Skátablaðið Faxi - 01.03.1989, Qupperneq 5
Hugvekja
Enn nálgast páskahátíðin, hin
elsta og mikilvægasta hátíð
kristninnar. En það vill stundum
gleymast, þar sem aðrar hátíðir
og frítími hefur tekið af
mönnum völdin og leitt hugann
að öðrum áhersluatriðum í
lífinu.
Eípprisa Jesú Krists frá dauðum
breytti skilningi lærisveina Hans
á lífshlutverki sínu. Þeir höfðu
verið hræddir, lítillækkaðir og í
felum, þegar Jesús var hand-
tekinn, dæmdur og loks kross-
festur. Þegar Hann dó á kross-
inum fannst lærisveinunum það
marka endi alls, sem þeir höfðu
trúað á. Vonir þeirra höfðu
brugðist. Draumar þeirra höfðu
snúist upp í martröð. Þeir skildu
þetta ekki. Nokkrum dögum
áður höfðu þeir sé mann-
fjöldann fagna Jesú og segja:
„Blessaður sé sá, sem kemur í
nafni Drottins”. En það var stutt
á milli fagnaðarhrópanna og út-
skúfunarinnar. Frammi fyrir
Pontíusi Pílatusi hrópaði mann-
fjöldinn: „Krossfestu Hann”.
Og svo varð.
Páskadagurinn breytti öllu
þessu. Þeir fyrstu, sem komu að
gröfinni við sólarupprás á
páskadag, skildu ekki hvað
hefði átt sér stað. En ekki leið á
löngu þar til Jesús birtist þeim.
Og þá varð þeim ljóst hvað hafði
gerst. Og þessiróttaslegnu, von-
lausu einstaklingar, sem höfðu
orðið vitni að þessum atburðum,
urðu óttalausir boðberar
Fagnaðarerindisins. Þeir ótt-
uðust ekki dauðann lengur og
margir þeirra liðu píslarvættis-
dauða og þeir voru sannfærðir
um, að þeir fengju hlutdeild í
sigri Jesú yfir dauðanum.
Við tilheyrum þeirri kirkju, sem
ber upprisu Jesú vitni. Sigur
Jesú er sigur okkar. Drottinn er
upprisinn. Hann er sannarlega
upprisinn.
Gleðilega upprisuhátíð.
Sr. Bragi Skúlason.
Gamli , ...
golfskalmn
Gamli golfskálinn var byggður
árið 1938 af Golfklúbbi Vest-
mannaeyja. Klúbburinn hafði
aðsetur sitt þar, allt til ársins
1973, en þá byggði klúbburinn
nýjan skála. Bæjarsjóður
eignaðist skálann og lánaði
Skátafélaginu Faxa, með því
skilyrði að það annaðist viðhald
hans.
Skálinn var fyrst notaður fyrir
ferðamenn og til sjúkragæslu á
Þjóðhátíðum. Það var ekki fyrr
en félagið flutti í nýtt skáta-
heimili, að flokkar fóru að
notfæra sér skálann, til þess að
fara í skátaútilegur þangað. í
Gamla golfskálanum er góður
andi og líður fólki yfirleitt mjög
vel þar. Skálinn hefur líka verið
notaður til námskeiðshalda og
hefur skátafélagið haldið tvö
námskeið þar, og Hjálparsveitin
mjög mörg námskeið. Skálanum
hefur verið mjög vel viðhaldið,
sérstaklega að innan. Á síðasta
ári var skálinn málaður og
parkett lagt á gólfið. Fyrirhugað
er að mála hann að utan í sumar
og að setja í hann kojur. Það er
öruggt mál, að Gamli golf-
skálinn gegnir stóru hlutverki í
starfi skátafélagsins.
Viktor Ragnarsson
S
K
Á
T
A
B
L
A
Ð
I
Ð
F
A
X
I
5