Skátablaðið Faxi - 01.03.1989, Side 7

Skátablaðið Faxi - 01.03.1989, Side 7
Palli að gefa tóninn Skátar að leik 1 I vegalengd. En hins vegar gjör- sigruðu Smyrlar eða Finnur og Ármann skátaspurninga- keppnina á móti tveimur Arnarungum sem stóðu og klóruðu sér í hausnum eftir þetta stóra tap. Og síðan sigruðu foringjar Smyrla Leiknir og Siggi söngvakeppnina með skemmtilegu, frumsömdu lagi. Sungið var síðan alveg það sem eftir var af kvöldvökunni nema að það var tekið smá hlé í það að fá sér kakó og kex. Eftir það var farið aftur upp í skála en fyrst var næturleikur en eftir hann héldum við aðra kvöldvöku en á henni voru sungin róleg skátalög rétt fyrir svefninn. Og að sjálfsögðu var draugasaga í Iokin, en þá samdi Palli sveitarforingi Arnarunga — alveg frábæra draugasögu — á staðnum. En þá var þessu slitið og við fórum að tínast heim. S UNN UDA GURINN 8. JANÚAR: Farið var í sund kl. 10:00 um morguninn, en það fóru ekki allir því að þeir réðu því hvort þeir færu í sund eða fengu plástur til þess að hindra sjó- veiki. En þeir sem fengu plástur máttu ekki fara í sund, því fór bara hluti af Arnarungum í sund. í sundinu var verið að stökkva á brettinu, verið í rennibrautinni, synt og slappað af í heitu pott- unum og nuddp'ottunum. Eftir þessa sundferð var farið upp í skála að taka til eftir þessa útileguogum kl. 13:00 varfarið út. En þá kom Marinó og náði í farangurinn sem strákarnir voru með og fór með hann út á Herjólfsbryggju. Og lagði Herjólfur af stað frá Vest- mannaeyjum kl. 14:00. Skátaflokkurinn Smyrill skipu- lagði dagskránna fyrir þessa útilegu og stóð sig mjög vel. í Smyrlum eru: Leiknir, Siggi G., Gunnar Geir, Frosti, Ármann, Siggi I., Finnur og Dengsi. Leiknir Ágústsson S K Á T A B L A Ð I Ð F A X I 7

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.