Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2017 Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is Starfsfólk við grunn- og leikskóla í Öræfum Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir starfsfólki í eftirtalin störf í samreknum leik- og grunnskóla í Hof-             um eins og hálfs km. akstursfjarlægð frá Höfn þar sem                 !    "         % &          #   '( '     • Leikskólakennara. • Stuðningsfulltrúa í leik- og grunnskóla. Starf grunnskólakennara hefst 1. ágúst en störf leik-   ( !         )  frá 14. ágúst. *   +(        #          (      ! ,                     Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2017. ,                     Umsóknir berist til Ragnhildar Jónsdóttur fræðslu- stjóra á netfangið ragnhildur@hornafjordur.is s. 470 8000 sem veitir nánari upplýsingar. Pálína Þorsteinsdóttir núverandi skólastjóri veitir jafnframt upplýsingar í tölvupósti, palinath@hornafjordur.is eða í síma 478-1672. Skólaskrifstofa Austurlands Sálfræðingar Skólaskrifstofa Austurlands óskar eftir að ráða tvo sálfræðinga í fullt starf frá og með 1. ágúst 2017 Leitað er eftir jákvæðum og duglegum einstaklingum. Reynsla af sálfræðistörfum við leik- og grunnskóla eða annarskonar sálfræðiþjónustu við börn er æskileg. Starfssvæði Skólaskrifstofunnar eru allir leik- og grunnskólar á Austurlandi. Laun eru skv. kjarasamningi SNS og SÍ. Umsóknarfrestur er til 26. maí 2017. Umsóknir með upplýsingum sendist til Skólaskrifstofu Austurlands, Búðareyri 4, 730 Reyðarfirði. Nánari upplýsingar veitir: Sigurbjörn Marinósson forstöðumaður í síma 470 5050 eða 893 2330. Einnig má sjá upplýsingar á www.skolaust.is Kórstjóri óskast Karlakórinn Þrestir er að leita að kórstjóra til að taka við kórnum næsta haust Leitað er að líflegum einstaklingi, helst með reynslu af kórstjórn sem væri tilbúinn að móta og efla reynslumikinn kór. Umsóknir sendist á Threstir@threstir.is Umsóknarfrestur er til 21.05. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál Starfsmaður óskast SLÁTTU- OG GARÐAÞJÓNUSTA SUÐURLANDS EHF Sláttu- og garðaþjónusta Suðurlands ehf sem er að hefja 25. starfsárið óskar eftir laghentum manni til reksturs fyrirtækisins í sumar. Unnið er á Selfossi og nágrenni. - Góð trygging og árangurstengd laun - Gott tækifæri fyrir duglegan mann - Vélaréttindi kostur - Möguleg eignaraðild á fyrirtækinu til lengri tíma Allar frekari upplýsingar veitir: Jónas Guðmundsson s: 824-0892 slattuthjonusta@gmail.com Gæðastjóri Dögun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi í starf gæðastjóra. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Gæðastjóri Dögunar ber ábyrgð á rekstri og þróun gæða- og öryggiskerfa félagsins. Dögun sérhæfir sig í veiðum og vinnslu á rækju og starfrækir mjög fullkomna rækjuvinnslu á Sauðárkróki. Starfssvið: • Ábyrgð á gæða- og öryggismálum félagsins. • Gæðaeftirlit og framkvæmd gæðastefnu félagsins. • Samskipti við erlenda viðskiptavini. • Umsjón með úttektum viðskiptavina. • Eftirlit með umgengni á vinnustaðnum. • Upplýsingagjöf og fræðsla um gæðamál. • Önnur tilfallandi verkefni. Hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi. • Reynsla og þekking á matvælavinnslu æskileg. • Þekking á gæðamálum. • Góð tölvukunnátta. • Góð enskukunnátta. • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. • Þjónustulund og fagleg framkoma. • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi. Vinsamlegast sendið umsókn á oskar@dogun.is. Upplýsingar gefur Óskar í síma 892-1586 eða Hilmar í síma 898-8370. Dögun er staðsett á Sauðárkróki og gerir út skipið Dag SK 17 og rekur eina fullkomnustu rækju- vinnslu á Íslandi. Stærstu hluti framleiðslunnar fer til viðskiptavina erlendis. Blikksmíði ehf. óskar eftir blikksmiðum eða vönum mönnum í blikksmíðavinnu, einnig aðstoðarmönnum. Upplýsingar í síma 893 4640 eða á