Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Blaðsíða 17
Viðtal við einn eldri skáta
NAFN:Erla Baldvinsdóttir
AF HVERJU GERÐISTÞÚ SKÁTI?
Eg held ég hafi farið í skátana af því
að Hafdís vinkona mín fór í skátana og
ætli ég hafí ekki fylgt bara með!
HVAÐ HÉT FLOKKURINN SEM ÞÚ
VARSTÍ?
Ég var í svo mörgum skátaflokkum og
man ekki alveg nöfnin á þeim en þau
voru misfrumleg og ég man eftir
flokkum sem hétu Bleikar naríur og
Monsur.
HVERT VAR EFTIRMINNILEGASTA
ATVIKIÐ?
Það gerðist svo ótrúlega mikið
skemmtilegt í skátunum. Ég svaf eigin-
lega aldrei heima hjá mér um helgar því
þá flutti maður í skátaheimilið eða golf-
skálann.
Einu sinni vorum við nokkur saman í
útilegu í golfskálanum og á
Sunnudeginum þegar við vorum að fara
heirn þá var komið frekar vont veður.En
við vorum svo miklir skátar að við þurf-
tum auðvitað að labba í óveðrinu.Það
endaði með því að einn skátinn fauk og
slasaði sig.En það sem okkur fannst fyn-
dnast var að í fréttunum um kvöldið var
sagt frá því að ungur skáti hefði fokið
við að reyna að berjast heim til sín úr
útilegu.
Ég gæti haldið endalaust áfram að
segja sögur úr skátunum en sumt er
eiginlega ekki prenthæft svo ég læt þetta
duga.
HVAÐ LÆRÐIRU í SKÁTUNUM?
I skátunum lærði ég mjög mikið í
mannlegum samskiptum og þar tók
maður mikla ábyrgð á öðrum.í ská-
tunum lærði ég líka að sitja á fundum og
ég gleymi ekki hvað var rosalega gaman
á „Pallafundum“ og ég dáist að honum
Palla fyrir að sýna okkur svona mikla
þolinmæði! Rólegustu menn hefðu farið
yfir um en ekki Palli.
SÉRÐU EFTIR ÞVÍAÐ HÆTTA?
Þegar ég var ca.17-18 ára þá var orðið
svo mikið að gera hjá mér í skólanum og
ýmsu öðru þannig að ég hætti að vera
eins mikið í skátunum.Og þannig var
það líka með flesta vini mína.
Ég sé kannski ekkert eftir þvr að hafa
hætt það tók bara annað við. Innst inni
dauðlangar mér aftur í skátastarf,maður
gefur sér bara ekki tíma í það.
HVAÐA SKÁTAR VORU MEST
ÁBERANDI ÞEGAR ÞÚ VARST
ÍSKÁTUNUM?
ALDA ofurskáti ekki spurning!
HVAfí VARSTU LENGI íSKÁTUNUM?
Ég byrjaði 8-9 ára og er enn ekki hætt!
(eitt sinn skáti-ávalt skáti!!)
EITTHVAÐ AÐ LOKUM?
ALLIR í SKÁTANA, ÞAÐ ER SVO
ÆÐISLEGA GAMAN!!!
SKÁTABLAÐI0 FAXI
$