Skátablaðið Faxi - 01.12.2016, Blaðsíða 10
Landsmót skáta 2016
Landsmót skáta er haldið annað hvert ár
og var haldið í 29. skiptið dagana 17.-24
júlí 2016 . Mótið fór fram á Úlfljótsvatni
en þar er Útlífsmiðstöð skáta staðsett.
Mótið var fyrir skáta á aldrinum 10
- 22 ára. A mótinu var einnig boðið
upp á fjölskyldubúðir sem stóðu öllum
opnar. Fjölskyldur frá Eyjum tóku þátt í
fjölskyldubúðum og þeirri dagskrá sem
þar var boðið uppá.
Góður og samheldinn hópur fálka-
og dróttskáta frá Faxa tók þátt
í Landsmótinu. Farið var með
Herjólfi og fengum við lánaðan bíl
Björgunarfélagsins í Eyjum yfir mólið til
þess að flytja skáta og búnað á staðinn.
Fararstjórar voru Frosti Gíslason og
Armann Höskuldsson.
Skátafélagið Faxi var saman í tjaldbúðum
með vinafélagi okkar Mosverjum og
er þeim þakkað frábæra samveru og
samvinnu á mótinu sjálfu og eftir það.
Dagskrá mótsins var allt í senn,
fjölbrcytt, vönduð, spennandi og gefandi.
Hún krafðist virkrar þátttöku skátanna
og skapaði skilyrði fyrir sköpunargleði
þeirra. Yfir daginn störfuðu þátttakendur
í skátaflokkum við fjölbreytt
viðfangsefni. Viðfangsefhin völdu
flokkamir sjálfir. Hluti dagskrárinnar
fór frarn á mótssvæðinu sjálfu en einnig
er nýtt falleg náttúra Úlfljótsvams og
umhverfi þess.
A hverjum morgni var blásið til
fótaferðar kl. 08:00. Þá drifu allir
sig á fætur til að sinna hefðbundnum
morgunverkum og snæða morgunverð.
Að sjálfsögðu voru Faxaskátar með
stærstu fánastöngina á mótinu. A hverjum
morgni var fánahylling og að henni
lokinni fóru skátaflokkamir
í opna dagskrá sem hófst kl. 10:00.
Hádegisverð snæddu flokkamir í
tjaldbúðinni eða höfðu með sér nesti
ef þeir voru í ævintýraferð í nágrenni
mótssvæðisins. Eftir hádegisverðin fóru
skátaflokkamir í valdagskrá sem þeir
höfðu valið sér.
Flokkadagskrá lauk kl. 16:30 og þá
tóku við fjölbreytt verkefni og var af
nógu að taka. Stundum þurfti að sinna
ýmsum verkefnum vegna undirbúnings
kvölddagskrár svo sem að undirbúa
skemmtiatriði eða þátttöku í stórleik.
Að lokinni kvölddagskrá var komið
í tjaldbúðir þar sem í boði var heitt
kakó og kex að skátasið. Kyrrð var á
mótssvæðinu frá kl. 23:00.
Skátamir frá Eyjum vom virkir í
valdagskránni.
I ferðaveröld fórum við m.a. i göngu
að Ljósafossstöð þar sem við skoðuðum
frábært orkusafn og fengum kakó. Að
því loknu fórum við svo á skátasafnið,
en það er staðsett í húsnæði rétt hjá
Ljósafossstöð. Dagurinn var svo
fullkomnaður með því að fara í sund í