Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Blaðsíða 7

Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Blaðsíða 7
SKÁTABLAÐIÐ FAXI 7 Á degi hverjum verða ýmsir spennandi dagskrárliðir í boði og velja skátarnir sér hvaða liði þeir kjósa að taka þátt í daginn eftir meðan pláss er. Flestir dagskrárliðirnir verða í boði alla daga nema þriðjudag og miðvikudag, en á þriðjudag fer fram undirbúningur fyrir sérstakan alþjóðadag sem verðu á miðvikudeginum. Undirbúningur og framkvæmdin er í höndum eldri skáta eftir leiðbeiningum frá dagskrárstjórn, en þátttakendur í alþjóðadeginum verða yngri skátarnir og fjölskyldurnar. Erlendu skátarnir munu ekki kynna sitt heimaland sérstaklega, heldur fá allir eldri skátarnir í Útgarði (búðir eldri skáta) ákveðið land sem þeir eiga að kynna og verður blandaður hópur um hverja kynningu. Hver dagskrárkafli tekur að jafnaði um tvær og hálfa klukkustund, þ.e. einn kaflinn verður fyrir hádegi og annar eftir hádegi. Þó eru nokkrir liðir sem taka lengri tíma og má þar nefna víkingaleiðangrana. Þessir leiðangrar verða með ýmsu formi. Mismunandi langar hækferðir með verkefnum, dagskrárferðir í næstu bæjarfélög þar sem tekin verða fyrir ákveðin ögrandi verkefni, sjóferðir og hestaferðir. verður skipt niður í smærri svæði sem nefnast lönd og mun hvert svæði bera nafn úr sögu goðanna og mun jafnframt æðsti maður á hverju svæði fyrir sig vera kallaður Landsstjóri. Til dæmis má nefna að aðal skátabúðirnar verða kallaðar “Þrymheimar” en Mótstjórnarbúðirnar verða að sjálfsögðu kallaðar “Ásgarður”. Á landsmótinu verður margt um manninn og má nefna að skátar koma alla leið frá Ástralíu til þess að vera viðstaddir þetta stórmerkilega mót. Eins og kemur fram hér að framan munu skátarnir þurfa að kljást við krefjandi og þroskandi verkefni sem að fylgir því að vera í tjaldi í heila viku og búa þeir við þá lífsreynslu alla sína ævi. Landsmót er sannkallaður toppur skátastarfsins og vil ég hvetja alla skáta og foreldra þeirra að bretta upp ermar og drífa sig. Landsmót eru ekki á hverju ári. Fararstjórar. Svæðinu sem skátarnir verða á Bæjarveitur Vestmannaeyja óska skátum og bæjarbúum öllum gleðilegs sumars y BÆJARVEITUR VESTMANNAEYJA EaMaEMB^iiiiBMaBsnMa A sumardaginn 1. verður skemmtun í íþróttamiðstöðinni fyrir börn og fullorðna í boði Þroskahjálpar. Samkvæmt hefð verður skrúðganga frá Stakkagerðistúni

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.