Skátablaðið Faxi - 01.12.2014, Qupperneq 14
Manstu okkar fyrsta fund
Óskar Þór Sigurðsson
Þetta er hending úr kvæðinu „í Eyjum“
eftir Öm Amarsson. Skátahópurinn svo
kallaði fór í sína fyrstu ferð í Þjórsárdal
fyrir mörgum ámm. Síðan þá hefur þessi
hópur sem saman stendur af 30 eldri skát-
um úr skátafélaginu Faxa hist einu sinni
á ári þ.e. í október og dvalið á mismun-
andi stöðum eina helgi. Þó svo að allir í
hópnum hafi ekki verið skátar þá tengjast
þeir hópnum í gegnum Eyjar. Hópnum er
skipt í þrjár grúppur þ.e. böm Ola Odd-
geirs, Halldór Ingi og co og síðan Eyja-
hópurinn. Hver grúppa skipuleggur hverja
samvem í það skipið. I okkar árlegu ferð
í október s.l. haust var farið um Suður-
land og sögustaðir skoðaði, þessa sam-
veru skipulagði Eyjahópurinn !. Gist var í
veiðihúsum við Eystri - Rangá. I upphafi
dags var farið að Gunnarsholti þar sem
Landgræðslan er með aðstöðu, þar tók á
móti okkur Sveinn Runólfsson og leiddi
okkur í allan sannleikann um landgræðslu
og störf Landgræðslu íslands hófs leið-
angurinn í Sagnagarði sem er veglegt og
einstaklega vel skipulagt fræðasetur þar
er sögu gróður- og jarðvegseyðingar á Is-
landi gerð skil í máli og myndum. Sagt
er frá baráttu við afleiðingar eldgosa og
Hópur eldri skáta sem koma reglulega saman. Hér eru þeir i veiðihúsinu við Eystri-Rangá.
óblíð náttúruöfl. Saga frumherjanna í
landgræðslu er rakin og barátta þeirra við
vantrú almennings. Greint er frá 100 ára
sögu landgræðslustarfs á Islandi og lýst
helstu verkefnum í endurheimt landgæða
og vistkerfa, gróðurvemd og alþjóðlegu
samstarfi. Þegar innliti í Sagnagarð lauk
og Sveinn kvaddur, var haldið að Hellu
þar sem áð var að Veitingastaðnum Arhús.
Þar skyldi snædd súpa, þegar þangað kom
vom þar fyrir tveir fyrrverandi félagsfor-
ingjar Skátafélagsins Faxa þeir Óskar Þór
Sigurðsson Utlagi og Jón Ögmundsson
frá Litlalandi.
Þriðji félagsforinginn var í hópnum
Halldór Ingi Guðmundsson kenndur við
verslunina Kjama . Eftir að hafa heils-
ast að skáta sið var sest að borðum og
súpan snædd kvaddi Óskar sér hljóðs og
þakkaði gott boð og minntist ferða skáta
frá Eyjum til Hellu fyrr á tímum. Þá var
flogið frá Eyjum og lent við Hellu, eða
siglt til Stokkseyrar síðan farið með
rútu til Reykjavíkur, þaðan lá leiðin á
skátamót á Akureyri eða til annarra staða.
Alltaf legið í tjöldum, á túnum eða gist á
heimilum á leið til hinna framandi staða.
Þá minntist Óskar Þór á nýafstaðna ferð
hans og Berents Th. Sigurðssonar til Eyja
þar sem þeir afhentu Skjalasafhinu hér
ýmis gögn frá Skátaflokknum Útlögum
sem var stofnaður i Reykjavík 23.októ-
ber 1942. Margir Útlagar em nú „famir
heim“en skátaflokkurinn hefúr starfað
óslitið í meria en 60 ár og haldið 700
yfir 700 skátafúndi. Útlagar em því elsti
skátafiokkur í heiminum í dag. Þegar
Óskar Þór lauk máli sínu stóðu allir upp
frá borðum og sunginn Bræðralagssöng-
urinn, að hætti skáta farið með skátahróp
Tikka likka tikk !!. Þeir félagar Jón Ö
og Óskar Þór þökkuðu fyrir sig og þeir
kvaddir.
„Örlögin á önnur sund okkar stýrðu
fleyjum“. Haldið að Sögusetrinu á
Hvolsvelli, Njáluslóð könnuð og Refillinn
stunginn, þar fræddi Sigurður Hróarsson
forstöðumaður okkur um Njál og Berg-
þóm lífsbaráttu þeirra og örlög. Þama
áttum við ógleymanlega stund og menn
og konur algjörlega hugfangin af þessari
sögu eins og Sigurður sagði ffá. Þá var
komin tími á að halda til náttstaðar því
enn var talsverð dagskrá eftir. Þegar í hús
var komið tók við föndrið mikla þar sem
vináttan átti hug og hjörtu hópsins „sama
von og sama þrá sveinum hjá og meyjum“
sagði skáldið.
Síðan var snæddur hátíðarkvöldverður
og lauk honum með kvöldvöku þar
sungnir voru skátasöngvar langt inn í
nóttina. Það var glaður og endumærður
hópur sem þakkaði samvemna og hver
hélt til sýns heima, fúllur tilhlökkunar um
endurfúndi að ári . „Manstu okkar fyrsta
fúnd ? Fagurt var í Eyjum“.
Með skáta kveðju
Ólafur Lárusson
14