Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Blaðsíða 8

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Blaðsíða 8
DS Weztmenn Weztmenn að ritstörfum Anna Jóna og Herdís á leið á Jet-skíði Hæ,hæ. Við erum 13 krakkar á aldrinum 15-18 ára í dróttskátasveitinni Westmönnum. Við höfurn sko alls ekki setið auðum höndurn í sumar og haust. Við fórum að sjálfsögðu eins og allir aðrir á Landsmót dagana 13.-20. júlí í sumar. Við fengum Skátaheinrilið okkar aftur l.sept. og helgina 10.-12. sept. mættum við öll ásamt fleirum og vorum að flytja inn og vinna í Skátaheimilinu. Þá unnum við í flotta dróttskátaher- berginu okkar uppi á háalofti. Síðan þá höfum við haldið áfram með það eins og við getum. Það verður öfga flott og vonum við að við getum klárað það sem fyrst. Helgina 24.-26.sept. fórum við í ferðalag þar sem við gistum í frábærum skála á Esjusvæðinu. Annars staðar í blaðinu er vægast sagt glæsileg grein um ferðina og hvet ég alla til að lesa hana. Helgina 8.-9. október fóru svo tvær stelpur (Anna Jóna og Stína) á Sveitarforingjanámskeið,-nánar um það annars staðar í blaðinu. Sunnudaginn 24.október fórum við svo í tuðruferð með Mannsa. Þetta var mjög skemmti- leg ferð og fengum við nt.a. að hoppa út í sjó (það var reyndar ekkert verið að hleypa manni upp í tuðruna aftur). Við viljum þakka Mannsa æðislega vel fyrir. Nokkrir dróttskátar fóru á dróttská- tanámskeið helgina 29.-31. október. Svo var að sjálfsögðu farið í hina árlegu Dalakotsferð helgina 5.-7. nóv. Eins og venja er þá var mjög gaman í Dalakoti. Það er svo snilldarlega vel skrifuð grein um Dalakotsferðina annars staðar í blaðinu. Helgina 19.-21.nóv. ætluðum við að fá gesti í heimsókn en þeir komu ekki þannig að við notuðum tímann t.d. til þess að smíða í dróttskátaherberginu okkar, fara að síga, gera tilraun til að baka rúgbrauð og kíkja í heimsókn í úti- legu. Svo núna síðustu daga erum við búin að vera á hundrað að undirbúa blaðið. Svo framundan eru jólafundur, nýársútilega og margt, margt fleira. Bless, bless og GLEÐILEG JÓL Anna Jóna súperdróttskáti !!! Sendum öllum bæjarbúum bestu óskír um gleðileg fól og farsælt komandi ár Þökkum ykkur góö viðskipti á árinu sem er að líða BÆJARVEITUR VESTMANNAEYJA Gíeóileg jol Farsæld á komandi öld Bl, {aerð a»t í jóta- pakkann í Apótekinu & Apctek Vesttnsnnseyjð 0 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.