Víkurfréttir - 03.01.2003, Qupperneq 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
S íðustu daga hefur hóp-ur Suðurnesjamannakomið í veg fyrir til-
raun til svokallaðrar fjand-
samlegrar yfirtöku Fisk-
markaðar Íslands á Fisk-
markaði Suðurnesja. Í til-
kynningu sem Fiskmarkaður
Íslands sendi Kauphöllinni í
morgun segir að félagið hafi
eignast 31.3% í Fiskmarkaði
Suðurnesja og að kaupin hafi
verið fjármögnuð með 50
milljón króna láni. Ragnar
Kristjánsson framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðs Suður-
nesja sagði í samtali við Vík-
urfréttir að hópi einstaklinga
og fyrirtækja á Suðurnesjum
hefði tekist að verja yfirtök-
una og væri nú með um 62%
eignarhlut í Fiskmarkaði
Suðurnesja:
„Fjandsamleg yfirtaka Fisk-
markaðar Íslands hefur ekki
tekist og um sameiningu félag-
anna er ekki að ræða meðan
þessir aðilar halda um stjórn-
völinn. Sá hópur sem síðustu
daga hefur staðið í því að verja
félagið hefur ekki áhuga á sam-
einingu við Fiskmarkað Ís-
lands,“ sagði Ragnar. Hann
segir að ef yfirtakan hefði tek-
ist þá væri gríðarlegir hags-
munir Suðurnesjamanna fyrir
borð bornir: „Það segir sig
sjálft að störf hefðu horfið og
starfseminni hefði verið breytt
töluvert. Íslandsmarkaður er
hluti af okkar starfsemi, en
markaðurinn veltir um 16 til 17
milljörðum sem fer í gegnum
Sparisjóðinn í Keflavík, en sú
velta hefði hugsanlega getað
horfið af svæðinu.“ Samkvæmt
heimildum Víkurfrétta hafa
forsvarsmenn Fiskmarkaðar Ís-
lands gengið á hluthafa Fisk-
markaðar Suðurnesja síðustu
daga og reynt að kaupa þeirra
hlut, en einn þeirra Suðurnesja-
manna sem seldi sinn hlut var
Sigurjón Jónsson úr Sandgerði,
en hann seldi 17% hlut. Ragnar
segir að Suðurnesjahópurinn
muni verja fyrirtækið áfram og
byggja það upp á Suðurnesj-
um.
Tilraun til fjandsamlegrar yfirtöku
á Fiskmarkaði Suðurnesja mistókst
Fiskmarkaður Íslands hf.:
Örn Arnarson, sundkappi úr ÍRB, varútnefndur íþróttamaður Reykja-nesbæjar fyrir árið 2002 en kjörið fór
fram í íþróttahúsinu í Njarðvík á gamlársdag.
Örn gekk til liðs við ÍRB í haust og hefur
staðið sig frábærlega í lauginni síðan en hæst
ber að nefna er hann varð Evrópumeistari í
200 m. baksundi í Þýskalandi í desember
ásamt því að hreppa bronsið í 400 m. bak-
sundi. Örn hafði milli jóla og nýárs verið
valinn íþróttamaður Keflavíkur og var því vel
að þessum heiðri kominn.
Jóhann Rúnar Kristjánsson í íþróttafélaginu NES
varð í 2. sæti í kjörinu og Logi Gunnarsson,
körfuknattleikskappi úr Njarðvík og núverandi
leikmaður Ulm í Þýskalandi varð í 3. sæti.
Örn Arnarson íþrótta-
maður Reykjanesbæjar
1. tbl. 2003 - 16 sidur 2.1.2003 15:57 Page 6