Fréttablaðið - 04.12.2017, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 04.12.2017, Blaðsíða 36
Alþjóðadagur fatlaðra var í gær, 3. desember. Dagurinn var fyrst haldinn af Sam-einuðu þjóðunum árið 1992 og er haldinn til stuðnings réttindum fatlaðs fólks alþjóðlega. Sameinuðu þjóðirnar telja að einn af hverjum sjö fæðist með eða fái einhvers konar fötlun á lífsleiðinni. Á Íslandi má gera ráð fyrir að á milli 4.000 og 5.000 einstaklingar séu með fötlun, þar af 34 prósent börn. Í dag veitir Öryrkjabandalag Íslands Hvatningarverðlaun sín, í ellefta sinn. Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað að eins sam- félagi fyrir alla og endurspegla nútíma- legar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum, það er flokki ein- staklinga, flokki fyrirtækja/stofnana og flokki umfjöllunar/kynningar. Verndari verðlaunanna er forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Hönnuður verðlauna- gripsins er Þórunn Árnadóttir vöru- hönnuður. Niðurstöður dómnefndar verða kunngerðar við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica í dag klukkan 14-16. Vilja skapa jákvæða ímynd „Við höfum reynt að halda pínulítið upp á daginn, og eins með Hvatningarverð- launin þá notum við þau til að vekja athygli á góðum verkum í samfélaginu okkar og þeim fyrirtækjum sem hafa lagt eitthvað gott til málanna. Þau eiga að efla frumkvæði til nýrra verkefna og hugmyndavinnu í málaflokknum og skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk. Þau eiga að vera hvatning til að gera enn betur í samfélaginu og endurspegla okkar einkunnarorð, eitt samfélag fyrir alla,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. Margra ára barátta fyrir NPA „Alþjóðadagur fatlaðra er tileinkaður fötluðu fólki, baráttu þess og lífi þess. Þetta er einn partur af því að geta verið sýnileg út á við og að það sé munað eftir þessum hópi. Hann er mjög mikil- vægur,“ segir Þuríður Harpa. „Núna getum við notað hann til að varpa ljósi út frá einhverju baráttumáli. Fyrir öryrkja og fatlaða á Íslandi eru það númer eitt, tvö og þrjú kjör öryrkja og fatlaðs fólks og þessar skelfilegu skerð- ingar sem eru að koma á þennan þjóð- félagshóp sem getur enga björg sér veitt,“ segir hún. „Við erum búin að berjast fyrir NPA í mörg ár. Þetta er algert mannrétt- indatól. Fyrir þann sem lendir í því að vera hreyfihamlaður eða með hvers kyns hömlun sem er, þá skiptir þetta gríðar- lega miklu máli, hvort hann hafi þetta tæki til að geta tekið þátt í samfélaginu. Þetta skiptir bara öllu máli. Hvort þú liggur í rúminu hjálparlaus heilu helg- arnar eða vikurnar. Eða hvort þú færð að fara út á þínum forsendum.“ Samningurinn mikilvægur Þuríður víkur einnig að mikilvægi samn- ings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hann var fullgiltur á Íslandi á síðasta ári. Samningurinn er alþjóða- samningur sem felur í sér skyldur aðild- arríkja til þess að tryggja réttindi fatlaðs fólks. Þuríður segir að hún hefði viljað sjá lögfestingu sáttmálans í stjórnar- sáttmála nýrrar ríkisstjórnar. „Ef þú ert búinn að lögfesta, þá hefurðu aðeins meiri pressu á að innleiða lög, en ef þú ert ekki búinn að lögfesta, þá er engin pressa. Þá gera bara stjórnvöld þetta ein- hvern veginn. Ég hefði viljað sjá að þeir hefðu ætlað sér að lögfesta og ef það á að innleiða að það væri tímarammi á þessu.