Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Síða 5

Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Síða 5
íslandssögunnar sem vildu bæði nema ný lönd og kanna ókunn svið í hópi fé- laga og vina. Fálkaskátar starfa í 5-7 manna flokkum jafnaldra sem funda vikulega. Flokk- arnir velja sér spennandi verkefni að fást við og njóta leiðsagnar fullorðinna foringja þegar á þarf að halda. Nokkrir flokkar mynda skátasveit sem vinnur saman að margskonar verk- efnum og fer saman í ferðir og útilegur, jafnt sumar sem vetur. Verkefnin og ferðirnar hafa tilgang, því þó þau séu spennandi og skemmtileg, eru þau einnig leið skáta til að auka þekkingu og færni og búa skátana und- ir lífið sem virka, ábyrga og sjálfstæða einstaklinga sem bera virðingu fyrir landi sínu og náttúru. Almennar upplýsingar um skátastarfið má finna á skatarnir.is Skátafélagið Faxi vill færa öllum styrkt- araðilum og velunnurum sem hafa styrkt starfið á einn eða annan hátt í gegnum tíðina kærar þakkir. Ykkar stuðningur er okkur dýrmætur og mikilvægur til þess að við getum haldið áfram að hlúa að öflugum hætti að æskulýðsstarfi Eyjanna. Frosti Gíslason félagsforingi Faxa. Gaman í útilegum Fálkaskátaflokkurinn Tækniskátar fór í útilegu í skátastykkið á dögunum og skri- faði sjálfúr um ferðina. Við byrjuðum að hittast eftir kvöldmat og undirbjuggum þá fyrir alla helgina. Við vöknuðum kl.8:00 á laugardaginn og fórum í morgunleikfimi. Síðan vorum við að spila og fara í leiki og hafa gaman Þegar það byrjaði að dimma fórum við í feluleik úti með vasaljósum sem var mjög gaman. Síðan grilluðum við pylsur yfir varðeldi. Morguninn eftir vorum við með amerískar pönnukökur, egg og bacon. Eftir það vorum við bara að taka til eftir okkur og fórum síðan heim. Þetta var allt mjög skemmtilegt og við hlökkum til að fara aftur í útilegu. Kveðja Bjami, Andri, Leifúr Rafn, Trausti, Þráinn og Snorri Útgefið í desember 2014 Útgefandi: Skátafélagið Faxi Abyrgðarmaður: Marinó Sigursteinsson Ritstjórar: Frosti Gíslason og Flóvent Máni Prentun: Prentsmiðjan Eyrún hVtLA0/<0 'X’nna^ 5

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.