blikksmidi@simnet.is ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 Félag framhaldsskólakenn- ara tekur, í yfirlýsingu frá því fyrr í vikunni, skýra afstöðu gegn fyrirhugaðri samein- ingu Tækniskólans og Fjöl- brautaskólans við Ármúla. Þar segir að rekstrarform þessara skóla og áherslur þeirra séu eru ólíkar. Tækni- skólinn sé einkarekinn skóli með framlagi frá ríkinu í eigu nokkurra félagasamtaka og hafi starfað frá 2008 en Fjöl- brautaskólinn við Ármúla sé ríkisskóli, stofnaður 1981. „Á Íslandi hefur stefnan verið sú að allir hafi jöfn tækifæri til náms og að menntun sé hluti af velferð- arkerfinu en ekki vettvangur markaðsvæðingar. Það er verulegt áhyggjuefni ef ætl- unin er að einkavæða menntakerfið einn skóla í einu, eins og þessi aðgerð ber með sér,“ segja framhalds- skólakennarar. Nám við hæfi Í ályktun sinni minna fram- haldsskólakennarar jafn- framt á að skólarnir séu op- inberar stofnanir enda sé hlutverk þeirra að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi með því að bjóða hverjum nemanda nám við hæfi, óháð efnahag og fé- lagslegri stöðu. Hætt sé við að þessar hugmyndir fari for- görðum ef þær eru að fullu settar í hendur einkaaðila. „Stór hópur nemenda og fjöldi starfsfólks bíður nú í óvissu um framtíð sína. Það þolir enga bið að kalla þennan hóp saman og upplýsa ítar- lega um framhald málsins,“ segir í yfirlýsingu hvar kallað er eftir skýrri aðgerðaáætlun og rökstuðningi fyrir þessari ákvörðun með tilliti til rekstr- ar- og faglegra sjónarmiða. Þroskaþjálfar hafa áhyggjur Sömu sjónarmið viðvíkj- andi sameiningarmálinu og hjá framhaldsskólakennurum og félagi þeirra koma fram í yfirlýsingu Þroskaþjálfa- félags Íslands. Mikilvægt sé að staða nemenda með fötlun, sem eru á sérnámsbrautum við þessa skóla, verði tryggð. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tækniskólinn Höfuðstöðvar skólans eru á Skólavörðuholtinu. Menntun sé ekki markaðsvædd  Ætlaðri sameiningu FÁ og Tækniskólans er mótmælt Berglind Hálfdánsdóttir er ungur vísindamaður Land- spítala 2017. Í vikunni var á sjúkrahúsinu samkoman Vísindi á vordöum þar sem helstu rannsóknarverkefni sem unnið er þar að voru kynnt og viðurkenningar veittar. Berglind er fædd árið 1973. Hún er upp- haflega hjúkrunarfræð- ingur að mennt en fór svo í ljósmóðurfræði og lauk doktorsprófi á síðasta ári 2016. Doktorsritgerð Berg- lindar ber heitið Fyrirfram ákveðnar heimafæðingar á Íslandi: Forsendur, útkoma og áhrifa- þættir. Markmið rannsókn- arinnar var að skoða sjálfræði kvenna um val á fæðing- arstað, bera saman útkomu fyr- irfram ákveðinna heima- fæðinga og sjúkrahúsfæð- inga á Íslandi og meta áhrif frábendinga og við- horfa kvenna á útkomu fæðinga. Berglind er ungur vísindamaður Berglind Hálfdánardóttir Í yfirlýsingu sem send var út í gær lýsir Bandalag há- skólamanna yfir fullum stuðningi við kröfu Sam- bands íslenskra myndlist- armanna (SÍM) um að mynd- listarmenn fái greidda þóknun þegar verk þeirra eru sýnd í opinberum lista- söfnum og herferð SÍM undir kjörorðinu Við borgum myndlistarmönnum. „Ekki er nema eðlilegt og sann- gjarnt að myndlistarmenn, sem margir hafa að baki langt nám og mikla reynslu á sínu sviði, fái greiðslur þegar opinberir aðilar efna til sýn- ingar á verkum þeirra,“ seg- ir BHM. Um skeið hafa fulltrúar SÍM og nokkurra listasafna, segir BMH, unnið að gerð rammasamnings um þátt- töku og framlag listamanna til sýningarhalds. Þar sé meðal annars kveðið á um að myndlistarmaður skuli fá verktakagreiðslu fyrir hverja sýningu sem byggist á listrænni vinnu hans eða hennar. Að auki verði sér- staklega greitt fyrir vinnu- framlag listamanns við sjálfa sýninguna, sé um slíkt að ræða. Hvetur BHM stjórn- völd og listasöfn í landinu til að ganga hið fyrsta til samn- inga við SÍM á þessum grunni. Myndlistarmenn fái greitt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.