Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Side 12
brjálað veður að við stóðum varla í lapp-
irnar og þó að við værum í mjög góðum
regnfatnaði þurftum við samt að vinda
naríurnar!! Svo fórum við inn og lágum
í leti restina af deginum. Um kvöldið
fengum við heimsókn frá tveim stelpum
í Kópum sem gistu og svo komu nokkrir
Vera-Hverg-ingar.
Næturleikurinn!!!
Mummi kom snemma um kvöldið en
þurfti að fara strax aftur til að fara í
sturtu! Hann ætlaði að koma eftir að
hann væri búinn og fara með okkur í
geðveikan næturleik. Sumir voru svo
forsjálir að þeir ákváðu að vera ekkert
að fara að sofa því það væri svo mikið
vesen að fara að vakna og klæða sig
þegar næturleikurinn myndi byrja. Við
spjölluðum saman, sungum og reyndum
að dunda okkur eitthvað til að halda
okkur vakandi, og tíminn leið og ekki
kom Mummi. Margir voru farnir að
halda að hann hefði bara farið að
„dunda sér“ eitthvað í Hveragerði eftir
sturtuna svo að við vorum ekkert að
stressa okkur. En tíminn leið og okkur
tók að syfja og á endanum gáfumst við
upp og fórum bara að sofa. Svo
vöknuðum við morguninn eftir og
Mummi ekki enn kominn. Hann birtist
þó á endanum og sagðist þá bara hafa
„sofnað óvart“.Við trúðum því nú bara
rétt mátulega. Það varð því alveg rosale-
ga „mikið“ úr þessum glæsilega
næturleik.
Bíltúrinn og tiltcktin!
Matti og Gísli kópur höfðu þá labbað
til Hveragerðis! Mummi fór því strax og
sótti þá. Þeir komu til baka en héldust
ekki lengi inni því Matti stal bíllykl-
unum hans Mumma og hann og fleiri
eltu og enduðu svo í löngum bfltúr þar
sem Mummi var m.a. næstum því búinn
að velta jeppanum sínum. Svo komu
þau til baka og voru sumir hálf svekktir
að hafa ekki líka fengið bfltúr! Svo var
bara farið að taka til og svoleiðis og allir
hjálpuðust að, sérstaklega söngfuglarnir
sem voru í kojunum að syngja með
Fossbúunum sem höfðu komið í heim-
sókn. Svo þegar búið var að taka til
keyrði Armann okkur í Herjólf og við
fórum heim þreytt og lúin eftir
viðburðaníka helgi!!!!
Takk fyrir lesninguna,
Kveðja:
Anna Jóna súperskáti!
S
Herdís tollir í skátatískunni
Spicegirls fara iíka í útilegu
Utilega rassálfa
Helgina 19-21. nóvember. fórum við í
útilegu í Gamla golfskálanum. Við
mættum kl. 19, en skátaforinginn lét
ekki sjá sig (vegna veðurs), fyrr en
klukkan 22 vegna þess að hún var upp á
landi en á meðan undirbjuggu Rass-
álfar skemmtiatriði, kvöldvöku og komu
sér fyrir. Það var brjálað veður allan
tíman en þar sem að við erurn svo dug-
leg fórum við í göngu á laugardaginn
þegar að allir voru vaknaðir, við fórum í
könnunarferð um Dalinn og fundum
þessi svakalega flottu leiktæki og varð
þess vegna gangan ekki lengri.Við héld-
um tvær kvöldvökur, fóru í leiki og
horfðum á skemmtiatriði (sumir treystu
sér ekki til að sitja kyrrir og fóru að
finna upp á eigin skemmtiatriðum), í
útileg-una komu eftirtaldir í heimsókn:
Anna Jóna, Erna, Helga, Júlía, Palli,
Stína, Steinunn og Sigga. Það fylgja
nokkrar myndir með frá útilegunni sem
eru alveg þess virði að skoða! Við
vorum öll samála um að þetta hefði
verið ágætis útilega og að við yrðum að
gera þetta aftur. Bless, bless.
Það koma líka gestir í útilegurnar
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI