Víkurfréttir - 03.01.2003, Síða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VÍKUR
FRÉTTIR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Sími 421 0000 (15 línur)
Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar:
Kristín Njálsdóttir,
kristin@vf.is,
Jófríður Leifsdóttir,
jofridur@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson
sími 421 0004 johannes@vf.is
Sævar Sævarsson,
sími 421 0003 saevar@vf.is
Hönnunarstjóri:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is
Hönnun/umbrot:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is,
Stefan Swales,
stefan@vf.is
Skrifstofa:
Stefanía Jónsdóttir,
Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing:
Íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar
Víkurfrétta ehf. eru:
VF - Vikulega í Firðinum
Tímarit Víkurfrétta,
The White Falcon,
Kapalsjónvarp Víkurfrétta.
MUNDI
A fmæli Verkalýðs- og sjó-mannafélags Keflavík-ur og nágrennis var
fagnað milli hátíða og vegleg
afmælishátíð félagsins haldin
í Stapa. Dagskrá afmælishá-
tíðarinnar var fjölbreytt og
stóð á þriðju klukkustund
með ávörpum, ræðum og
skemmtiatriðum. Undir dag-
skránni voru svo sýndar
myndir úr starfsemi VSFK
og af starfssvæði félagsins
sem Viðar Oddgeirsson hefur
tekið saman.
Kristján Gunnarsson formaður
félagsins flutti ávarp, auk þess
sem gestir ávörpuðu samkom-
una og færðu félaginu gjafir.
Þannig varð listaverkasafn fé-
lagsins mun stærra eftir daginn
í dag. Sigrún Eva Ármanns-
dóttir söng nokkur hugljúf lög,
Jóhannes Kristjánsson flutti
gamanmál og með honum í för
voru margar þjóðkunnar per-
sónur, auk þess sem Kristján
verkalýðsformaður fékk það ó-
þvegið í gríni og glensi. Rúnar
Júlíusson sló svo botninn í dag-
skrána með rokki og róli eins
og honum einum er lagið. Boð-
ið var upp á glæsilegar kaffi-
veitingar og undirleik Guð-
mundar Hermannssonar.
Í tilefni 70 ára afmælis VSFK
var Guðrún E. Ólafsdóttir gerð
að heiðursfélaga í Verkalýðs-
og sjómannafélagi Keflavíkur
og nágrennis. Fékk hún skraut-
ritað skjal þess efnis og mynd-
arlega blómaskreytingu. Þá lék
Guðmundur Hermannsson
Maístjörnuna fyrir Guðrúnu
sem sérstakt óskalag. Gestir
stóðu allir upp úr sætum sínum
og klöppuðu Guðrúnu lof í
lófa. Meðfylgjandi mynd er af
Guðrúnu þegar henni var til-
kynnt um ákvörðun stjórnar
VSFK.
Skólaslit haustannar ogbrautskráning Fjöl-brautaskóla Suðurnesja
fór fram laugardaginn 21.
desember. Að þessu sinni út-
skrifuðust 46 nemendur; 39
stúdentar, 6 iðnnemar og
einn meistari í rafvirkjun.
Við athöfnina voru veittar
viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur.
Ólafía Sigurjónsdóttir fékk við-
urkenningar frá skólanum fyrir
góðan árangur í dönsku, ensku,
þýsku og fyrir árangur sinn í
líffræði og efnafræði. Auk þess
fékk Ólafía viðurkenningu frá
Eddu - miðlun og útgáfu fyrir
góðan árangur í íslensku. Sig-
urður Guðjón Gíslason fékk
viðurkenningar fyrir góðan ár-
angur í spænsku og í stærð-
fræði nemanda sem ekki er á
náttúrufræðibraut. Ellen Ósk
Kristjánsdóttir fékk viðurkenn-
ingu fyrir góðan námsárangur í
þýsku og Júlía Jónsdóttir fyrir
spænsku. Ingibjörg Ragnars-
dóttir fékk viðurkenningu frá
skólanum fyrir góðan árangur í
myndmennt, Sigrún Jónatans-
dóttir fyrir sálfræði og Valdís
Ösp Árnadóttir fyrir félags-
fræði. Arnþór Sigurðsson hlaut
viðurkenningu frá Olíusamlagi
Keflavíkur og nágrennis fyrir
bestan árangur til fyrsta stigs
vélstjóra og Húsasmiðjan veitti
Maríu Svavarsdóttur viður-
kenningu fyrir góðan árangur í
húsasmíði. Þá fékk Oddný J.B.
Mattadóttir viðurkenningu fyrir
störf í þágu nemenda öldunga-
deildar.
Að venju veitti Sparisjóðurinn í
Keflavík nemendum skólans
viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur og afhenti Geir-
mundur Kristinsson sparisjóðs-
stjóri verðlaunin. Að þessu
sinni hlaut Ólafía Sigurjóns-
dóttir viðurkenningu fyrir
hæstu einkunn á stúdentsprófi
og hún fékk auk þess viður-
kenningar fyrir góðan árangur í
íslensku, erlendum tungumál-
um og í stærðfræði og raun-
greinum. Valdís Ösp Árnadóttir
fékk viðurkenningu fyrir góðan
árangur í samfélagsgreinum og
María Svavarsdóttir fyrir góðan
árangur í tæknigreinum.
Að lokum veitti Ólafur Jón
Arnbjörnsson skólameistari
tignarmerki skólans en þau eru
veitt þeim sem hafa unnið skól-
anum verulegt gagn og stuðlað
að framgangi hans. Að þessu
sinni hlutu kennararnir Magnús
Óskar Ingvarsson, Sturlaugur
Ólafsson og Ægir Sigurðsson
gullmerki FS en þeir hafa allir
kennt við skólann í yfir 25 ár.
Þá kvaddi skólameistari Corn-
elíu Ingólfsdóttur bókavörð
fyrir hönd skólans en hún lét af
störfum á önninni eftir að hafa
starfað við skólann um árabil.
Myndarlegur hópur útskrifaður frá FS
Guðrún Ólafsdóttir heiðursfélagi VSFK
Gleðilegt nýtt kosningaár!
Vonandi verð ég ekki settur
út í kuldann í ár.
Kveðja Krist... Mundi!
1. tbl. 2003 - 16 sidur 2.1.2003 15:56 Page 4