Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 16

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 16
NÁMSKEIÐ Þá var lítið sofið Freydís segir frá för sinni á Gillwell '99 Sem krakki man ég eftir því hvemig maður horfði á skátana með brúnu klút- ana með hrifningu. Það voru þeir skátar sem höfðu lokið Gilwell þjálfun. En allt virtist þetta Gilwell ævintýri vera fjar- lægur draumur en sá draumur rættist nú í sumar, ég fór á Gilwell. En hvað er svo þetta margumtalaða og marglofaða Gilwell? í stuttu máli sagt er Gilwell æðsta foringjanámskeið sem völ er á innan skátahreyfingarinnar. Kennd eru hin ýmsu skátafræði og haft gaman af því að vera saman sem jafningjar. Þeim sem hlotnast sá heiður að verða Gilwell skát- ar ganga í alþjóðlega Gilwell-skátasveit sem í eru fimm flokkar; Uglur, Gaukar, Dúfur, Hrafnar og Spætur. A Islandi er námskeiðið haldið á Úlfljótsvatni og tekur tíu daga en þjálfunin sjálf er sex mánaða dagskrá. Það var fallegur dagur á Ulfljótsvatni á fyrsta degi námskeiðsins. Við vorum leidd inn í Gilwell skálann og fengum smá innlegg inn í námskeiðið. Við hlógum bara af því er okkur var sagt að við fengjum nóg að gera, meir en 24 klukkustundir biðu upp á hvern dag. Eg hugsaði bara til þess og hlakkaði til að fá smá hvíld frá amstri dagsins og geta komið úthvíld heim að námskeiðinu loknu. Þessi tilgáta afsannaðist strax fyrsta daginn. Við fengum þau verkefni fyrir kvöld- mat að vera búin að koma upp tjaldbúð með öllu tilheyrandi (girðingu, hliði, borði og ofl.), finna flokkshróp, söng, hátíðarljóð og mottó auk þess að semja skemmtiatriði fyrir kvöldvöku. Til þessa höfðum við u.þ.b. 4 klst. Tíminn leið og komið var að verkefnaskilum. Sumt heppnaðist alveg ágætlega eins og hátíðarljóðið okkar: Dúfan Á örlagastundu guð oss gaf göfugan friðarboðbera sem von og sættir færði að svo allir skyldu vinir vera. Og þegar hættan steðjar að og óvinaherir berjast Dúfan flytur friðarblað svo vinatímar hefjast. F.V. Eftir kvöldvökuna góðu vöktum við fram á nótt við að klára tjaldbúðina því mikil barátta var um tjaldbúða- verðlaunin hvern dag. Er klukkan var langt gengin fjögur skrið þreyttir skátar í háttinn hugsandi um hvernig framhaldið yrði, hvort við fengjum alltaf að sofa svona lítið og afhverju í ósköpunum maður var að vesenast þetta en var ekki bara heima að vinna. Þessum spurningum var fljótt svarað. Já, við fengum alltaf svona lítinn svefn ef metnaður var til að klára öll verkefnin. Og framhaldið var skemmti- legt. Dagamir liðu hver öðrum skemmtilegri með nýjum verkefnum og nýjum áskorunum. Við sátum marga og fjölbreytta fyrirlestra, allt frá útivist til barnasálfræði.Við fengum marga góða gesti sem bæði leiðbeindu á fyrirlestrum eða bara kíktu í fjörið. Þar má nefna Eddu Björvins, leikara, en hún kenndi okkur framkomu og skýrt tal og fór með okkur í marga skemmtilega leiki í því sambandi. Við fengum líka lækni nokkurn sem kenndi okkur skyndihjálp en hann fékk viðurnefnið dr.Bing þar sem allir sársaukar voru með bing hljóð er þeir gerðust í hans huga. Mannsi ofurskáti og Dúfa með meiru kom einn- ig og gaf okkur nammi, þ.e.a.s. Dúfunum, en það er dæmi þess að nokkur sakleysislegur rígur ríkir milli flokkanna. Okkur hlotnaðist einnig sá heiður að fá að hitta Jónas B. en hann er sá sem hóf landnám skáta á Ulfljóts- vatni á sínum tíma. Þess má geta að Jónas er heiðursdúfa. Á ó.degi námskeiðsins var haldið af stað í hike (göngu). Flokkamir fengu hver sína leið en allir byrjuðu á því að sigla á kanoe yfír Ulfljótsvatn og ganga þaðan í átt að þeim sveitabæ sem gista SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.