Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Síða 3
Við foringjaíTflin í skátasveitinni Fífli
fórum í útilegu okkur til skemmtunar
helgina 5.-7. febrúar úti í skátastykki.
Nokkrir duglegir skátar mættu kl.17 til
að taka til í skálanum svo að allt væri
hreint og fínt þegar hinir kæmu. Komu
hin eitthvað seinna. Við pöntuðum
okkur pizzur í kvöldmat. Rétt áður en
pizzan kom klæddi Palli eldri sig í buxur
úr álpappír og notaði ónýta einan-
grunardýnu fyrir peysu. Svo hengdum
við á hann jólaseríu og settum
sjálflýsandi hjálm fyrir andlitið á
honum. Svo settist hann á stól fyrir
frainan dyrnar og þegar pizzusendillinn
kom sagði Elva Dögg við hann að
strákurinn á stólnum væri þroskaheftur
bróðir hennar. Pizzusendillinn varð svo
hissa í framan að við máttum til með að
taka myndir af honum. Seinna um
kvöldið komu svo Freydís og þrír
Selfyssingar í heimsókn. Þau mönuðu
nokkur okkar til að fara upp á Eldfell og
setja niður rúgbrauðsdeig kl. 02:30. Við
létum til leiðast með því skylirði að
Freydís myndi hitta okkur rétt hjá
flugvellinum og keyra okkur að Eld-
felli. Við vorum næstum komin upp á
Eldfell þegar við sáum loksins bílinn.
Við veifuðum bflnum sem blikkaði
okkur á móti.Við fórum alveg upp og
grófum rúgbrauðið. Svo hlupum við
niður aftur og hittum Freydísi. Hún fór
með okkur í bfltúr af því að við vorum
svo dugleg. Eftir langan bíltúr skutlaði
hún okkur aftur út í skátastykki. Svo
fórum við að sofa. Við vöknuðum svo
seint og um síðir á Laugardeginum.
Þegar Freydís kom rétt eftir hádegi
fórum við öll nema nokkrir ónefndir
letihaugar í göngu. Við byrjuðum á því
Á leið ofan í Eldfell
að fara heim til Freydísar til að ná í kakó
og svoleiðis til að hafa með rúgbrauðinu
og meira rúgbrauðsdeig. Þar stoppuðum
við í smátfma en fórum svo upp á
Eldfell. Við grófum upp rúgbrauðið sem
við höfðum sett niður um nóttina. Það
reyndist enn þá bara vera deig. Við gróf-
um þá niður bæði deigin aftur. Þar
fengum við okkur eitthvað ógeðslegt
danskt kakó. Einhverjir gáfust svo upp
uppi á Eldfelli vegna þreytu og kulda og
fóru þau heim í skála. Þá voru bara ég
(Anna Jóna), Elva Dögg, Palli eldri og
Freydís eftir. Við renndum okkur svo
niður sandinn bak við fjallið og fórum
þannig mjög vel með skóna okkar! Svo
fórum við og fundum Haugahelli. Við
vorum sammála um að hann væri með
flottustu hellum sem við höfðum séð.
Eftir stutta viðdvöl í Haugahelli fórum
við aftur heim til Freydísar. Svo fórum
við í bíltúr og af því að við vorum svona
dugleg verðlaunaði Freydís okkur með
því að gefa okkur ís. Við fengum okkur
öll stóra bragðarefi og fórum svo út í
stykki til þess að glenna ísinn framan í
hina sem nenntu ekki með. Við pönt-
uðum okkur svo pizzur í kvöldmat.
Strákamir höfðu alveg einstakan áhuga
á að busa stelpurnar. Þeir tóku upp á því
að hrinda mér í gólfið, teipa saman á
mér hendur og fætur og krota framan í
mig. Eg var svo tekin og teipuð föst við
stól svo ég gat ekkert hreyft mig.Svo
fóru þeir með mig út á mitt túnið og
skildu mig þar eftir. Svo var farið með
mig inn aftur. Eg var föst svona í tvo og
hálfan klukkutíma. Svo seinna um
kvöldið fórum við út í “næturleik“.
Þreytt og köld fórum við svo inn aftur.
En þó voru einhverjir ekki nógu þreyttir
og kaldir því að Sigurjón, Palli eldri og
Freydís hlupu upp á Eldfell og náðu í
rúgbrauðin. Þau komu ekki aftur fyrr en
um miðja nótt. Annað rúgbrauðið varð
að kolamola en hitt var alveg ætt.
Einhverjum tókst að vakna við lyktina
af kolamolanum, svo ógeðsleg var hún.
Á Sunnudaginn vorum við svo bara að
taka til í skálanum. Það tókst að lokum
og þá fórum við bara heim.
Fyrir hönd foringjafíflanna:
Anna Jóna Kristjánsdóttir.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
o