Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2017, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 04.12.2017, Qupperneq 13
Bréfaskipti fyrrverandi elskenda, furðuleg ökuferð um úthver Reykjavíkur, harðar deilur í húsfélagi, óttatilraun drengs úr sveit, kjarnorkusprengjur, skjaldarmerki og engiferrætur. Ragnar Helgi Ólafsson fer á kostum í bók sem einkennist af húmor og heimspeki, fegurðarþrá og frásagnargleði. Og svo er bókin að auki glæsilegur prentgripur! HANDBÓK UM MINNI OG GLEYMSKU EFTIR RAGNAR HELGA ÓLAFSSON HVER BÓK INNSIGLUÐ Í HÖNDUNUM ! TIL HAMINGJU! Handbók um minni og gleymsku er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Verslun og hvers kyns banka-viðskipti fara í auknum mæli fram á netinu. Því þarf ekki að koma á óvart að netglæpum fer fjölgandi – þar eru peningarnir og þar sjá glæpamennirnir tækifæri. Áreiðanlegar upplýsingar um heild- artjón af völdum netsvika liggja ekki fyrir, enda tilkynna ekki öll fórnarlömb um tjónið. Til marks um umfangið má þó benda á að banda- ríska alríkislögreglan (FBI) áætlaði nýlega að frá árinu 2014 hefðu, á heimsvísu, alls 2,3 milljarðar Banda- ríkjadala verið sviknir út með ein- hvers konar netglæpum. Ísland er komið á radarinn Hér á landi liggja ekki fyrir upp- lýsingar um heildarfjárhæð tjóns af völdum netglæpa. Það er hins vegar ljóst að Ísland er komið á radarinn hjá erlendum netglæpahópum. Til marks um það er m.a. að svikum sem byggja á fölsuðum fyrirmælum hefur farið fjölgandi. Um miðjan nóvember fengu nokkrir fjármála- stjórar íslenskra fyrirtækja tölvu- pósta sem litu út fyrir að vera frá framkvæmdastjóra viðkomandi fyrirtækis. Í póstinum var spurt hvort tiltekin fjárhæð væri til reiðu á bankareikningi og óskað eftir að hún yrði millifærð á erlendan reikning. Í nokkrum tilvikum féllu viðtakendur í gildruna. Póstarnir voru á íslensku en báru þess merki að hafa verið þýddir úr ensku, lík- lega með aðstoð Google Translate. Svikum sem þessum hefur fjölgað til muna í Danmörku og það er ljóst að þeim mun einnig fjölga hér á landi. Það er því afar mikilvægt fyrir fyrir- tæki að vera vel á verði. Tryggja þarf að öruggir ferlar við millifærslur séu til staðar og að alltaf sé farið eftir þeim – líka þegar póstur eða SMS berst frá framkvæmdastjóra með fyrirmælum um hið gagnstæða. Í sumum þessara tilvika hefur reynd- ar verið hægt að endurheimta féð en einnig eru dæmi um að fyrirtæki hafi orðið fyrir verulegu tjóni. Svikatilraunirnar beinast ekki síður að einstaklingum og snúast oft um að ná greiðslukortanúm- erum og aðgangsupplýsingum fyrir bankareikninga. Algeng aðferð er að senda fólki tölvupósta sem líta út fyrir að koma frá raunverulegum fyrirtækjum með tilmælum um að fólk slái inn greiðslukortaupp- lýsingar og öryggisnúmer. Gjalda skal varhug við slíkum póstum því venjuleg, heiðvirð fyrirtæki biðja ekki upp úr þurru um slíkar upp- lýsingar í tölvupósti. Á Norðurlönd- unum hefur einnig borið á þróaðri aðferðum, m.a. tölvuvírusum sem safna aðgangsupplýsingum og auðkennum sem glæpamennirnir geta notað til að fá aðgang að net- bönkum. Enn sem komið er hafa slíkir vírusar ekki borist hingað til lands, svo vitað sé. Sameinast um aukið netöryggi Glæpahópar sem stunda svik á net- inu vinna oft saman, illa fengnar upplýsingar ganga kaupum og sölum og þeir láta sig landamæri engu varða. Til að bregðast við þessari ógn er nauðsynlegt að efla alþjóðlegt samstarf og samstarf á milli einstakra landsvæða. Mikilvægur áfangi í baráttunni gegn netsvikum náðist í apríl sl. þegar þrír norrænir stórbankar, Nordea, DnB og Danske Bank, settu á laggirnar samstarfsvettvang um baráttu gegn netglæpum. Sam- starfsvettvangurinn nefnist Nordic Financial CERT og er eins konar fjár- hagsleg netöryggissveit norrænna fjármálafyrirtækja. Síðan þá hefur fjöldi banka og tryggingafélaga bæst í hópinn og í nóvember gekk Lands- bankinn í samtökin, fyrst íslenskra fjármálafyrirtækja. Fyrirtæki sem eru aðilar að samtökunum skiptast á viðeigandi upplýsingum um hvers kyns tilraunir til fjársvika á netinu og hvernig megi verjast þeim. Reynslan sýnir að netárásir eru gjarnan umfangsmiklar og beinast sjaldnast aðeins að einu fyrirtæki eða einu landi og því er afar mikil- vægt að upplýsingar um netsvik og tölvuárásir berist hratt og örugglega. Hagsmunamál fyrir allt samfélagið Samstarfið á vettvangi Nordic Financial CERT bætist við annað öryggissamstarf. Landsbankinn er t.a.m. virkur þátttakandi í samstarfi öryggishóps norrænna banka sem funda vikulega. Á vettvangi Sam- taka fjármálafyrirtækja (SFF) starfar sömuleiðis hópur sem hefur þann tilgang að sameina krafta íslenskra banka í baráttunni við netglæpi. Það er engu að síður ljóst að tilkoma Nordic Financial CERT eflir mjög getu norrænna fjármálafyrirtækja til að berjast gegn netglæpum – og ekki veitir af. Sú barátta er mikilvæg fyrir fjármálafyrirtækin, viðskipta- vini þeirra og samfélagið allt. Að lokum viljum við nota tæki- færið og benda á að á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, er ítarleg umfjöllun um hvernig hægt er að bera kennsl á og verjast svikatilraunum á netinu. Bankar sameinast í baráttu gegn netglæpum Hákon Lennart Aakerlund og Ægir Þórðarson sérfræðingar í netöryggi hjá Lands- bankanum og Ægir er jafnframt forstöðumaður kerfisrekstrar hjá bankanum Það er hins vegar ljóst að Ís- land er komið á radarinn hjá erlendum netglæpahópum. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M Á n u D A G u R 4 . D e S e M B e R 2 0 1 7 0 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 6 4 -1 D B C 1 E 6 4 -1 C 8 0 1 E 6 4 -1 B 4 4 1 E 6 4 -1 A 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.