Fréttablaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 14
handbolti Það er farið að styttast í
Evrópumeistaramótið í Króatíu en
lærisveinar Geirs Sveinssonar eiga
aðeins eftir að spila þrjá vináttu-
landsleiki áður en alvaran byrjar í
Split.
Í kvöld fær íslenska þjóðin tæki-
færi til að kveðja strákana okkar
áður en þeir fara úr landi. Síðasti
heimaleikurinn er þá gegn Japan. Á
morgun heldur liðið til Þýskalands
og mun æfa þar og spila tvo leiki
við Þjóðverja áður en það heldur
til Króatíu þann 10. janúar. Fyrsti
leikur liðsins á EM er svo gegn Sví-
þjóð þann 12. janúar.
Arnar lítur sérstaklega vel út
„Ástandið á mannskapnum er mjög
gott. Allir heilir og líta mjög vel út.
Það koma allir flottir til leiks,“ segir
Geir en einhverjir leikmenn höfðu
verið að burðast með lítilsháttar
meiðsli en það er greinilega ekk-
ert til að hafa áhyggjur af í augna-
blikinu.
„Síðustu leikmennirnir voru að
detta inn frá Svíþjóð, þegar Arnar
Freyr Arnarsson og Ólafur Guð-
mundsson komu til móts við liðið.
Ég vissi ekki alveg standið á þeim
en þeir litu mjög vel út á fyrstu
æfingu með liðinu. Mér fannst
Arnar líta sérstaklega vel út. Ekki
síst í ljósi þess að ég var ekki alveg
nógu ánægður með hann í leikj-
unum í október. Mér sýnist hann
hafa unnið ágætlega í sínum málum
síðan.“
Íslenska liðið er mun sterkara
en það japanska. Geir segist vera
að einblína á leik síns liðs í kvöld
en við hverju má fólk búast? „Það
er þetta klassíska að fara í alla leiki
til þess að vinna þá. Við viljum líka
spila vel og fara sáttir af velli með
það sem við erum að gera. Það er
alveg ljóst að það verður ekki allt
tilbúið í þessum leik. Við höfum svo
góða sex daga í Þýskalandi til þess
að æfa og spila. Vonandi náum við
þeim ryþma sem við viljum finna
þar,“ segir landsliðsþjálfarinn.
„Fólk mun sjá sitt lítið af hverju
í þessum leik. Við munum keyra á
þeim leikmönnum sem hafa verið
framar öðrum og munu bera þetta
að mörgu leyti uppi í Króatíu. Ég er
samt með sextán leikmenn og þeir
eiga allir erindi. Þeir eru þarna því
þeir hafa allir eitthvað fram að færa.
Vonandi ná allir að sýna sitt besta.“
Allir með hlutverk í liðinu
Geir kom svolítið á óvart með því
að velja sextán manna hóp óvenju
snemma og hann ítrekar að það séu
engir farþegar í liðinu.
„Ég vona að menn hafi þann
fókus að þeir vilji spila sem mest.
Auðvitað þarf það að vera með
þeim hætti að menn taki því vel
sama hvað þeir spila mikið. Það er
hver einasti leikmaður með hlut-
verk, sama hvort það er ein, tvær,
tíu eða sextíu mínútur. Aðalatriðið
er hvernig menn skila því hlutverki
sem ætlast er til af þeim inn í hóp-
inn,“ segir Geir en hann vill ekki tala
andstæðinga kvöldsins niður þó svo
þeir hafi steinlegið gegn Barein fyrir
örfáum dögum.
„Þeir spiluðu vel á móti Hvít-Rúss-
um skömmu áður og töpuðu naum-
lega gegn þeim. Svona er handbolt-
inn. Það eru skin og skúrir. Það er
alveg ljóst að Dagur tekur við liði
sem er ekki alveg í fremstu röð en ég
held að við munum sjá í þessum leik
að liðið hefur tekið miklum fram-
förum undir hans stjórn á hálfu ári.“
Japanska liðið kom hingað til
lands rétt fyrir áramót og var svo í
áramótaveislu hjá þjálfaranum þar
sem meðal annars var boðið upp
á hrátt hvalkjöt. Það líkaði Japön-
unum.
„Við töpuðum illa fyrir Barein á
dögunum en við ætlum að standa
i lappirnar allan tímann gegn
Íslandi,“ segir Dagur.
henry@frettabladid.is
Það koma allir flottir til leiks
Strákarnir okkar spila sinn síðasta leik á Íslandi fyrir EM í kvöld er Dagur Sigurðsson mætir með japanska
landsliðið í heimsókn. Geir Sveinsson landsliðsþjálfari segir að ástandið á leikmönnum íslenska liðsins sé
mjög gott. Landsliðsþjálfarinn leggur mikla áherslu á að allir leikmenn liðsins hafi sitt hlutverk.
