Víkurfréttir - 03.01.2003, Page 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Íraun má segja að Valde-mar Gestur Valdemars-son og Jórunn Díana Ol-
sen hafi bjargað Fiskmark-
aði Suðurnesja sl. sunnu-
dagskvöld þegar þau urðu
vitni að bruna við húsnæði
fiskmarkaðarins en þá
voru þau á ferð um Sand-
gerði.Valdemar sagði í
samtali við Víkurfréttir að
þeim hafi brugðið þegar
þau sáu eldglæringarnar í
fiskikörunum fyrir utan
fiskmarkaðinn: „Þetta var
heilmikið sjokk og ég
hringdi strax í 112.
Slökkviliðið var tæpar 10
mínútur á staðinn og að mínu
mati hefði ekki mátt tæpara
standa, því eldtungurnar voru
farnar að læsa sig í þak-
skeggið.“
Þórður M. Kjartansson skrif-
stofustjóri Fiskmarkaðar
Suðurnesja vildi sýna bjarg-
vættunum smá þakklætisvott
og bauð skötuhjúunum út að
borða á veitingastaðinn Soho
í Reykjanesbæ. Þórður sagði
að með snarræði sínu hefðu
þau forðað Fiskmarkaði Suð-
urnesja frá stórtjóni.
Lesendur vf.is velja Suð-urnesjamann ársins2002. Sá sem hlýtur út-
nefninguna fær henni til
staðfestingar viðurkenningu
frá Víkurfréttum. Kosningin
stendur til 21. janúar 2003 og
verða úrslitin birt á vf.is og í
Víkurfréttum að aflokinni
kosningu.Til að kjósa þarf að
smella á rauða borðann á
forsíðu Víkurfrétta á Netinu.
Hnappurinn er merktur Suð-
urnesjamaður ársins 2002 -
smellið hér!
Um valið og þátttöku í því er
nauðsynlegt að hafa nokkrar
skýrar reglur. Nota verður
formið sem er að finna á vef-
síðu Víkurfrétta. Skilyrði er að
þeir sem taka þátt í valinu gefi
upp nafn sitt, kennitölu, net-
fang og símanúmer. Ekki er
tekið við nema einni tilnefn-
ingu frá hverjum einstaklingi.
Tilnefna má hvern þann sem
með réttu getur talist Suður-
nesjamaður, jafnvel þótt hann
sé nú til heimilis utan Suður-
nesja. Valið skal rökstutt með
nokkrum orðum eða nokkrum
setningum. Með val hvers og
eins verður farið sem trúnaðar-
mál. Réttur er áskilinn til að
birta glefsur úr rökstuðningi án
þess að sendanda sé getið.
Takið þátt í kosningunni!
Ritstjórn Víkurfrétta á Netinu
Hringlandaháttur ríkir íSandgerði með fund-artíma bæjarráðs og
hefur bæjarráðsmaðurinn
Heiðar Ásgeirsson séð á-
stæðu til að senda inn skrif-
leg mótmæli vegna ástands-
ins sem hann segir óásættan-
legt. Þannig hafa eingöngu
fjórir af 15 bæjarráðsfund-
um á þessu ári verið haldnir
á samþykktum fundartíma.
Í fundargerð frá Sandgerðisbæ
segir:
„Undirritaður mótmælir þeim
hringlandahætti sem orðinn er
á fundartíma bæjarráðs. Í
„Samþykkt um stjórn og fund-
arsköp Sandgerðisbæjar“ er
kveðið á um að bæjarráð skuli
halda fundi tvisvar í mánuði,
annan og fjórða þriðjudag
hvers mánaðar. Það sem af er
þessu ári hafa verið haldnir 15
fundir í bæjarráði einungis 4
af þeim voru haldnir á sam-
þykktum fundartíma bæjar-
ráðs. Slík stjórnsýsla er óá-
sættanleg.“
Heiðar Ásgeirsson, sign.
Tilkynntu um bruna og
var boðið út að borða
Á réttum stað á réttum tíma:
Kallinn á kassanum
Lionsbíllinn í Njarðvíkurnar
Vilmundur Magnússon í Njarðvík hlaut fyrsta vinning í happdrætti Lions-
klúbbs Njarðvíkur og varð Peugeot 206 ríkari. Vinningurinn var formlega af-
hentur milli hátíða en hann kom á miða númer 960. Ingólfur Bárðarson hjá
Lionsklúbbnum sagði í samtali við Víkurfréttir að þátttaka hafi verið mjög góð
í happdrættinu og allir miðarnir selst og í raun hafi verið eftirspurn eftir fleiri
miðum.
Aukavinningar voru einnig dregnir út. Vinningsnúmerin má nálgast á sím-
svara með því að hringja í númerið 878 1898
Planta í blóma
um áramót!
Móðir náttúra veit greini-lega ekki hvað klukkanslær þessa dagana.
