Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Blaðsíða 14

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Blaðsíða 14
Við, eitthvað fólk í Faxa fórum sömu helgi og Peyjamótið var upp á land með seinniferð með Herjólfi. Svo þegar við vorum búin að drattast upp í rútuna og út úr henni aftur kom í ljós að við vorum komin í höfuðborg Islands: Reykja- vfk!!!! Svo fórum við inn í stórt hús sem hét og heitir líklega enn B.S.I. sem sagt Bifreiðastöð íslands og svo kom Mummi á kagganum og mamma hennar Kristínar og Freydís og ferjuðu okkur niður í Viðeyjarferju. Þar hlóðum við farangrinum okkar og þyngdist geyið ferjan um svona 4 tonn þegar kæliboxið hennar Leifu var sett í hana. Þess má nú kannski geta svo að Leifa fari ekki í fýlu, að allt nestið sem Skítugar naríur áttu var ofan í þessu kæliboxi. Þegar við stigum á land biðu okkar brosandi andlit með bleikar og fjólu- bláar prjónahúfur á hausnum. Það má nú líka kannski segja frá því að annar þess- ara hallærisgæja var þáverandi kærasti Sjafnar, og ekki var nú Sjöfn mikið hrifin af þessari sjón. Svo fórum við í Skítugum naríum og tjölduðum við hliðina á hallærisgæjunum, á meðan klíkan hennar Freydísar kom sér mak- indalega fyrir í topptjaldi Fossbúanna. Um kvöldið var svo bara setning. En við í Skítugum naríum og hallærisgæjarnir vorum ekki dauð í öllum æðum. Við stálumst í göngutúr niður í fjöru og svo Súperskátanörd á McDonalds. Og dansinn dunaði við harmonikkutóniist á bryggjuballi. aftur upp í Skítugu naríu tjaldið í partí. Um morguninn vorum við svo vakinn í tjaldbúðaskoðun sem var alveg glæsi- lega framkvæmd hjá oss. Alveg til fyrirmyndar eða hitt og. Svo fengum við okkur morgunmat. En þá gerðust undur og stórmerki. Kristín Halldórsdóttir varð fyrir alvarlegu sjokki. Einn yndislegasti og myndarlegasti karl- maður sem ungfrú Kristín hafði séð lab- baði fram hjá henni og horfði í augu hennar. Þá byrjaði Kristín að finna fyrir dofa í tánum, skjálfta í hnjánum og fiðring í maganum, aðeins þessar þrjár sekúndur sem þessi töfrastund í lífi Kristínar varði. Og þá kom þessi setning sem svo margir kannast við : “Im in love with Viking” (framb. Væking). og þar með byrjaði okkar endalausa „Viðeyjarsápa.” Um daginn fórum við á hestaleigu og þar ætlaði Palli Magnús að fá að leika álfakóng í fínu rauðu Faxaskikkjunni sinni. En hestaleiguvörðurinn tók nú algerlega fyrir það og sagðist ekki nenna að reyna koma honum með sjúkraþyrlu upp á borgarspítala. Þegar við vorum búin að skoppast á hestbaki í hálftíma fórum við í flokkakeppni. Þar var m.a. látið okkur telja hrísgrjón í krumpuðum álpappír og reynt að neyða í okkur nokkrum lítrum af mysu ofan í skoltinn á okkur, en það reyndist verulega erfitt því engin af okkur fékkst einu sinni til í að smakka í byrjun en svo tóku Elva Dögg, Leifa og Berglind á sig rögg og tók einn ínípínílítinn sopa hver af þessum yndislega og mjög svo viðbjóðslega þjóðardrykk Landnema. A laugar- dagskvöldið þurfti svo Elva Dögg grey- ið að hringja í Matta þáverandi kærasta Kristínar, og segja honum upp en eins og í hin síðustu fimm skiptin sem Kristín hafði sagt honum upp var hann ekkert nógu sáttur við þetta þannig að aumingja Elva Dögg þurfti að standa í klukkutíma og rökræða við Matta í gegn uni síman að Kristín nennti ekki að hanga með honum lengur. Svo náði hún loksins að skella á. Svo fórum við á dansiball og þar voru 40.000 ára gamlir harmonikkukallar að spila gamlar lummur. Og við skemmtum okkur konunglega í hringdönsum og fleiru. En svo kom eitt annað vandamál upp, Sjöfn hafði komist að því að hún þurfti að fara að létta á hjarta sínu við einhvern og fyrir valinu varð Elva Dögg og Leifa. Þar var þeim sagt að Sjöfn væri ekki lengur hrifin af Braga og reyndi að forðast hann eins og hún gat enda sá maður nú líka bara á Braga að hann var búinn að vera eithhvað sorgmæddur. Svo þurfti Elva Dögg að rjúka og bjarga SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.