Skátablaðið Faxi - 01.04.1996, Side 12
12
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
Brot úr hugmyndum Baden-Powells
Skátalögin eru markmið sem skátar setja sér. Þar eru engar greinar sem tilgreina boð
eða bönn. Þar segir einvörðungu, skáti er...
Baden-Powell lagði einmitt mesta áherslu á að skátaforingjar leiðbeindu og gœfu góð
ráð, og hvettu skátana til dáða. Skátaforingi stjórnar ekki með tilskipunum og
þvingunum
Meginmarkmið flokkakerfisins
sem er grundvöllur
skátahreyfingarinnae er er tvíþætt.
Þjálfa skátana í samábyrgð og fá
hverjum og einum flokksmanni
ábyrgðarstarf. I skátaflokki eru skátar-
nir á mismunandi aldri, þeir yngri læra
af hinum eldri og leysa þá seinna af
hólmi. Þeir læra að taka tillit til félaga
sinna og átta sig á því hvernig þeir geta
haft áhrif á ákvarð-anir hópsins.
Skátahreyfingin ber í nafni sínu
vissu þess að við eigum ekki að fást við
það sem “ við höfum alltaf gert
heldur þurfum við jafnan að laga
viðfangs-efnin í skátastarfinu að
skátunum og samfélaginu sem við
búum í. Þannig eru nokkur
grundvallaratriði í skátastarfi óbreytt
eins og flokkakerfið, en önnur eru sífellt
sköpunarverk áhugasamra skáta.
Vertu virkur, sinntu
áhugamálum þínum, fáðu þeim
tómstundargaman sagði Baden-Powell.
Sjálfur teiknaði hann, málaði, ritaði
bækur, orti kvæði, sðilaði á
píanó,stundaði veiðar,safnaði
fiðrildum, og lék í leikritum.
Skáti er ráðagóður, hann finnur
lausnir á sérhverjum vanda og
erfiðleikum. Gakktu mót
viðfangsefnunum með bros á vör, var
heilræði Baden-Powells.
Eitt einkenni skáta er
skátabúningur-inn. Hann hefur sama
gildi og búningur íþróttamanna, en þó
eilítið meira. Skátabúningurinn er
ætlaður til nota á fundum og
samkomum skáta og í útilegum.
Skátabúningurinn er sömuleiðis tákn
fyrir einingu samtakanna og jafnrétti
skáta. Skátabúninginn má því kalla
vinnuföt skátans sem lærir um leið að
fara vel með föt og halda þeim hreinum.
Allir skátar í BÍS bera ljósbláa
skyrtu eða dökkbláa peysu ásamt
skátaklút á fundum og ferðum. Gildir
sérstök reglugerð gefin út af stjórn
Bandalags íslenskra skáta um gerð hans
og merki sem eru borin á honum.
Tekið úr skátahandbókinni.
Skátafélagið FAXI verður
með kaffisölu í
skátaheimilinu við Faxastíg