“ lovisa@frettabladid.is Alþjóðadagur fatlaðra í tuttugasta og fimmta sinn Dagurinn  er haldinn til stuðnings réttindum fatlaðs fólks á alþjóðavísu. Öryrkjabanda- lagið veitir Hvatningarverðlaun í ellefta sinn í dag í tilefni dagsins. Þuríður Harpa, formað- ur ÖBÍ, ræðir mikilvægi dagsins. „Þetta er einn partur af því að geta verið sýnileg út á við.“ Þuríður er formaður Öryrkjabandalagsins. Hún segir mikilvægt að skapa jákvæða ímynd um fatlað fólk út á við. FréttAblAðið/HANNA Við erum búin að berjast fyrir NPA í mörg ár. Þetta er algert mannréttinda- tól. Fyrir þann sem lendir í því að vera hreyfihamlaður eða með hvers kyns hömlun sem er, þá skiptir þetta gríðarlega miklu máli, hvort hann hafi þetta tæki til að geta tekið þátt í samfélag- inu. Þetta skiptir bara öllu máli. Hvort þú liggur í rúminu hjálp- arlaus heilu helgarnar eða vikurnar. Eða hvort þú færð að fara út á þínum forsendum. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Inga S. Ingvarsdóttir Borgarbraut 65a, Borgarnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð fimmtudaginn 30. nóvember. Útför hennar fer fram laugardaginn 9. desember kl. 14.00 frá Borgarneskirkju. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar. Jón Þórðarson Þórður H. Jónsson Sigríður Gígí Jónsdóttir Gunnar Jónsson Helga Halldórsdóttir Garðar Jónsson lára Hagalín björgvinsdóttir Sesselja Jónsdóttir Árni Hilmarsson Finnbogi Jónsson Kristín Ósk Halldórsdóttir barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur, Valdimar Sigfússon múrari, lést sunnudaginn 19. nóvember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 6. desember kl. 13.00. Valgerður G. Hannesdóttir brynjar Már Valdimarsson Anna Christine Aclipen Heiða Kristín Valdimarsdóttir Noah Mabifa systkini, makar, barnabörn og barnabarnabarn. Úrvalslið Reykjavíkur í handbolta lék gegn Baník Karviná frá Tékkóslóvakíu þennan dag árið 1965 og hafði betur. Leikurinn var sá fyrstu sem fram fór í Íþróttahöllinni í Laugardal. Um það bil tvö þúsund áhorfendur fylgdust spenntir með leiknum. Þáverandi borgarstjóri, Geir Hallgrímsson, opnaði Höllina fyrir leikinn, en hún var svo vígð formlega þann 6. desember 1965. Opnun Laugardalshallar markaði þáttaskil í íþróttaiðkun innanhúss hér á landi, auk þess sem sýningar- og tónleikahald fékk veglegri umgjörð en nokkru sinni fyrr hér á landi. Höllin var teiknuð af Gísla Halldórssyni arkítekt árið 1959 og reist af Reykjavíkurborg og Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Meðal stórra viðburða í Höllinni má nefna tónleika Led Zepp elin árið 1970, skákeinvígi Fischers og Spasskíjs 1972 og heimsmeistaramótið í handbolta árið 1995. Þá voru tónleikar þýsku sveitarinnar Rammstein mikið fyrir augað, en hún kom fram í Laugardalshöllinni árið 2001. Þ ETTA G E R ð i ST : 4 . D E S E m b E R 1 9 6 5  Fyrsti leikurinn í Laugardalshöllinni laugardalshöll. FréttAblAðið/Pétur Merkisatburðir 1791 Fyrsta tölublað The Observer, fyrsta sunnudags- dagblaðs heims, er gefið út. 1954 Kvikmyndin Salka Valka eftir sögu Halldórs Laxness er frumsýnd í Nýja bíói og Austurbæjarbíói í Reykjavík. 1981 Stytta af heilagri Barböru er afhjúpuð á messudegi hennar í kapellunni í Kapelluhrauni við Straumsvík. 2006 Wii-leikjatölvan frá Nintendo er sett á markað. 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m Á N U d A G U r20 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímAmót 0 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 6 4 -1 D B C 1 E 6 4 -1 C 8 0 1 E 6 4 -1 B 4 4 1 E 6 4 -1 A 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.