Fréttablaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 4
kjaramál „Ég tel ekki vænlegt til árangurs að taka til beinna varna fyrir frú Agnesi biskup af því að þar með vöðum við inn í þá gildru sem búið er að spenna upp,“ segir Krist- ján Björnsson, formaður Presta- félags Íslands, í bréfi til presta innan þjóðkirkjunnar um áramótin. Eins og kunnugt er hafa fréttir verið sagðar af launamálum og kjörum presta og biskupa í kjölfar ákvörðunar kjararáðs fyrir jól um breytingar á launum þessara hópa. Þar hefur umfjöllun um mál Agnes- ar M. Sigurðardóttur biskups verið mest áberandi enda er hún launa- hæsti starfsmaður þjóðkirkjunnar og fékk 22 prósenta launahækkun sem auk þess var afturvirk í eitt ár. Fram kom á Vísi í gær að Presta- félagið hafði lagt til við kjararáð að biskupinn fengi um 170 þúsund króna meiri hækkun en síðan varð raunin. Ef farið hefði verið að vilja félagsins hefðu mánaðarlaun bisk- ups hækkað í um 1.720.000 krónur í stað þeirra 1.553.000 króna sem biskupi voru úrskurðaðar. Launa- hækkunin hefði þá verið 34 prósent. Ljóst er af fyrrnefndu bréfi for- manns Prestafélagsins að hann telur fréttaflutning af þessu mál- efni skipulagðan til að koma höggi á þjóna kirkjunnar. Ráðlegt sé að prestar almennt stígi ekki inn í umræðuna um kjaramál biskupsins. „Við það mun umfjöllun um frú Agnesi fá nýtt eldsneyti sem tryggir áframhaldandi neikvæða umfjöllun um hana á þennan persónulega hátt sem verið er að reyna að leiða okkur inn í,“ segir í bréfi Kristjáns. Athygli vekur að Kristján sýnist telja kynferði biskupsins ráða inni- haldi frétta um kjaramálin. „Þetta er örugglega kynbundin aðför. Það mætti vel hugsa það í ljósi #metoo eftir áramótin og bið ég ykkur að hugsa það vel,“ skrifar Kristján í bréfi sínu. Í samtali við Fréttablaðið kveður þó við annan tón hjá Kristjáni er hann er spurður hvort fréttaflutn- ingur af kjaramálum biskups mark- ist af því að hún er kona. „Það er búinn að vera alvarlegur og góður þungi í #metoo-bylting- unni og mér finnst vera svo mörg alvarleg mál sem liggja þar að baki; ofbeldi og brot gagnvart fólki að mér finnst ekki vera hægt að nota þá umræðu yfir þessa stöðu,“ segir Kristján. Ekki þurfi að vorkenna biskupi Íslands. „Ég er líka mjög skeptískur á það að nota hugtök eins og kynbundið ofbeldi eða einelti um stöðu í pólitík eða stöðu embættismanns vegna þess að þau hugtök eru svo dýr í mínum huga,“ heldur Kristján áfram. Þessi hugtök eigi við um fólk sem hafi raunverulega orðið fyrir gríðarlegu ofbeldi og verulegum skakkaföllum í lífinu. „Mér finnst ekki réttlætanlegt að nota svoleiðis hugtök um þessa stöðu sem er núna. Við erum ekki í neinu einelti.“ gar@frettabladid.is Fréttir sagðar kynbundin aðför Agnes M. Sigurðardóttir biskup í ræðustóli á kirkjuþingi í desember. FréttAblAðið/Anton brink Við það mun umfjöllun um frú Agnesi fá nýtt eldsneyti sem tryggir áframhaldandi neikvæða umfjöllun um hana á þennan persónulega hátt sem verið er að reyna að leiða okkur inn í. Kristján Björnsson, formaður Presta- félags Íslands Formaður Prestafélags Íslands hvetur presta til að verja ekki Agnesi M. Sigurðardóttur biskup því þá séu þeir að ganga í uppspennta gildru. Um- fjöllun um biskupinn sé örugglega „kynbundin aðför“. Hann hvetur til þess að málið sé hugsað í ljósi #metoo. Fyrir þig í Lyfju Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi Öflug lausn við hálsbólgu! HUNANGS OG SÍTRÓNU- BRAGÐI APPELSÍNU- BRAGÐ SYKURLAUST Strefen 8,75 mg munnsogstöur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöur. Innihalda urbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyð lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyð á www.serlyaskra.is. Strefen-5x10-Lyfja