikum náðist í apríl sl.
þegar þrír norrænir stórbankar,
Nordea, DnB og Danske Bank,
settu á laggirnar samstarfsvettvang
um baráttu gegn netglæpum. Sam-
starfsvettvangurinn nefnist Nordic
Financial CERT og er eins konar fjár-
hagsleg netöryggissveit norrænna
fjármálafyrirtækja. Síðan þá hefur
fjöldi banka og tryggingafélaga bæst
í hópinn og í nóvember gekk Lands-
bankinn í samtökin, fyrst íslenskra
fjármálafyrirtækja. Fyrirtæki sem
eru aðilar að samtökunum skiptast
á viðeigandi upplýsingum um hvers
kyns tilraunir til fjársvika á netinu
og hvernig megi verjast þeim.
Reynslan sýnir að netárásir eru
gjarnan umfangsmiklar og beinast
sjaldnast aðeins að einu fyrirtæki
eða einu landi og því er afar mikil-
vægt að upplýsingar um netsvik og
tölvuárásir berist hratt og örugglega.
Hagsmunamál fyrir allt
samfélagið
Samstarfið á vettvangi Nordic
Financial CERT bætist við annað
öryggissamstarf. Landsbankinn er
t.a.m. virkur þátttakandi í samstarfi
öryggishóps norrænna banka sem
funda vikulega. Á vettvangi Sam-
taka fjármálafyrirtækja (SFF) starfar
sömuleiðis hópur sem hefur þann
tilgang að sameina krafta íslenskra
banka í baráttunni við netglæpi. Það
er engu að síður ljóst að tilkoma
Nordic Financial CERT eflir mjög
getu norrænna fjármálafyrirtækja
til að berjast gegn netglæpum – og
ekki veitir af. Sú barátta er mikilvæg
fyrir fjármálafyrirtækin, viðskipta-
vini þeirra og samfélagið allt.
Að lokum viljum við nota tæki-
færið og benda á að á Umræðunni,
efnis- og fréttaveitu Landsbankans,
er ítarleg umfjöllun um hvernig
hægt er að bera kennsl á og verjast
svikatilraunum á netinu.
Bankar sameinast í baráttu gegn netglæpum
Hákon Lennart Aakerlund
og Ægir Þórðarson
sérfræðingar í netöryggi hjá Lands-
bankanum og Ægir er jafnframt
forstöðumaður kerfisrekstrar hjá
bankanum
Það er hins vegar ljóst að Ís-
land er komið á radarinn hjá
erlendum netglæpahópum.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M Á n u D A G u R 4 . D e S e M B e R 2 0 1 7
0
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
4
-1
D
B
C
1
E
6
4
-1
C
8
0
1
E
6
4
-1
B
4
4
1
E
6
4
-1
A
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K