Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Síða 5

Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Síða 5
Þakkir til sjálfDoðalíða Faxa, samstarisaðila og velunnara Skátafélagið Faxi þakkar öllum sjálboðaliðum félagsins kærlega fyrir vel unnin störf. Sjálfboðaliðar félagins hafa tekið þátt í fjáröflunum, unnið að uppbyggingu á húsnæði félagsins, hjálpað til á skátamótum, í útilegum, skátafundum, kvöldvökum og í öðru starfi. Kærar þakkir fyrir ykkar ómelanlega starf. Félagið er þakklátt fyrir alla þá hjálp sem það hefur fengið á undanfömum árum í formi vinnu, aðstoðar, velvildar,afslátta, kaupa á þjónustu eða hvers konar styrkja og er öllum færðar kærar þakkir fyrir. Margs er að minnast og margt er hér að þakka. Björgunarfélag Vestmannaeyja hefur stutt við starfsemi skátanna með hvers kyns aðstoð og liðleg heitum alla tið enda gera byggir félagið á grunni Hjálparsveitar Skáta. Stór hluti skáta starfar síðar meir með Björgunarfélaginu og erum við þakklát fyrir einstaklega gott og ljúft samstarf. Vestmannaeyjabær hefur styrkt félagið á undanfömum árum með rekstrarstyrk og hefur stutt félagið vegna viðhaldframkvæmda félagsins á Skátaheimilinu við Faxastíg og er bænum færðar kærar þakkir fyrir. Isfélag Vestmannaeyja færði Skátafélaginu Faxa nú á dögunum myndarlegan styrk til uppbyggingar í félaginu og er Isfélaginu færðar kærar þakkir fyrir. Endurbætur á skátabústað í Skátastykkí Síðastliðið vor og sumar unnu sjálfboðaliðar að endurbótum á Skátabústaðnum í Skátastykki, máluðu allt húsið að utan og lökkuðu glugga, löguðu bekki og unnu að fleiri endurbótum í húsnæði skátastykkisins. Húsnæðið lítur mun betur út og búið er að laga klæðningu og þakkassa en næsta verkefni snýr að lagfæringum á þaki hússins. Fleiri byggingar í Skátastykki Síðastliðið vor fengum við að gjöf tvö hús frá Eimskip til þess að koma fyrir á svæði félagsins í Skátastykki. Húsin munu nýtast vel skátastarfinu á svæðinu og verða m.a. notuð sem þjónustuhús á World Scoul Moot sem haldið verður í júlí 2017. Skátafélagið Faxi þakkar fyrir höfðinglega gjöf til félagsins. Skátafélagið Faxi fékk húsin að gjöf með því skilyrði að fiytja þau og til verksins voru fengnir helstu sérfræðingar landsins á því sviði JáVerk. Þeir komu til Eyja með sérhæfð tæki og tól til þess að flytja húsin upp í skátastykki og flutningurinn gekk vonum framar og var verkið sérlega faglega unnið af þeim JáVerksmönnum. Sjálfboðaliðar Faxa undirbjuggu húsin fyrir flutninginn og aðstoðuðu við að koma húsunum á réttan stað. JáVerk og sjálfboðaliðunum eru færðar kærar þakkir fyrir þeirra framlag.

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.