copy.pdf 1 01/02/17 12:18 Sjávarútvegur „Ef ekkert verður að gert, þá blæðir okkur bara út. Þetta er grafalvarlegt ástand,“ segir Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Íslandssögu, um rekstur sjávarút- vegsfyrirtækja. Til stendur að breyta fyrirkomu- lagi veiðileyfagjalda og afkomu- tengja þau. Lilja Rafney Magnúsdótt- ir, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir tilganginn að skoða samsetningu veiðigjaldanna. Veiði- gjöldin séu byggð á tveggja ára gömlum upplýsingum. Það hafi þýtt að 1. september síðastliðinn hafi gjöldin hækkað mjög mikið. Sú hækkun hafi ekki verið í takti við það sem afkoman sýndi. „Í stjórnarsátt- málanum segir að við ætlum að taka mið af afkomu þegar veiðigjöldin eru annars vegar,“ segir Lilja Rafney við Fréttablaðið.„Þegar þú eykur skatt- heimtu milli ára um 345 prósent, þá heggur það í. Þegar þetta snýst um það að 10 til 15 prósent af tekjunum hjá útgerðinni fara í greiðslu veiði- gjalda þá þarf að taka það einhvers staðar,“ segir Óðinn. Hann hefur tvenns konar athugasemdir við kerfið eins og það er. Annars vegar að miðað er við afkomu allt annars árs. Hins vegar sé stærstur hluti gjaldsins lagður á vegna bolfiskveiða. „Það er nauðsynlegt að skoða þetta í samhengi við mismunandi útgerðarflokka og afkomu innan greinarinnar,“ segir Lilja. Skipuð verður þverpólitísk nefnd vegna endurskoðunarinnar þegar þing kemur saman. Lilja segir að reynt verði að vinna eins hratt og mögulegt er og útilokar ekki að gerðar verði breytingar sem nái til yfirstandandi fiskveiðiárs. – jhh Segir 345 prósenta hækkun skapa alvarlegt ástand Ef ekkert verður að gert, þá blæðir okkur bara út. Þetta er graf alvarlegt ástand. Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Íslandssögu umHverFISmál Hæsta sólarhrings- meðaltal svifryks frá upphafi mæl- inga var mælt við Grensásveg fyrstu klukkustundir nýs árs. Mengunin var yfir mörkum á öllum mælistöðv- um Reykjavíkurborgar. Samkvæmt mælingum Reykja- víkurborgar hélst styrkur svifryks hár nær allan sólarhringinn en venjulega fellur styrkurinn hratt þegar líða fer á nóttina. Ástæðan er samspil veðuraðstæðna og mikils magns ryks í andrúmsloftinu. Hæsta hálftímagildið mældist klukkan 1.30 á nýársnótt við Gren- sás, eða 2.506 míkrógrömm á rúm- metra. Á sama stað mældist hæsta sólarhringsmeðaltal frá upphafi mælinga, hærra en þegar gaus í Eyja- fjallajökli 2010. Við Grensásveg fór styrkur svif- ryks 17 sinnum yfir sólarhrings heilsuverndarmörk árið 2017. – khn Styrkur svifryks óvenju hár lengi veÐur Ríflega hundrað manns höfðust við í fjöldahjálparstöð í Vík í Mýrdal í gærkvöldi eftir að þjóð- veginum frá Markarfljóti að Vík var lokað. Fjöldahjálparstöðin var opnuð á áttunda tímanum í gær- kvöldi og komu þangað mun fleiri en búist hafði verið við. „Einhverjir munu gista í íþrótta- húsinu í Vík en aðrir hafa í hyggju að fara áfram þegar vegurinn verður opnaður á ný,“ segir Sveinn Rúnar Kristjánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi. Vonast var til þess að unnt yrði opna vegi á ný í kringum miðnætti en veðurfar yrði að ráða því. Blint var víða á Suðurlandi í gær, hvass- viðri og hálka á vegum. Gul við- vörun var í gildi yfir vegna þessa. Beddar og teppi fyrir þrjátíu manns voru í fjöldahjálparstöðinni en starfsmenn Rauða krossins sögðu ferðalanga vera því fegna að komast undir þak. – jóe Skutu skjólshúsi yfir ferðalanga 3 . j a n ú a r 2 0 1 8 m I Ð v I k u D a g u r4 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a Ð I Ð 0 3 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E A 1 -A 5 9 8 1 E A 1 -A 4 5 C 1 E A 1 -A 3 2 0 1 E A 1 -A 1 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.