Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Page 13

Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Page 13
Gilwell í Eyjum Gilwell-skólinn á íslandi er rekinn af Bandalagi íslenskra skáta (BÍS). Gilwell- skólinn býður leiðtogaþjálfun fyrir full- orðna einstaklinga sem vilja vinna skáta- hreyfingunni gagn ýmist sem leiðtogar ungra skáta eða á annan hátt. Gilwell- skólinn býður bæði grunnþjálfun í sam- ræmi við ramma alþjóðasamtaka skáta og símenntun - bæði endurmenntun og ffamhaldsþjálfun á fjölmörgum sviðum leiðtogafræða. Helgina 17.-18. janúar 2015 verður haldið Gilwell-námskeið hjá skátafélaginu Faxa í Vestmannaeyjum ef næg þátttaka fæst. Þetta námskeið samsvarar fyrri hluta Gilwell-leiðtogaþjálfunarinnar - 1. og 2. skrefi af fimm. Vonandi nýta margir eldri skátar í Eyjum sér þetta tækifæri auk þess sem námskeið- ið er opið fyrir foreldra ungra skáta og aðra áhugasama. Um er að ræða leiðtoga- þjálfun fyrir fullorðna - 18 ára og eldri. Ljóst er að nokkur áhugi er fyrir þessu námskeiði hjá einstaklingum „á megin- landinu“ og hafa nú þegar nokkrir skráð sig á www.skatamal.is Væntanlega verða þó flestir þátttakendur frá Eyjum. Til að fá nánari upplýsingar og skrá sig á námskeiðið er best að hafa samband við Frosta Gíslason félagsforingja Faxa frostigislason@gmail.com eða Dag- björtu Brynjarsdóttur í Skátamiðstöðina í Reykjavík skatar@skatar.is Markmið helgarinnar (fyrir skref 1 og 2) eru að: • Öðlast dýpri skilning á markmiðum og grunngildum skátahreyfingarinnar sem alþjóðahreyfingar og kjama skátastarfs sem byggt er á þessum grunngildum. • Þekkja og skilja Skátaaðferðina sem kjamaaðferð í skátastarfi bama og ung- menna. • Þekkja og skilja flokkakerfið, tákn- ræna umgjörð, tengslin á milli markmiða skátahreyfingarinnar, ólíkra þroskasviða og þroskaferils skátanna. • Gera sér grein fyrir hlutverki leiðtoga í skátastarfi. Gilwell-gmnnþjálfún Gmnnþjálfun Gilwell-skólans er ætlað leiðtosaþjálfun að velja um tvær námsleiðir, aðra fyrir þá að aðstoða þátttakendur við að marka sér stefnu og setja sér markmið til þroska, átaka og sigra í skátastarfi og í lífinu al- mennt. Gilwell-leiðtogaþjálfunin veitir innsýn í ólík hlutverk fullorðinna í skáta- starfi. Þátttakendur öðlast þekkingu og fæmi til að leiða skátastarf og þar með leggja sitt af mörkum til betra samfélags. Þeir sem ljúka gmnnþjálfún Gilwell- skólans fá Gilwell-einkennin, sem em al- þjóðleg viðurkenning, og verða þar með Gilwell-skátar. Gilwell-leiðtogaþjálfunin samanstendur af fimm námskeiðum og ígmndunarverkefnum þeim tengdum. Auk þeirra ljúka þátttakendur „Gilwell- verkefni“ og gerð er krafa um að þeir sem fá Gilwell-einkennin og útskrifast sem Gilwell-skátar hafi lokið námskeiðum í skyndihjálp og bamavemd. Gilwell-leið- togaþjálfúnin tekur yfirleitt 6-9 mánuði. Gilwell-leiðtogaþjálfúnin er byggð á sömu gmndvallaforsendum og sam- svarandi þjálfun um allan heim þar sem skátahreyfingin starfar. Hún á rætur aftur til 1919 þegar lýrsta Gilwell-námskeiðið var haldið fyrir skátaforingja í Gilwell Park (í London). Þó að allir sem ljúka Gilwell-leiðtogaþjálfún fái sömu gmnn- sýn í hugmynda- og aðferðafræði skáta- hreyfingarinnar býðst hverjum og einum sem vilja vinna sem sveitarforingjar eða aðstoðarsveitarforingjar með skátum á aldrinum 7 til 22 ára og hina fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna skátahreyfingunni gagn með því að vinna ýmis stjómunar- störf innan skátafélags eða á sameigin- legum vettvangi skátastarfs, t.d. á vegum skátasambands eða BIS. Við köllum þess- ar tvær námsbrautir sveitarforingjaleið og stjómunarleið. Þau sem velja sveitarfor- ingjaleiðina geta að sjálfsögðu valið sér tiltekið aldursstig til að vinna með, t.d. dreka-, fálka-, drótt-, rekka- eða róversk- áta. 13

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.