Kannski ekki nema von, þegar
hitamælar hafa komist nálægt
því að sýna tveggja stafa hita-
tölu nær allan desember. Minni-
háttar frost síðustu daga hefur
ekki komið í veg fyrir að plöntur
hafa blómstrað eins og t.a.m.
plantan á meðfylgjandi mynd.
Ekki vitum við hvað þessi planta
heitir en hún var í fullum blóma
inn á milli steina í blómakeri við
Flug Hótel í Keflavík 28. desem-
ber. Þegar blómakerið var skoð-
að betur, mátti sjá meira plöntu-
líf, þó svo engin þeirra hafi
blómstrað jafn fallega og sú
sem myndin er af.
Óásættanlegur
hringlandaháttur
í Sandgerði
LESENDUR VF.IS
KJÓSA MANN ÁRSINS
GLEÐILEGT ÁR og takk fyrir það liðna kæru
Suðurnesjamenn. Nú er nýtt ár hafið, ár sem
verður án efa spennandi á margan hátt. Það eru
nefnilega að koma kosn-
ingar. Nú farið þið að sjá
þingmenn á þönum um
Suðurnes sem lofa öllu
fögru, taka í hönd allra og
smjaðrandi fyrir þeim sem
þeir ná ekki að snerta.
Skemmtilegur tími ekki
satt?
HRINGIÐA stjórnmálanna snertir alla. Alþing-
ismenn, jafn misjafnir og þeir eru margir, setja
lögin sem við lifum eftir í þessu landi. Það skipt-
ir því máli að þeir menn sem VIÐ veljum til for-
ystu í þessu landi séu þess verðir og endurspegli
þær skoðanir sem VIÐ höfum. Þess vegna skul-
um VIÐ kjósa rétt, eftir eigin sannfæringu, án
þess að láta smjaður og fögur loforð hafa áhrif á
okkur. VIÐ skulum meta verk þeirra manna sem
bjóða sig fram og kjósa eftir því. Á fjögurra ára
fresti fáum við völd sem við skulum nota.
DAVÍÐ ODDSSON sýndi það í hinni árlegu
Kryddsíld á Stöð 2 á gamlársdag að hann er bú-
inn að sitja of lengi sem forsætisráðherra. Með
handapati og pirringi skammaði hann Össur litla
fyrir það að Ingibjörg Sólrún hætti sem borgar-
stjóri. Þó að Davíð hafi leikið Bubba Kóng í
Herranótt fyrir mörgum árum og staðið sig vel,
þá sáu sjónvarpsáhorfendur að hann hefur misst
sjarmann sem leikari, jafnvel þó hann sé búinn
að leika á hinu stóra pólitíska leiksviði sl. 20 og
eitthvað ár. Við skulum gera hlé á hans leik og
leyfa honum aðeins að hvíla sig.
ÁRIÐ 2002 var fyrir margra hluta sakir merki-
legt ár. Við fengum góðan bæjarstjóra sem
reyndar á eftir að sanna sig, en hefur komið
sterkur inn sem stjórnandi í bæjarfélaginu. Við
sáum Sjálfstæðismenn ýta Kristjáni Pálssyni út
af þingi og Guð einn veit hvað Kristján gerir í
kjölfarið, en eitt er víst að enginn veit hvað átt
hefur fyrr en misst hefur. Við sáum bæjarfulltrúa
Sandgerðis brosa út í annað, reynandi að bjarga
bæjarfélaginu og smjaðrandi um það við íbúa
Sandgerðis að allt væri í stakasta lagi. Við upp-
lifðum einstaka Ljósanótt. Við héldum áfram að
sjá kvótann fara af Suðurnesjum og sjávarút-
vegsráðherra brosa og segja að ekkert væri að.
Já við sáum margt og lærðum mikið.
LÆKNADEILAN fylgir okkur inn í nýja árið -
draugur fortíðar. Nú verða þingmenn,
sveitarstjórnarmenn, Verkalýðsfélög, stofnanir
og íbúar Suðurnesja að leggjast á eitt um að
þrýsta á lausn deilunnar. Ef verkföll þarf til, þá
förum við í verkföll. Ef undirskriftalista þarf til,
þá skrifum við undir. Það verður að gera eitth-
vað því ekki ætla hin reykvíska framkvæm-
dastýra HSS eða heilbrigðisráðherra að leysa
vandann. Sýnum hvers við erum megnug og
hættum að láta hafa okkur að fíflum.
Í BYRJUN nýs spennandi árs vill Kallinn á
kassanum hvetja íbúa Suðurnesja til að senda
póst á netfangið kallinn@vf.is og hvetja Kallinn
til að taka á skemmtilegum málum. Það marg-
borgar sig.
Kveðja, Kallinn
Kallinn á kassanum er ekki starfsmaður Víkurfrétta,
heldur sjálfstæður pistlahöfundur. Þær skoðanir sem
fram koma hjá Kallinum á kassanum þurfa ekki
að endurspegla skoðanir ritstjórnar Víkurfrétta.
1. tbl. 2003 - 16 sidur 2.1.2003 15:54 Page 2