Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Blaðsíða 4

Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Blaðsíða 4
Faxar í sínu árlega skíðaferða- lagi í 12. s Föstudagin 19. mars fóru eldri skatar Faxa í skíðaferðalag. Allir hlökkuðu til þess að því það var svo gott veður um morguninn þegar við fórum og við héld- um að við gætum skíðað allan daginn. Þegar við komum upp í Bláfjöll þá var rosa gott veður en þegar við töluðum við starfsmennina var búið að senda flesta heim þannig að við urðum við að sætta okkur við barnabrekkuna allan föstu- daginn en það var fínt að byrja þar til að fá smá æfingu fyrir helgina. Svo var bara verið að dúlla sér fram að kvöld- vöku, og það varð þessi fína kvöldvaka. Eftir kvöldvökuna komu nokkrir Selfyssingar, M u m m i o g Brettatöffararnir Mummi og Palli á leið í göngu »Anna Jóna og Steinunn á leið upp eldri skátar frá Reykjavík, þær Heiðrún, Björk og Margrét. Freydís og Steinunn komu líka en þær höfðu farið í leiðangur á Slysadeildina í Reykjavík. Svo var farið að sofa í fyrra laginu miðað við ferðir hjá okkur. A laugardeginum vöknuðu allir snemma, en þegar við vöknuðum þá var svo mikið rok að það var allt lokað þann dag. En við sátum ekki aðgerðarlaus þótt við kæmumst ekki á skíði. Við skipt- um okkur niður í hópa og fórum í snjóhúsakeppni. Úr þeirri kepp- ni komu geðveik snjóhús. Svo fóru sumir labbandi með skíðin sín uppí skíðabrekkurnar, en aðrir létu sér næja brekkurnar hjá skálanum. Um kvöldið héldu Björk, Heiðrún, Magga og Freydís öfga flotta og skemmtilega kvöld- vöku. Selfysingar áttu að vera með á kvöldvökunni en komu svo seint að þeir misstu af henni (aumingja þeir). Þegar kvöldvökunni lauk var spilað á gítar og sungið en sumir nentu því ekki og fóru inn í eldhús að tala saman. Svo var farið að sofa heldur seint. Um morguninn var þessi rjóma blíða og allir voru öfga ánægðir að nú gætu þeir lok- sins farið að skíða. Við skíð- uðum frá kl:IO til 15 og það var geðveikt stuð. En þetta var f r á b æ r t f e r ð a 1 a g . Þegar í Þorlákshöfn var komið var farið á Dugguna að borða eins og alltaf. í Her- jólfi voru fle- stir svo þreyttir að þeir lögðu sig hvar sem er úti, undir bekkjum og ofaná. Við höldum að öll hafi verið öfga ánægð með þetta ferðalag. Við í Faxa þökkum öllum þeim sem stóðu að baki þessu ferðalagi. Anna og Guðrún. Þetta var valið flottasta snjóhúsið 0 SKATABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.