Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Page 6

Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Page 6
Drekaskatar Drekaskátar eru skátar á aldrinum 7-9 ára og aðaláherslan í starfi er að að drekas- kátinn læri að sýna hjálpsemi og sýni vilja til að gera sitt besta. Drekaskátar kynnast náttúru og stunda útivist í nærumhverfi Eyjanna. I drekaskátastarfi er lögð áhersla á reynslunám, að læra af því að vinna verk- efni en ekki af bókum eða útskýringum annarra. Margt er hægt að læra með leikj- um og verkefnum í nærumhverfi okkar. Því fara drekaskátar mikið í fjölbreytta og skemmtilega leiki, jafnt úti sem inni. Skátastarfið hjá Drekaskátum hefúr geng- ið vel og höfum við gert ýmsa skemmti- lega hluti. A hverjum skátafundi er farið í leiki og unnið að ýmsum skemmtilegum verk- efnum. Við höfum mikið verið að vinna með íyrstu ljórar greinar skátalaganna, sem eru að skáti er hjálpsamur, glaðvær, traustur og náttúruvinur. En jafnframt höfum við verið að æfa okkur í að vinna saman í hópum. Við höfum farið í gönguferðir, í hellaferðir og ijallgöngur og út í spröngu að sjálfsögðu. Eitt það skemmtilegasta við skátalífið er útilífið. Því höfum við farið t.d. í Sýslu- mannskór, Strembuhelli og bakað brauð yfir opnum eldi og alls konar svoleiðis. Við fórum og heilsuðum upp á lundapysj- umar á fiskasafninu og fórum svo á vigt- artorgið til að gefa fiskunum að borða. Eitt af þeim verk- efhum sem við emm stoltust af er hreins- unin á Strembuhelli fyrr á árinu. Við höfum líka nokkrum sinnum farið í Fab Lab og búið til einhverja skemmtilega hluti. Þá höfúm við einnig verið að búa til nokkuð stór hús úr pappa í salnum í skáta- heimilinu Við leiðum skrúðgönguna áffam á sumardaginn fyrsta og 17.júní með okkar frábæru Lúðrasveit Vestmannaeyja og það finnst okkur gaman. Fyrir skátamót þá undirbúum við okkur með því að æfa okkur að tjalda og gera hnúta og svoleiðis. Drekaskátamótið á Úlfljótsvatni Einn af hápunktunum í starfinu okkar á þessu ári var ferðin okkar á drekaskáta- mót í byrjun júní. Þá fórum við með Herj- ólfi og keyrðum á Ulfljótsvatn. Þar hittum við um 300 aðra drekaskáta og gistum við öll í tjöldum í eina nótt. Dagskráin gekk mjög vel og var sérlega skemmtileg fyrir alla drekaskáta. Drekaskátarnir byrjuðu á að tjalda og koma tjaldbúðunum í lag. 6

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.