Geir og Dagur spiluðu saman sem atvinnumenn í Þýskalandi. Þeir hafa mæst
sem þjálfarar í Þýskalandi en aldrei í landsleik. fréttAblAðið/stefán
City komst aftur á sigurbraut með fljótasta marki tímabilsins
Er það Watford? Vitið þið að leikurinn er byrjaður? Raheem Sterling skoraði fljótasta mark tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og það þriðja fljót-
asta í sögu Manchester City þegar hann kom liðinu yfir gegn Watford eftir 38 sekúndna leik í gærkvöld. Sjálfsmark Christian Kabasele 12 mínútum
seinna tvöfaldaði forystu City sem fór að lokum með 3-1 sigur. City náði með sigrinum 15 stiga forystu á toppi deildarinnar. norDicphotos/Getty
Ég er með sextán
leikmenn og þeir
eiga allir erindi. Þeir eru
þarna af því að þeir hafa
eitthvað fram að færa.
Geir Sveinsson
Í dag
19.30 Arsenal - chelsea Sport
21.45 Messan Sport
Vináttulandsleikur
19.30 Ísland - Japan
Enska úrvalsdeildin
southampton - c. palace 1-2
1-0 Shane Long (17.), 1-1 James McArthur
(69.), 1-2 Luka Milivojevic (80.)
swansea - tottenham 0-2
0-1 Fernando Llorente (12.), 0-2 Dele Alli
(89.).
West ham - WbA 2-1
0-1 James McClean (30.), 1-1 Andy Carroll
(59.), 2-1 Carroll (94.)..
Man. city - Watford 3-1
1-0 Raheem Sterling (1.), 2-0 Christian Kaba-
sele (sjálfsmark 13.), 3-0 Sergio Aguero
(63.), 3-1 Andre Gray (82.).
efst
Man. City 62
Man. Utd 47
Chelsea 45
Liverpool 44
Tottenham 40
neðst
West Ham 21
Southampton 20
Stoke 20
West Brom 16
Swansea 16
Nýjast
KEflaVíK SKiptiR RobinSon út
Karlalið Keflavíkur í körfubolta hefur
skipt um bandarískan leikmann, í
þriðja skiptið í vetur. Stanley Robin-
son var með liðinu nú undir lok
síðasta árs, en hann stóð ekki undir
væntingum og hefur verið látinn taka
pokann sinn.
Nýi leikmaðurinn heitir Domin-
ique Elliot og er 26 ára framherji
eða miðherji. Elliot útskrifaðist frá
Maryland Eastern Shore háskólanum
árið 2016 og spilaði á síðasta tímabili
með Krka í Slóvakíu. Fyrri hluta þessa
tímabils var hann á mála hjá Lions de
Geneve í Sviss.
Domino’s deildin fer aftur í gang
eftir jólafrí á morgun og mæta Kefl-
víkingar nýliðum Vals í Valsheimil-
inu klukkan 19.15.
flanagan RéðSt á KæRuStuna
Jon Flanagan, leikmaður Liverpool í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu,
játaði fyrir rétti að hafa ráðist á
kærustu sína fyrir jól.
Flanagan var kærður fyrir að ráðast
á og sparka í Rachael Wall, sem er
tveggja barna móðir, í miðborg Liver-
pool aðfaranótt 22. desember. Wall
og Flanagan hafa verið í sambandi í
eitt og hálft ár.
Hinn 25 ára Flanagan bíður niður-
stöðu dómstóla, en hann játaði sök
í gær. Hann hefur ekkert komið við
sögu hjá Liverpool í úrvalsdeildinni
í vetur, en á að baki 51 leik og einn
MaRKaglaðiR íSlEndingaR
Ísland er í 24. sæti lista yfir marka-
hæstu þjóðir í ensku úrvalsdeildinni,
en leikmenn frá 97 þjóðum hafa
skorað mark í deildinni. Á þeim
25 árum sem enska úrvalsdeildin
hefur verið spiluð hafa 17 íslenskir
leikmenn komið við sögu og skorað
samtals 171 mark.
Efst á listanum er England, engum
að óvörum, en 10.826 ensk mörk hafa
litið dagsins ljós í úrvalsdeildinni.
Frakkar eru í öðru sæti með 1.477.
Efstir Norðurlandaþjóða eru Norð-
menn með 510 mörk í 8. sæti. Næst
fyrir ofan Ísland er Trínidad og
Tóbagó með 178 mörk.
Gylfi Þór Sigurðsson og Eiður
Smári Guðjohnsen eru langatkvæða-
mestir Íslendinga, Gylfi hefur skorað
45 mörk og Eiður Smári 55. Heiðar
Helguson náði 27 mörkum og Her-
mann Hreiðarsson 15, en fleiri
komast ekki yfir 10 mörk.
3 . j a n ú a r 2 0 1 8 M i Ð V i K U d a G U r14 S p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð
sport
0
3
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
1
-A
A
8
8
1
E
A
1
-A
9
4
C
1
E
A
1
-A
8
1
0
1
E
A
1
-A
6
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
2
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K