Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Qupperneq 7
Eskimóar í útilegu
Við mættum út í gamla golfskála kl. 16
á föstudeginum. Byrjuðum á að fara í
nokkra leiki. Við pöntuðum okkur pizzu
í kvöldmat. Um kvöldið vorum við bara
eitthvað að fíflast og dunda okkur. Á
laugardeginum vöknuðum við um kl.10.
Rétt eftir hádegi náðum við í pollagall-
ana og drifum okkur út. Við gengum að
drullupolli sem var rétt hjá Kaplagjótu.
Við urðum öfga drullugar og þóttust
sumir hafa séð dauða sverðfiska þegar
við vorum að vaða!! Eftir smá drullu-
mall fórum við svo út í fjöru. Þar voru
líka þessar svakalegu öldur! Við fórum í
eltingaleik við öldurnar og fengum við
þá að blotna aðeins í fæturna. Þaðan
fórum við svo fótablautar rakleiðis að
tjörninni. Það var klaki ofan á tjörninni
og freistuðumst við til að athuga hvort
klakinn myndi halda okkur uppi. Hann
gerði það ekki! Klakinn brotnaði þegar
við stigum á hann og við duttum ofan í
tjörnina. Það var ÖFGA kalt! Svo
skakklöppuðumst við einhvem veginn
upp í skála. Þegar þangað var komið
helltum við pollunum úr stígvélunum
okkar og hengdum upp pollagallana.
Svo fóru Guðrún Marta, Lísa og Sóley í
heita sturtu á meðan Anna Jóna bakaði
vöfflur og hitaði kakó. Þegar það var
ioksins tilbúið fengum við okkur vöfflur
og heitt kakó. Þegar okkur var orðið
sæmilega heitt tókum við til í skálanum.
Svo fórum við að læra táknmálsstafrófið
og nú erum við öfga klárar að tala með
puttunum. Svo fórum við að sýna hver
annarri skemmtiatriði og leikrit. Þá var
mikið hlegið. Næst fórum við að gera
draugahús fyrir hver aðra. Við vorum að
skíta í okkur af hræðslu. Rétt seinna
heyrði Anna Jóna einhvern umgang úti
og þegar hún leit út sá hún tvo bíla. Hún
kallaði í okkur hinar og þegar við litum
út sáum við einhverja veru hlaupa fram
hjá hurðinni. Við hlupum gargandi inn
aftur. Við gátum varla sofnað um
kvöldið vegna hræðslu. En það tókst
samt á endanum. Á Sunnudeginum
vöknuðum við um hádegi og fengum
okkur að borða. Svo tókum við til í
skálanum. Eftir það fórum við í leiki og
svo fórum við heim kl. 16:30.
Með kveðju:
ESKIMÓAR
Dróttskátar í ævintýrum
Laugardaginn 20. febrúar fórum við
sem erum í dróttskátasveitinni Wezt-
mönnum í dagsferð.
Við mættum uppúr kl. 10 um
morguninn heima hjá Freydísi, vöktum
hana og biðum eftir að hún gerði sig
tilbúna og lögðum svo af stað. Fyrsti
áfangastaður okkar var Haugahellir.
Þegar þangað var komið sáum við að
það hafði skafið ofan í hellinn og þurf-
tum við því að grafa okkur ofan í hann
sem tók u.þ.b. klukkustund. Þegar allir
voru komnir inn komumst við að því að
ekkert okkar var með vasaljós né kveik-
jara SEM VIRKAÐI, en við náðum þó
að kveikja á
kertum inni í hellinum.
Þegar út úr hellinum var komið lá leið
okkar út í Stórhöfða þar sem við
ætluðum að kíkja í Höfðahelli. Á leið-
inni út í Höfða komum við við í
klaufinni. Þegar við komum upp í Höfða
fundum við ekki hellinn og ákváðum
því að skoða hann seinna og fara niður í
Skátastykki og fá okkur heitt kakó en
allt kakóið var búið í Skátastykkinu.
Svo fórum við heim um fjögurleytið.
Duglegu skátarnir sem í dagsferðinni
voru: Freydís, Palli, Sigga, Steinunn,
Anna Jóna, Erna og María Sif.
Smá pása á áhorfenda-
pöllunum í Klaufinni
Útgefið í apríl 1999
Útgefandi: Skátafélagið Faxi
Ábyrgðarmaður: Marinó Sigursteinsson
Ritstjóri: Freydís Vigfúsdóttir
Auglýsingar: Sigríður
Prófarkalestur: Júlía Ólafsdóttir
Prentvinna: Prentsm. Eyrún ehf.
Ritnefnd:
Júlía Ólafsdóttir
Páll ívar Rafnsson
Freydís Vigfúsdóttir
Anna Jóna Kristjánsdóttir
D.S Weztmenn
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
o