Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Side 12
Útlagar
Skátaflokkurinn Utlagar var stof-
naður 27.október árið 1942. Þama vom
samankomnir 10 áhugasamir drengir úr
Skátafélaginu Faxa. Þeir höfðu saknað
sárt þess félagslífs og skátaanda sem þeir
þekktu Ifá starfinu í Faxa.
í flokknum voru brottfluttir skátar úr
Faxa en vildu starfa áffam í raunhæfu
skátastarfi og unnu skátamir þar náið
með Skátafélaginu Faxa. Skátunum í
Útlögum fjölgaði og þeir hafa haldið
reglulega fundi til dagsins í dag.
Nú á dögunum afhentu tveir af Útlö-
gunum Berent Th Sveinsson og Oskar
Þór Sigurðsson skjalasafn Útlaga,
fundargerðarbækur myndir og bækur
til Héraðsskjalasafns Vestmannaeyja til
varðveislu. Jafnframt afhentu þeir Skáta-
félaginu Faxa málverk og bók að gjöf.
Besta helgi ever
Fálkaskátaflokkurinn Svörtu slaufurnar
fór í útilegu í skátastykkið á dögunum og
skrifaði sjálfur um ferðina.
Við fómm í skátastykkið i útilegu um
helgina. Það var gaman. Við fómm í
feluleik inni með slökkt ljósin og við
notuðum vasaljós og svo fengum við
grillaða sykurpúða í örbylgjuofni. Svo
fómm við út að leika við Kollý og svor
fómm við að háma og spjölluðum smá
og fómm svo að sofa. Við vöknuðum
kl: 10:00 og borðuðum morgun mat og tó-
kum til og skúmðum og nokkrar stelpur
fóm í sund og þá var besta helgi ever
búin.
í Svörtu slaufunum em Elísa Hallgríms-
dóttir, Súsanna Sif Sigfúsdóttir, Þorg-
erður Katrín Adólfsdóttir, Jóhanna Björg
Bjamadóttir, Unnur Bima Hallgrímsdót-
tir, Amelía Nótt Gunnarsdóttir og Fjóla
Kristný Andersen.
Hreinsa
Strembu-
helli
Skátar i Skátafélaginu Faxa ákváðu að
hreinsa Strembuhelli eftir að hafa farið
þangað í gönguferð og komið að helli-
num í miður góðu ásigkomulagi.
Skátami í Faxa, bæði dreka-og
fálkaskátar létu það sig ekki fá að taka
hellinn í gegn og gera hann boðlegan
gestum á ný eftir að msl hafi safnast þar
fyrir í mörg ár.
Næsta skref hjá skátunum er að eiga
samstarf við fleiri aðila og koma mykju
út úr hellinum sem hafði verið dælt í
hann á ámm áður.
Berenth Sveinsson úr Skátaflokknum
Útlögum hafði samband við okkur í
Faxa og fagnaði þessu framtaki skátanna
mjög og sagði okkur að þeir hafi einmitt
gert þetta sama um 1940 þegar þeir vom
starfandi í Faxa á sínum tíma.
Við afhendinguna vom ræddar minningar
úr skátastarfinu fyrr og nú og rætt um
hin miklu jákvæðu áhrif sem skátastarfið
hefur haft á líf fjölmargra. Stórkostlegur
vinskapur sem haldist hefúr í gegnum
tugi ára og er skráður á skemmtilegan
háttí fúndargerðarbækur og ljósmyndir
og er nú gerður aðgengilegur fyrir alla
skáta og alla Vestmannaeyinga.
12